Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svo miklu meira en fótboltaleikur

Mikið verður um dýrðir í Atlanta á sunnu­dag­inn þegar leik­ur­inn um Ofur­skál­ina svoköll­uðu, Super Bowl, fer fram. Þetta er í 53. skipti sem leik­ur­inn fer fram en í ár verða það New England Patriots og Los Angeles Rams sem keppa um tit­il­inn eft­ir­sótta. En fyrir marga er leik­ur­inn sjálfur algjört auka­at­riði því umstangið í kringum leik­inn er slíkt að allir geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi.

Svo miklu meira en fótboltaleikur
|||

Það hefur ekki vantað drama­tík­ina í kringum leik­inn í ár, frekar en fyrri ár. Hrútarnir frá Los Angeles komust í úrslita­leik­inn eftir ein­hverja umdeild­ustu dóm­ara­á­kvörðun fyrr og síðar, því í und­an­úr­slita­leiknum gegn New Orleans Saints braut varn­ar­maður Rams aug­ljós­lega á sókn­ar­manni Saints og hafði þar með lík­legt vall­ar­mark af Saints á ögur­stundu. En á ein­hvern óskilj­an­legan hátt dæmdu dóm­ar­arnir ekk­ert og hafa deilur um atvikið meira að segja endað inni á gólfi Banda­ríkja­þings.

Flestra augu munu vafa­laust bein­ast að leik­stjórn­anda New England Patriots, goð­sögn­inni Tom Brady. Þar er á ferð einn allra mesti sig­ur­veg­ari banda­rískra íþrótta fyrr og síðar. Þetta verður í 9. skipti sem þessi 41 árs gamli leik­stjórn­andi leiðir lið sitt í Super Bowl og fimm sinnum hefur hann lyft bik­arnum. Það væri óvinn­andi vegur að telja upp öll þau met sem hann hefur sett á ferl­inum. Brady er hins vegar langt í frá óum­deildur, ann­að­hvort elskar fólk hann eða hatar af lífi og sál. Ekkert þar á milli. Full­komin hetja eða skúrkur í leik sem þessum.

Vin­sældir amer­íska fót­bolt­ans hafa færst í vöxt hér á landi und­an­farin ár og víða hefur mynd­ast hefð fyrir Super Bowl-veislum þar sem kjúklinga­vængir, nachos og hvers kyns amer­ískar kræs­ingar eru í hávegum hafðar. Eins og rakið er hér til hliðar ættu allir að fá eitt­hvað við sitt hæfi, burt­séð frá því hvort þeir hafi áhuga á amer­ískum fót­bolta eða ekki. Leik­ur­inn hefst klukkan 23.30 á sunnu­dags­kvöld.

Stærsti sjón­varps­við­burður Banda­ríkj­anna
Super Bowl er lang­vin­sæl­asti sjón­varps­við­burð­ur­inn á ári hverju í Banda­ríkj­unum. Síðustu árin hafa á bil­inu 100 til 114 milljón manns horft á leik­inn í beinni útsend­ingu og ef horft er á vin­sæl­ustu sjón­varps­við­burði Banda­ríkj­anna frá upp­hafi voru það aðeins tungl­gangan og inn­rásin í Írak sem hafa dregið að sér fleiri áhorf­endur en þessir úrslita­leikir. Auk þess verða um 75 þús­und manns við­staddir leik­inn sjálfan á Mercedes Benz-leik­vangnum í Atlanta. Það kostar Atlanta-borg 46 millj­ónir doll­ara að hýsa við­burð­inn en á móti reikna borg­ar­yf­ir­völd að fá til baka 400 millj­óna inn­spýt­ingu í hag­kerfið. Aug­lýs­inga­tekjur í kringum leik­inn eru áætl­aðar um 380 millj­ónir doll­ara.

Ofur­skálin er stærsti sjón­varps­við­burður Banda­ríkj­anna.

Hálf­leiks­sýn­ingar sem rata í sögu­bæk­urnar
Það er eng­inn Super Bowl-leikur án stór­feng­legrar hálf­leiks­sýn­ingar. Það hefur þó ekki alltaf verið þannig. Lengi vel voru sýn­ing­arnar oftar en ekki bundnar ákveðnum þemum, þóttu oft hall­æris­legar eða bein­línis hrút­leið­in­legar. Árið 1993 steig Michael Jackson á sviðið í leik­hléi með ein­hverja eft­ir­minni­leg­ustu sýn­ingu fyrr og síðar og breytti leiknum algjör­lega. Síðan þá hafa lista­menn á borð við Rolling Stones, U2, Aer­osmith, Bruce Spring­stein, Beoyncé, Coldplay, Prince og Paul McCartney tryllt lýð­inn. Og hver man ekki eftir því þegar Justin Tim­berlake ber­aði annað brjóst Janet Jackson og banda­ríska þjóðin gekk af göfl­unum? Í ár varð löð­ur­poppsveitin Maroon 5 fyrir val­inu ásamt Travis Scott og Big Boi úr Outkast, eftir að Pink og Rihanna höfðu afþakkað. Það verður svo drottn­ing sálar-tón­list­ar­innar, Gladys Knight, sem syngur þjóð­söng­inn fyrir leik.

Hver man ekki eftir því þegar Justin Tim­berlake ber­aði annað brjóst Janet Jackson og banda­ríska þjóðin gekk af göfl­unum?

Aug­lýs­ing­arnar ekki síðri en leik­ur­inn
Super Bowl er dýr­asti aug­lýs­inga­gluggi heims og kostar það um 5,2 millj­ónir doll­ara að birta 30 sek­únda aug­lýs­ingu meðan á leiknum stendur. Það gera tæp­lega 624 millj­ónir króna. Enda hafa Super Bowl-aug­lýs­ingar orðið að sér­stakri list­grein á und­an­förnum árum. Ekkert er til sparað við gerð aug­lýs­ing­anna sem oftar en ekki skarta helstu stór­stjörnum sam­tím­ans hverju sinni. Fyrir flest fyr­ir­tækin er pen­ing­unum vel varið. Ekki bara ná aug­lýs­ing­arnar til ríf­lega 100 millj­óna sjón­varps­á­horf­enda heldur fá aug­lýs­ing­arnar heil­mikla umfjöllun bæði fyrir og eftir leik. Þær best heppn­uðu fá svo mikla dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum. Sú aug­lýs­ing sem vakið hefur mesta umtalið þetta árið er frá Stella Artois, en hún skartar Jeff Bridges í hlut­verki hins ódauð­lega The Dude úr kvik­mynd­inni Big Lebowski og Söruh Jessicu Parker sem Carrie Bradshaw úr Sex and the City.

Sú aug­lýs­ing sem vakið hefur mesta umtalið þetta árið er frá Stella Artois, en hún skartar Jeff Bridges í hlut­verki hins ódauð­lega The Dude úr kvik­mynd­inni Big Lebowski og Söruh Jessicu Parker sem Carrie Bradshaw úr Sex and the City.

Kaupa bjór fyrir 600 millj­ónir doll­ara
Allt þetta umstang hefur að sjálf­sögðu alls kyns hlið­ar­á­hrif og veltir Super Bowl-efna­hag­ur­inn millj­örðum doll­ara. Það er hefð að gera vel við sig í mat og drykk yfir Super Bowl. Áætlað er að Banda­ríkja­menn eyði um 710 millj­ónum doll­ara í áfengi þennan dag­inn, þar af 600 millj­ónum í bjór. Að með­al­tali eyðir hver sjón­varps­á­horf­andi 82 doll­urum í mat og drykk yfir leiknum. Það er hefð að veðja á úrslit leiks­ins og er áætlað að Banda­ríkja­menn leggi allt að 4 millj­arða doll­ara undir í veð­mál á leik­inn. En það eru ekki allir sem græða því margir vinnu­staðir munu láta á sjá þar sem áætlað er að 14 millj­ónir manna munu hringja sig inn veika á mánu­dag­inn, dag­inn eftir leik­inn stóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta