Í blaðinu er einnig að finna „fyrir og eftir“ myndir af heimili Evu Petersen í Hlíðunum sem sigraði í Byko-leik Húsa og híbýla síðastliðið sumar.
Við kíkjum svo í heimsókn til Ásdísar Rósu sem býr í íbúð með sterkum karakakter. Húsráðendur hafa verið að hanna húsgögn sem sniðin eru að rýminu.
Við heimsóttum einnig grafískan hönnuð sem á létt og látlaust heimili í Vesturbænum.
Sirrý Arnardóttir fer yfir og sýnir okkur sína uppáhaldshluti en hún býr í snotru húsi í Skerjafirðinu.

Póstkortið sem fylgir með blaðinu er eftir Örnu Ingu, upprennandi listakonu, en hún brennur fyrir baráttumálum nútímasamfélags.
Þetta og miklu meira í 6. tölublaði Húsa og híbýla.
Tryggðu þér áskrift að Hús og híbýli í vefverslun






















Athugasemdir