Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einstæð móðir geldur andstöðuna við Pútín dýru verði

Anastasia Shevchenko, ein­stæð þriggja barna móðir, er fyrsta mann­eskjan í Rúss­landi sem sætir ákæru á grund­velli alræmdra laga um „óæski­leg sam­tök“. Mál Anastasiu er enn ein birt­ing­ar­myndin í linnu­lausri her­ferð Vladímírs Pútín og stjórn­valda í Kreml gegn tján­ing­ar­frelsi í land­inu.

Einstæð móðir geldur andstöðuna við Pútín dýru verði
|Alda Rose Cartwright

Þann 21. jan­úar réð­ust lög­reglu­menn í borg­unum Rostov-on-Don og Kazan inn á heim­ili sex með­lima sam­taka sem kalla sig Opið Rússland. Anastasia Shevchenko var í þeim hópi og var leitað hátt og lágt á heim­ili hennar og flettu lög­reglu­menn meðal ann­ars í skóla­bókum barna hennar í leit að sönn­un­ar­gögnum. Tveimur dögum síðar var Anastasia úrskurðuð í stofu­fang­elsi, henni meinað að tjá sig við nokkurn mann utan heim­ilis hennar og hún látin bera ökkla­bönd svo stjórn­völd gætu fylgst með ferðum hennar.

Málið tók nýja stefnu fyrir tveimur vikum þegar Alina, 17 ára dóttir Anastasiu, var flutt fár­veik á spít­ala. Yfirvöld neit­uðu henni í fyrstu að heim­sækja hana á spít­al­ann en gáfu sig þó á end­anum. Það mátti ekki tæpara standa því aðeins nokkrum klukku­stundum eftir að Anastasia kom á spít­al­ann var Alina látin. Þetta varð til þess að mál Anastasiu komst aftur í hámæli og á sunnu­dag­inn söfn­uð­ust hund­ruð stuðn­ings­manna Anastasiu saman í níu borgum víðs vegar um Rússland og mót­mæltu. Að minnsta kosti níu voru hand­teknir í mót­mæl­unum.

Verði Anastasia fundin sek á hún yfir höfði sér allt að sex ára fang­elsi og him­in­háar fjár­sektir. Annar með­limur Opins Rúss­lands, Roman Zaitsev, var svo hand­tek­inn í lok jan­úar og ákærður á grund­velli lag­anna um óæski­leg sam­tök. Hans glæpur var að deila fréttum Opins Rúss­lands af máli Anastasiu á sam­skipta­miðlum.

Kerfisbundnar aðgerðir gegn tjáningarfrelsi

Lögin um óæski­leg sam­tök (Russian undes­ira­ble organizations law) voru und­ir­rituð af Vladímír Pútín, Rúss­lands­for­seta í maí 2015 og var þeim ætlað að fylgja eftir lögum frá árinu 2012 um útlenda útsend­ara (Russian for­eign agent law). Lögin gefa sak­sóknurum völd til að úrskurða útlensk og alþjóð­leg félaga­sam­tök „óæski­leg“ í Rúss­landi og binda enda á starf­semi þeirra án dóms­úr­skurðar. For­svars­menn þeirra sam­taka sem virða skip­anir stjórn­valda að vettugi eiga yfir höfði sér 2 til 6 ára fang­elsi og háar fjár­sektir. Áður hafði öllum sam­tökum sem höfðu tengsl við erlenda aðila eða þáðu fjár­veit­ingar erlendis frá verið gert að skrá sig á lista yfir útlenda útsend­ara sem hafði ýmiss konar íþyngj­andi áhrif á starf­semi þeirra.

Fjölmörg samtök hætt starfsemi

Bæði lögin hafa orðið til þess að mörg félaga­sam­tök, í mörgum til­fellum gras­rót­ar­sam­tök, hug­veitur eða alþjóð­leg sam­tök sem láta sig hvers kyns mann­rétt­indi varða, hafa neyðst til að draga saman seglin eða jafn­vel hætta starf­semi alfarið. Vel á annað hund­rað félaga­sam­tök hafa ratað á lista yfir útlenda útsend­ara, fæst þeirra sjálf­viljug, og á fjórða tug hafa hætt starf­semi. Lögin frá 2015 gefa sak­sóknurum fullt svig­rúm til að ráð­ast gegn sam­tökum sem þeir telja ógn við rúss­neska ríkið, í mjög víðu sam­hengi. Þeim sam­tökum sem telj­ast óæski­leg er bannað að halda fjölda­sam­komur, dreifa hvers kyns upp­lýs­ingum hvort sem er á prenti, á Netinu eða í gegnum fjöl­miðla, og bönkum og öðrum fjár­mála­stofn­unum er óheim­ilt að eiga í við­skiptum við þau. Lög­reglu­að­gerðir gegn félaga­sam­tökum eru tíðar og oftar en ekki eru frétta­menn og upp­tökulið frá rík­is­fjöl­miðlum með í för.

Fjölmiðlar einnig í sigtinu

Á meðal sam­taka undir smá­sjá rúss­neskra stjórn­valda eru Amnesty International, Transparency International og Human Rights Watch. Open Society-sam­tök­unum sem studd eru af George Soros var gert að loka skrif­stofum sínum í Rúss­landi árið 2015 og jafn­vel Norræna ráð­herra­nefndin gerði slíkt hið sama eftir að hafa lent á list­anum. Eina óháða fyr­ir­tæk­inu í Rúss­landi sem sá um gerð skoð­ana­kanna var sömu­leiðis bætt á list­ann rétt fyrir þing­kosn­ing­arnar 2016 og skömmu eftir að hafa birt nið­ur­stöður könn­unar sem sýndu minnk­andi stuðn­ing við stjórn­mála­flokk Pútíns. Lögin um útlenda útsend­ara voru útvíkkuð árið 2017 þannig að þau náðu einnig til fjöl­miðla og hafa miðlar á borð við Voice of America og Radio Free Europe/Radio Liberty ratað á list­ann.

Gamall óvinur Pútíns snýr aftur

Opið Rússland sem Anastasia Shevchenko starf­aði fyrir berj­ast fyrir lýð­ræði og mann­rétt­indum í Rúss­landi. Stofn­andi þeirra er auð­kýf­ing­ur­inn Mikhail Khodor­kov­sky sem átti í hörðum úti­stöðum við Pútín í upp­hafi ald­ar­innar sem end­aði með því að Khodor­kov­sky var hand­tek­inn og olíu­fyr­ir­tæki hans, Yukos, leyst upp og selt í pörtum. Hann kom Opnu Rúss­landi aftur á fót árið 2014 eftir að rúss­nesk stjórn­völd höfðu fryst allar banka­inni­stæður sam­tak­anna árið 2006. Árið 2017 flokk­uðu rúss­nesk stjórn­völd sam­tökin sem óæski­leg, vef­síðu þeirra var lokað og þeim bannað að starfa í Rúss­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife