Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bandaríkin föst í spennitreyju Trumps

Bandaríkin föst í spennitreyju Trumps
Donald Trump fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna

Banda­rísk stjórn­mál eru í spenni­treyju þar sem ekk­ert bólar á sam­komu­lagi á milli demókrata og repúblik­ana um fjár­lög. Trump stendur fastur á kröfu sinni um að fá 5,7 millj­arða doll­ara inn á fjár­lög til að reisa múr á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó en demókratar segja það ekki koma til greina. Á sama tíma sitja um 800 þús­und rík­is­starfs­menn heima þar sem loka hefur þurft fjölda rík­is­stofn­ana vegna skorts á fjár­fram­lögum.

Trump ávarp­aði banda­rísku þjóð­ina á þriðju­dags­kvöld þar sem hann freist­aði þess að afla kröfu sinni um múr­inn stuðn­ings. Jafnvel var búist við að hann myndi lýsa yfir neyð­ar­á­standi sem myndi gera honum kleift að sneiða fram hjá þing­inu og útdeila fjár­munum varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­is­ins beint til múrs­ins. Það gerði hann þó ekki, heldur dró hann upp svarta mynd af ástand­inu á landa­mær­unum og sagði að þar ætti mann­úð­ar­krísa sér stað. Þess vegna væri brýn þörf á að reisa múr á landa­mær­unum. For­set­inn hefur reyndar dregið í land til að reyna að þókn­ast demókrötum og talar nú um að reisa stál­þil í stað stein­veggs en það virð­ist engu breyta. Fjöl­miðlar vest­an­hafs segja að ekk­ert nýtt hafi komið fram í máli Trumps, heldur hafi hann ein­fald­lega end­ur­tekið fjöl­margar rang­færslur sem hann hefur áður haft uppi um málið. Trump virt­ist sjálfur hafa litla sann­fær­ingu fyrir ávarp­inu því New York Times segir að Trump hafi sagt sjón­varps­mönnum fyrir útsend­ingu að hann teldi  ávarpið, sem og heim­sókn að landa­mær­unum í gær, engu skila en að ráð­gjafar hans hafi þrýst mjög á hann.

Fjár­veit­ingar til fjölda rík­is­stofn­ana runnu út þann 21. des­em­ber og sam­kvæmt banda­rískum lögum fá þær ekki fjár­magn til að starfa fyrr en þingið hefur veitt til þeirra meira fé á fjár­lögum. Um 800 þús­und rík­is­starfs­menn sitja því heima án þess að fá greidd laun. Það munu þeir gera þangað til sam­komu­lag á milli flokk­anna næst. Ekkert miðar á þá átt. Donald Trump hefur sagst til­bú­inn að hafa stofn­an­irnar lok­aðar í mán­uði, jafn­vel ár. Demókratar sem um ára­mótin tóku völdin í full­trúa­deild­inni, hafa sam­þykkt frum­vörp sem tryggir stofn­un­unum fjár­veit­ingu en til þess að þau nái í gegn að ganga þarf sam­þykki öld­unga­deild­ar­innar. Þar stjórna repúblikanar og hefur leið­togi þeirra, Mitch McConnell, hafnað því að taka frum­vörpin til með­ferðar.

Tíminn vinnur með demókrötum í þessu máli. Kannanir sýna að meiri­hluti kjós­enda telur Trump ábyrgan fyrir lok­un­inni og þing­menn innan raða repúblik­ana eru farnir að ókyrr­ast og tala jafn­vel um að kjósa með frum­vörpum demókrata. En óvíst er að þeir fái tæki­færi til þess. Trump hefur lagt allt undir í þess­ari deilu og það yrði þess vegna mik­ill per­sónu­legur ósigur fyrir hann ef hann fær ekki málið í gegn. Eða eins og öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Lindsey Graham orð­aði það: „Ef við förum á bak við for­set­ann í þessu máli yrðu það enda­lok for­seta­tíðar hans og enda­lok [Repúblík­ana]flokks­ins.“

Lokunin gæti orðið sú lengsta í sögunni

Lokun rík­is­stofn­ana hefur nú staðið yfir í 20 daga og teygi hún sig fram yfir helgi verður hún sú lengsta í sögu Banda­ríkj­anna. Flokk­arnir höfðu náð sam­komu­lagi á þingi fyrir ára­mót en Trump kom í veg fyrir að það næði í gegn að ganga þar sem það hefði ekki tryggt fjár­magn til bygg­ingu múrs­ins, hans helsta kosn­inga­lof­orðs. Lokunin hefur ekki bara áhrif á þá 800 rík­is­starfs­menn sem ann­að­hvort eru sendir í leyfi eða látnir vinna án þess að fá greitt. Þannig er óvíst hvort skatt­ur­inn geti end­ur­greitt þeim millj­ónum manna sem eiga von á end­ur­greiðslu, þjóð­garðar eru víða lok­aðir og þeir sem reiða sig á mat­ar­að­stoð frá hinu opin­bera gætu setið uppi með ekki neitt innan fárra vikna. Þá sitja fjöl­mörg önnur mik­il­væg verk­efni á hak­anum enda aðeins allra nauð­syn­leg­ustu verk­efni innt af hendi.

Múrinn leysir ekki öll vandamál

Bygging múrs­ins, eða stál­þils­ins eins og Trump hefur talað um und­an­farið, snýst orðið að stórum hluta um egó for­set­ans fremur en raun­veru­legt nota­gildi enda morg­un­ljóst að engin „mann­úð­ar­krísa“ á sér stað á landa­mær­unum líkt og Trump heldur fram. Þeim sem fara ólög­lega yfir landa­mærin hefur fækkað jafnt og þétt und­an­farna tvo ára­tugi, meiri­hluti þess heróíns sem streymir yfir landa­mærin kemur í gegnum landamæra­stöðvar og utan­rík­is­ráðu­neytið segir engar trú­verð­ugar vís­bend­ingar um að grun­aðir hryðju­verka­menn hafi farið ólög­lega yfir landa­mærin, þrátt fyrir full­yrð­ingar for­set­ans um annað. Þá eru aðrar hindr­anir í veg­inum, nátt­úru­legar, laga­legar og efna­hags­legar. Kostn­að­ur­inn er gríð­ar­legur og mun lenda á banda­rískum skatt­greið­endum en ekki Mexíkó eins og Trump full­yrti, ríkið þarf að kaupa gríð­ar­legt magn lands undir múr­inn og lög ein­stakra ríkja, svo sem Kali­forníu, flækja einnig fram­kvæmd­ina.

Íhugar að lýsa yfir neyðarástandi

Trump gæti farið þá leið að lýsa yfir neyð­ar­á­standi til að tryggja fjár­mögnun múrs­ins. Slíkt myndi tryggja honum aukin völd umfram þau sem hann hefur dags­dag­lega, meðal ann­ars til að beina fjár­munum í bygg­ingu hern­að­ar­mann­virkja. Múr á landa­mær­unum gæti flokk­ast undir slíkt mann­virki. Slíkt er í sjálfu sér ein­falt og eru all­nokkur for­dæmi þess að for­setar hafi lýst yfir neyð­ar­á­standi, en það hefur þá iðu­lega verið gert í tengslum við raun­veru­legar krísur og í sátt við þingið. Þótt for­set­anum sé í sjálfs­vald sett að lýsa yfir neyð­ar­á­standi, eitt­hvað sem hann hefur lýst yfir að komi vel til greina, þá hefur hann verið var­aður við því þar sem and­stæð­ingar Trumps myndu án efa láta reyna á lög­mæti ákvörð­un­ar­innar fyrir dóm­stólum. Þingið hefur einnig völd til að aft­ur­kalla yfir­lýs­ingu for­set­ans, en til þess þyrfti sam­þykki beggja deilda og ólík­legt að repúblikanar í öld­unga­deild­inni tækju afstöðu gegn for­seta sínum.

Almenningsálitið gegn Trump

Sem stendur er fátt sem bendir til þess að flokk­arnir og for­set­inn kom­ist að sam­komu­lagi um að binda enda á lok­un­ina. Demókratar hafa efni á að bíða enda sýna kann­anir að meiri­hluti kjós­enda, 51 pró­sent, kennir Trump um lok­un­ina og hefur sú tala hækkað eftir því sem liðið hefur á krís­una. 32 pró­sent kjós­enda kennir demókrötum um. Einungis þriðj­ungur seg­ist styðja kröfu Trumps um að 5,7 millj­örðum verði varið í bygg­ingu múrs­ins þótt til­lagan njóti mik­ils stuðn­ings á meðal kjós­enda repúblik­ana. Sömu­leiðis hafa vin­sældir for­set­ans dalað frá því lok­unin hófst. Demókratar hafa því engan hag af því að láta undan kröfum Trumps, rétt eins og Trump hefur engan áhuga á því að fara inn í kosn­ing­arnar 2020 án þess að hafa reist svo mikið sem einn metra af 1.600 kíló­metra múr­num sem hann lof­aði kjós­endum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta