Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Landamæraveggur Trump einangrar hann

Donald Trump heldur áfram að hrista upp í banda­rískum stjórn­málum og stunda for­dæma­lausa póli­tík.

Landamæraveggur Trump einangrar hann

Í des­em­ber hót­aði Donald Trump á fundi með demókrötum að stöðva starf­semi rík­is­stofn­ana fengi hann ekki fjár­magn til að byggja vegg við landa­mæri Mexíkó. Með veggnum stendur Trump við kosn­inga­lof­orð sitt og loka landa­mærum suð­vestan megin en verð­miði veggs­ins eru litlar 5,6 billjónir doll­ara. Vegg­ur­inn var horn­steinn í inn­flytj­endapóli­tík Trumps og nú virð­ist hann vera að byggja þennan vegg utan um sjálfan sig.

Þingið þarf að sam­þykkja fjár­magnið, en það mætir harðri and­stöðu, einkum þar sem demókratar eru nú í meiri­hluta eftir að repúblikanar töp­uðu honum í kosn­ing­unum í nóv­em­ber. Trump fram­fylgdi hótun sinni og í gær var fimmt­ándi dagur þar sem starf­semi ein­hverra rík­is­stofn­anna var lögð niður. Á blaða­manna­fundi á föstu­dag­inn lýsti hann því yfir að þetta ástand gæti staðið í mán­uði eða ár þess vegna fái hann ekki pen­ing­ana í fram­kvæmd­ina.

Lokunin getur haft alvar­legar afleið­ingar í för með sér á starf­semi ýmissa rík­is­stofn­anna sem munu lenda í fjár­skorti fljót­lega. Stofn­unin sem greiðir út mat­ar­miða til um 38 millj­óna tekju­lágra banda­rískra fjöl­skyldna lendir í fjár­þurrð í mars og vand­séð er að end­ur­greiðsla skatts sem telur tugi millj­arða geti farið fram í apríl, ef þetta heldur áfram. Að sama skapi eru margir sem verða af launum sínum sem vinna hjá þeim rík­is­stofn­unum sem í hlut eiga.

Trump virð­ist hreint ekki vilj­ugur í samn­inga­við­ræður við demókrata sem hafa lagt fram hug­myndir um auknar fjár­veit­ingar við landamæra­eft­ir­lit. Mót­fram­boð demókrata í efri deild þings­ins var fyrir rúmu ári 1,6 billjónir, en sú til­laga þótti umdeild meðal demókrata. Ekki er ljóst hvort að demókratar hafi nú teflt fram ein­hverri mála­miðlun.

Gæti lýst yfir neyðarástandi

Hvort Trump vilji taka slag­inn, slags­ins vegna eða til að halda fylgis­tölum sínum virð­ist hann ekki ætla að bakka með kröfu um vegg­inn. Meðal ann­ars sagði Trump að hann gæti lýst yfir neyð­ar­á­standi og byggt vegg­inn án sam­þykkt þings­ins og í óþökk þess. Tækni­lega getur hann það á grund­velli stjórn­ar­skrár­innar, en það vekur upp lög­fræði­legar vanga­veltur um hvað þýðir neyð­ar­á­stand í skiln­ingi stjórn­ar­skrár­innar.

Til­gangur veggs­ins að sögn Trump er að stöðva flæði ólög­legra inn­flytj­enda og flæði fíkni­efna inn í landið en jafn­framt hryðju­verk. Engin gögn eða upp­lýs­ingar hafa stutt síð­ustu full­yrð­ingu Trumps og sér­fræð­ingar telja að vegg­ur­inn muni ekki þjóna þeim til­gangi sem að er stefnt. Trump hélt því jafn­framt fram í kosn­inga­bar­átt­unni að Mexíkó myndi borga fyrir vegg­inn en ekk­ert slíkt er í far­vatn­inu. Nancy Pelosi, leið­togi demókrata í þing­inu, hefur sagt vegg­inn sið­lausan og demókratar eru á móti fram­kvæmd­inni.

En störu­keppni stendur yfir og óvissa um hversu lengi hún mun vara. Trump sýnir með þessu að hann hræð­ist ekki að mis­beita valdi til að fá sínu fram­gengt, enda er þessi aðgerð ekk­ert nema vald­níðsla. Með þessu reynir Trump að fram hjá leik­reglum sem eru settar til þess að knýja á um aukið sam­ráð, hluti af sam­spili lög­gjafar- og fram­kvæmd­ar­valds. Hvort hann byggi nýja veggi í kringum sig með kröf­unni um vegg­inn verður að koma í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta