Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dýrkeyptur svikahrappur

Fölsuð rann­sókn breska lækn­is­ins Andrew Wakefield, sem birt­ist í lækna­tíma­rit­inu Lancet árið 1998, er ein­hver afdrifa­rík­asta og lífseig­asta svika­mylla nútíma­lækn­is­fræði.

Dýrkeyptur svikahrappur

Í þeirri rann­sókn var haldið fram að tengsl væru á milli bólu­efna gegn misl­ingum (MMR) og ein­hverfu. Þrátt fyrir að rann­sóknin hafi margoft verið hrakin, Wakefield fund­inn sekur um að falsa nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar og hann sviptur lækna­leyfi árið 2011, er mýtan sem hann setti fram afar lífseig á meðal and­stæð­inga bólu­setn­inga.

Síðan greinin var birt hafa vís­inda­menn gert tugi rann­sókna til að sann­reyna nið­ur­stöður Wakefields og engin þeirra hefur sýnt sömu nið­ur­stöðu. Nú síð­ast í þess­ari viku birt­ust nið­ur­stöður danskrar rann­sóknar sem er ein sú umfangs­mesta til þessa og náði til yfir 650 þús­und barna sem voru fædd á árunum 1999 til 2010.

Þær sýna svart á hvítu að ekki fund­ust nein tengsl á milli bólu­efna (MMR) og ein­hverfu. Þvert á móti voru óbólu­sett börn 17 pró­sent lík­legri til að grein­ast með ein­hverfu en bólu­sett börn. „For­eldrar ættu ekki að sleppa því að bólu­setja börnin sín af ótta við ein­hverfu. Hættan er sú að misl­ingar láti aftur á sér kræla og við sjáum nú þegar merki þess með far­öldrum víðs vegar um heim­inn,“ segir Dr. Anders Hviid hjá Statens Serum Institut í Kaup­manna­höfn og aðal­höf­undur rann­sókn­ar­innar.

En Wakefield er ekki af baki dott­inn og heldur áfram að reyna að græða á svika­myllu sinni. Árið 2016 sendi hann frá sér heim­ilda­mynd­ina „Vaxxed: From Cover Up to Catastrophe“ þar sem enn er alið á mýt­unni um ein­hverfu.

Þar er ekki í einu orði minnst á að nið­ur­stöð­urnar hafi verið fals­aðar og þær ítrekað verið hraktar. Amazon fjar­lægði í vik­unni mynd­ina úr streym­is­þjón­ustu sinni eftir að hafa verið gagn­rýnt fyrir að dreifa fölsuðum boð­skap. Önnur tækni­fyr­ir­tæki á borð við Facebook, Pinter­est og YouTube hafa heitið því að koma böndum á andróður gegn bólu­setn­ingum sem byggður er á blekk­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta