Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hinir ofurríku aldrei haft það betra

Hinir ofurríku aldrei haft það betra
Mynd/Pixabay

Ójöfn­uður í heim­inum er orð­inn stjórn­laus þar sem 26 ein­stak­lingar eiga orðið meiri eignir en helm­ingur fátæk­ustu jarð­ar­búa. Þeir ofur­ríku verða sífellt rík­ari og sölsa undir sig eignir á meðan hinir fátæk­ustu drag­ast aftur úr. Þessi aukni ójöfn­uður veldur því meðal ann­ars að æ fleiri and­lýð­ræð­is­legir þjóð­ar­leið­togar kom­ast til valda.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu bresku sam­tak­anna Oxfam um ójöfnuð í heim­inum. Skýrslan er gefin út ár hvert í aðdrag­anda ráð­stefnu Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins í Davos í Sviss, þar sem helstu áhrifa­menn heims koma saman til að ræða helstu við­fangs­efni alþjóða­mála hverju sinni.

Í skýrsl­unni er það rakið hvernig auk­inn ójöfn­uður hafi eitrað stjórn­mál margra landa. Í löndum eins og Brasilíu, Banda­ríkj­unum, Fil­ipps­eyjum og víða í Evrópu hafi kom­ist til valda menn sem berj­ast gegn lýð­ræð­isum­bótum og mál­frelsi. Í stað þess að minnka bilið milli ríkra og fátækra beini þessir menn spjótum sínum að inn­flytj­endum, minni­hluta­hópum, konum, öðrum þjóðum og fátækum. Á það er bent að í þeim löndum þar sem ójöfn­uður er mik­ill ríki minna traust í garð stofn­ana og sam­borg­ara og glæpa­tíðni er hærri. Tengsl eru á milli ójöfn­uðar ann­ars vegar og streitu og minni lífs­ham­ingju hins vegar. Þá hefur ójöfn­uður mikil áhrif á lífslíkur. Þannig mega þeir sem búa í fátæk­ustu hverfum Lundúna búast við að lifa að jafn­aði sex árum skemur en íbúar í rík­asta hluta borg­ar­innar. Í Sao Paolo í Brasilíu er mun­ur­inn allt að 25 ár.

Skýrslu­höf­undar beina þremur til­mælum til rík­is­stjórna heims­ins. Í fyrsta lagi að tryggja öllum íbúum ókeypis grunn­þjón­ustu – heilsu­gæslu, menntun og aðra almanna­þjón­ustu. Hætta verði að einka­væða almanna­þjón­ustu og tryggja öllum eft­ir­laun, barna­bætur og aðra félags­lega vernd. Sér­stak­lega þurfi að tryggja að þessi þjón­usta nýt­ist konum og stúlkum. Í öðru lagi að létta byrð­inni af konum sem vinna fjölda ólaun­aðra vinnu­stunda á heim­il­inu á hverjum degi. Þetta sé hægt að gera með því að fjár­festa í innviðum eins og vatns­veitu, raf­orku­kerfi og barna­gæslu. Í þriðja og síð­asta lagi leggur skýrslan til sann­gjarn­ari skatt­heimtu þar sem hætt verði að moka undir auð­uga ein­stak­linga og stór­fyr­ir­tæki sem und­an­farna ára­tugi hafa notið sífellt minni skatt­byrði. Þá verði að koma í veg fyrir stór­felld skattaund­an­skot þess­ara sömu hópa.

Góðæri milljarðamæringanna

Í skýrsl­unni er rakið að þau 10 ár sem liðin eru frá fjár­málakrepp­unni hafi verið auð­mönnum ein­stak­lega hag­stæð því fjöldi millj­arða­mær­inga á þessu tíma­bili hafi tvö­fald­ast. Bara í fyrra hafi eignir millj­arða­mær­inga auk­ist um 900 millj­arða doll­ara, eða um 2 og hálfan millj­arð á dag. Á sama tíma hafi auður fátæk­ari helm­ings mann­kyns, 3,8 millj­arða manna, dreg­ist saman um 11 pró­sent. Auðurinn heldur áfram að safn­ast á fárra hendur. Þannig áttu 26 rík­ustu ein­stak­lingar jarðar sam­an­lagt meiri eignir en fátæk­ari helm­ing­ur­inn. Sem dæmi myndi 1 pró­sent af eignum Jeff Bezos, eig­anda Amazon og rík­asta manns heims, duga fyrir árlegum útgjöldum Eþíópíu þar sem 105 millj­ónir manna búa.

Milljarðar búa við fátækt

Á hinum enda auð­legð­ar­ska­l­ans er þró­unin bæði jákvæð og nei­kvæð. Eitt mesta afrek síð­ustu ára er að tek­ist hefur að lyfta millj­ónum manna upp úr sára­fá­tækt, eins og hún er skil­greind af Alþjóða­bank­anum (þeir sem lifa á 1,90 doll­urum eða minna á dag). Aftur á móti eru vís­bend­ingar um að hægt hafi á þró­un­inni og að sára­fá­tækt hafi auk­ist í sunn­an­verðri Afríku. Þá þéna 3,4 millj­arðar manna undir 5,50 doll­urum á dag sem eru fátækt­ar­við­mið Alþjóða­bank­ans fyrir milli­tekju­lönd í efra þrepi. 262 millj­ónir barna hafa ekki aðgang að menntun og árlega deyja 10 þús­und manns vegna þess að þau hafa ekki aðgang að heilsu­gæslu.

Álögur á hina ofurríku fara hríðlækkandi

Eitt mesta órétt­lætið, að mati skýrslu­höf­unda, felst í því hvernig hinir ríku eru látnir bera sífellt minni byrðar í skatt­heimtu. Er full­yrt að skatt­byrði á rík­ustu ein­stak­ling­ana og stór­fyr­ir­tæki hafi ekki verið lægri í ára­tugi. Þannig hafi tekju­skatts­pró­sentan á þá rík­ustu farið hríð­lækk­andi rétt eins og fyr­ir­tækja­skattur og fjár­magnstekju­skattur og erfða­fjár­skattur ann­að­hvort afnum­inn eða hverf­andi. Sem dæmi hafi tekju­skattur á hæsta tekju­hóp­inn í rík­ustu löndum heims verið að með­al­tali 62 pró­sent árið 1970 en fallið niður í 38 pró­sent árið 2013. Í þró­un­ar­lönd­unum er með­al­talið 28 pró­sent. Í sumum löndum, svo sem Brasilíu og Bret­landi, borga fátæk­ustu 10 pró­sentin hærra hlut­fall launa sinna í skatt en rík­ustu 10 pró­sentin. Þá er áætlað að skattaund­an­skot stór­fyr­ir­tækja og hinna ofur­ríku kosti þró­un­ar­ríki um 170 millj­arða doll­ara á ári.

Umdeild aðferðafræði

Þrátt fyrir að skýrsla Oxfam veki alla jafna mikla athygli, þá hefur aðferða­fræðin á bak við hana verið harð­lega gagn­rýnd. Oxfam byggir sam­an­tekt sína á nettó­eignum fólks, það er að allar eignir, svo sem fast­eignir og hluta­bréf eru tekin saman og frá þeirri upp­hæð eru skuldir dregnar frá. Tekjur eru ekki teknar með í reikn­ing­inn. Gallinn við þessa aðferða­fræði er sú að nýút­skrif­aður sér­fræð­ingur frá Harvard, sem jafn­vel er með umtals­verðar tekjur en há náms­lán á bak­inu, er sam­kvæmt þessum útreikn­ingum í verri stöðu en mann­eskja í sunn­an­verðri Afríku sem er með nán­ast engar tekjur en skuldar þó ekki neitt. Talsmenn Oxfam segja að þrátt fyrir þessa ann­marka sé heild­ar­myndin skýr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta