Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fjölgar í hópi manna sem hata lýðræði

Ein af fyrstu Twitter-færslum Donalds Trump á nýju ári voru ham­ingju­óskir til Jair Bol­son­aro sem skömmu áður hafði verið svar­inn í emb­ætti for­seta Brasilíu. Það var engin hend­ing því á milli þeirra er gagn­kvæm aðdáun og hefur Bol­son­aro verið nefndur „brasil­íski Trump“.

Fjölgar í hópi manna sem hata lýðræði

Í honum sér Trump náinn banda­mann og skoð­ana­bróður og var utan­rík­is­ráð­herr­ann Mike Pompeo sendur til að vera við­staddur inn­setn­ing­ar­at­höfn­ina. Á meðal ann­arra þjóð­ar­leið­toga sem voru við­staddir athöfn­ina voru Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, og Viktor Orban, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands. Gesta­list­inn gefur ákveðna inn­sýn í hug­mynda­fræði Bol­son­aros sem and­stæð­ingar hans ótt­ast að muni binda enda á lýð­ræði í Brasilíu.
Hug­mynda­fræði Bol­son­aros er af sama meiði og ann­arra þjóð­ar­leið­toga sem hafa sprottið upp víða um heim að und­an­förnu. Þetta eru, auk þeirra Trump, Net­anyahu og Orban, (karl)menn eins og Erdogan í Tyrk­landi og Duterte á Fil­ipps­eyjum – þjóð­ern­is­sinn­aðir popúlistar sem reka fleyg í þjóðir sínar og ala á sundr­ungu og ótta gagn­vart raun­veru­legum og ímynd­uðum óvinum, nær unda­tekn­ing­ar­laust útlend­ingum, minni­hluta­hópum og óskil­greindri elítu. Þrátt fyrir að vera nær alltaf hluti, eða dyggi­lega studdir, af hinni raun­veru­legu elítu.
Bol­son­aro er þar engin und­an­tekn­ing. Hann hefur málað fjöl­miðla, mennta­menn og gras­rót­ar­sam­tök sem óvini rík­is­ins og hótað þeim jafnt sem póli­tískum and­stæð­ingum fang­els­is­refs­ingum þegar hann kemst til valda. Hann talar fyrir íhalds­sömum kristi­legum gildum, fer ekki leynt með andúð sína á sam­kyn­hneigðum og trans fólki, er harður and­stæð­ingur fóst­ur­eyð­inga og hefur lýst yfir stríði gegn póli­tískri rétt­hugsun sem hann telur ógna grunn­gildum Brasilíu. Umhverf­is­sinnar og mann­rétt­inda­sam­tök ótt­ast líka stefnu hans því hann hefur heitið því að slaka veru­lega á lög­gjöf í því skyni að fjölga leyfum til hvers konar námu­vinnslu, meðal ann­ars á hinu við­kvæma Amazon-svæði. Þar er að finna fjölda frum­byggja sem hafa lifað í ein­angrun en Bol­son­aro hefur talað um að „aðlaga þá sam­fé­lag­inu“ sem margir ótt­ast að þýði ein­fald­lega útrým­ingu þess­ara hópa.
Þrátt fyrir allt ofan­talið nýtur Bol­son­aro hylli meðal flestra þjóð­fé­lags­hópa. Almenn­ingur í Brasilíu er orð­inn lang­þreyttur á getu­leysi og spill­ingu hinna hefð­bundnu stjórn­mála­flokka sem og gegnd­ar­lausum glæpum. Í þeim efnum hefur Bol­son­aro heitið að taka til óspilltra mál­anna.

Spilling og glæpir
Brasilía er fimmta fjöl­menn­asta land heims og átt­unda stærsta hag­kerfi ver­aldar, það langstærsta í Suður-Ameríku. Þróun mála þar hefur þess vegna gríð­ar­lega mikil áhrif á alþjóða­málin. Blóma­skeið Brasilíu var í upp­hafi ald­ar­innar undir stjórn Fernando Henrique Cardoso og Lula da Silva, hag­vöxtur var mik­ill og millj­ónum tókst að brjót­ast úr fátækt. En síðan hann lét af emb­ætti hefur leiðin legið þráð­beint niður á við. Fjár­málakreppan skall á Brasilíu af fullu afli árið 2013, mis­skipt­ing auðs er æpandi og spill­ing hefur grass­erað í stjórn­málum og við­skipta­lífi. Lula sjálfur var dæmdur í 12 ára fang­elsi fyrir spill­ingu og pen­inga­þvætti og eft­ir­maður hans, Dilma Rousseff var hrakin úr emb­ætti árið 2016. Samhliða því hefur glæpa­tíðni auk­ist hratt og á Brasilía 17 af þeim 50 borgum í heim­inum þar sem morð­tíðni er hæst.

Árásin og bak­grunnur, elítan
Það er upp úr þessum jarð­vegi sem Jair Bol­son­aro skýst upp á stjörnu­him­in­inn. Hann hefur setið á þingi síðan 1990 með lítt eft­ir­tekt­ar­verðum árangri og helstu afrek hans voru að hafa setið á þingi fyrir átta mis­mun­andi flokka. Hann varð hins vegar óvænt stjarna kosn­inga­bar­átt­unnar í fyrra með óheflaðri fram­komu, stór­yrtum yfir­lýs­ingum og snjallri kosn­inga­bar­áttu á sam­fé­lags­miðlum. Um leið afl­aði hann sér óvina og í sept­em­ber lifði hann naum­lega af bana­til­ræði þegar hann var stung­inn á kvið eftir kosn­inga­fund í borg­inni Juiz de Fora. Rétt eins og Donald Trump fór hann fram undir þeim merkjum að ráð­ast gegn spill­ingu og brjóta elít­una á bak aftur (sbr. „drain the swamp“) en til­heyrir henni engu að síður sjálfur. Þannig fór stuðn­ingur við Bol­son­aro vax­andi upp eftir tekju­stig­anum og fjöl­skyldu­með­limir hans hafa verið bendl­aðir við spill­ingu.

Stefnan
Hug­mynda­fræði Bol­son­aros er að mörgu leyti keim­lík hug­mynda­fræði Donalds Trump, bæði í efna­hags­málum og utan­rík­is­málum. Hann geldur var­hug við auknum umsvifum Kínverja í Brasilíu og er, rétt eins og Trump, tíð­rætt um við­skipta­halla og þörf­ina á betri samn­ingum við Kína. Þá er Bol­son­aro jafn­framt ein­arður and­stæð­ingur stjórn­valda í Venes­ú­ela sem gerir hann að enn álit­legri banda­manni í augum Trump-stjórn­ar­innar. Hann talar fjálg­lega um að hann sé full­trúi hinna fátæku stétta þótt það sé fátt í stefnu hans sem bendir til þess. Þvert á móti er lík­legt að aðgerðir hans komi verst niður á þeim fátæk­ustu, einkum og sér í lagi þeldökkra í fátækra­hverfum, eins og vikið er að síðar. For­set­inn hefur sömu­leiðis ítrekað við­haft nei­kvæð orð í garð kvenna, sam­kyn­hneigðra og trans fólks. Þrátt fyrir allt þetta mæld­ist hann með meiri stuðn­ing en mót­fram­bjóð­andi hans í for­seta­kosn­ing­unum á meðal kvenna og þeldökkra.

Glæpa­gengi og her­for­ingjar
Yfir­lýs­ingar Bol­son­aros í gegnum tíð­ina hafa fengið marga til að ótt­ast að lýð­ræði í Brasilíu muni senn líða undir lok. Hann hefur ítrekað dásamað her­for­ingja­stjórn­ina sem stjórn­aði með harðri hendi á árunum 1964 til 1985 og í rík­is­stjórn hans sitja fleiri hers­höfð­ingjar en hafa gert síðan sú stjórn leið undir lok. Búist er við að hann gefi lög­reglu­liði lands­ins, sem verður sífellt her­vædd­ara, frítt spil í bar­átt­unni gegn glæpa­gengjum með sömu afleið­ingum og á Fil­ipps­eyjum Dutartes þar sem þús­undir hafa verið teknar af lífi án dóms og laga. Fórn­ar­lömb lög­regl­unnar, sem nú þegar er ábyrg fyrir 1 af hverjum 5 dauðs­föllum af völdum skot­vopna, verða lík­lega að miklu leyti blökku­menn í fátækra­hverf­unum. Þá vílar hann ekki fyrir sér að hóta póli­tískum and­stæð­ingum, fjöl­miðlum og öðrum sem gagn­rýna hann refs­ingum. Ekki ósvipað Donald Trump nema að mun­ur­inn er sá að banda­rískar lýð­ræð­is­stofn­anir eru mun sterk­ari en þær brasil­ísku og hafa náð að vega upp á móti ein­ræð­istil­burðum Trumps en all­ó­víst er að það verði raunin í til­felli Bol­son­aro.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta