Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég nota bjartari liti þegar mér líður vel“

Við kíktum á vinnu­stofu Úlfs Karls­sonar lista­manns sem leigir rými á Hólma­slóð þar sem hann ver löngum stundum með pensl­ana á lofti. Vinnu­stofan er ekki stór en verkin hans eru stór og Úlfur seg­ist verja um mán­uði í að gera hvert og eitt þeirra en sum eru mun lengri tíma í vinnslu.

„Ég nota bjartari liti þegar mér líður vel“

Nokkur stór striga­verk liggja upprúlluð á gólf­inu og Úlfur fer að sýna okkur þau eitt af öðru á meðan Aldís ljós­mynd­ari fangar stemn­ing­una á vinnu­stof­unni.

Verkin hans Úlfs vísa oft í kvik­myndir og það sem er að ger­ast í heim­inum og sjá má margar heims­þekktar per­sónur í verkum hans; box­ara, stjórn­mála­menn, leik­ara o.fl. „Litirnir í mynd­unum segja til um hvernig mér líður þegar ég er að mála þær. Fyrir tveimur árum not­aði ég mikið bláa og gula liti, þar á undan var ég mikið í svörtu og rauðu. Síðasta sumar og vetur var erf­ið­ara tíma­bil hjá mér og þá urðu lit­irnir grárri. Ég nota bjart­ari liti þegar mér líður vel en það er ekki með­vituð ákvörðun heldur ger­ist það bara.“

Var það alltaf markmið hjá þér að verða listamaður?

„Nei, ég get ekki sagt það. Ég byrj­aði í kvik­mynda­gerð, þegar ég var í Garða­skóla gerði ég stutt­myndir með vini mínum, við vorum bara að leika okkur en svo komst ein þeirra á kvik­mynda­há­tíð í New York, þá vorum við félag­arnir bara svona 14 ára. Það hvatti okkur til að taka þetta alvar­lega og ég fór svo í Kvik­mynda­skól­ann 2006-2008. Í fram­hald­inu fór ég í Mynd­list­ar­skól­ann á Akureyri bara vegna þess að mamma hvatti mig til þess, hún er sjálf mynd­list­ar­maður.

Mynd / Aldís Páls­dóttir

Þá fór ég að gera mínimal­ísk verk og áhug­inn kvikn­aði. Svo komst ég inn í mynd­list­ar­skóla í Svíþjóð og pláss­inu fylgdi vinnu­stofa og því fylgdi frelsi sem ég hafði ekki kynnst áður. Ég hélt svo sýn­ingu og seldi tvö verk og síðan hef ég ekki getað hætt að mála. Ég útskrif­að­ist frá Valand Academy of Art í Gauta­borg árið 2012 og hef verið á Íslandi meira og minna síðan, fór að vísu til Strass­burg að mála í nokkra mán­uði síð­asta vetur og hef haldið nokkrar sýn­ingar. Næsta sýn­ing verður í Vín­ar­borg í maí á þessu ári.“

Ertu með mörg verk í vinnslu í einu eða einbeitir þú þér að einu?

„Ég er stundum með tvö í vinnslu; eitt hér á vinnu­stof­unni og eitt í bíl­skúrnum heima, þá mála ég hér á dag­inn og oft í skúrnum á morgn­ana og á kvöldin. Þetta getur verið pínu­lítið vesen,“ segir hann og brosir.

Lifir þú á listinni?

„Nei, ekki enn þá, ég hef alltaf verið að vinna með. Núna er ég í hálfu starfi á leik­skóla. Ég ætla ekki að gera þau mis­tök aftur að fara í 100% vinnu.“

Úlfur seg­ist verja um mán­uði í að gera hvert og eitt verk en sum eru mun lengri tíma í vinnslu.

Hvaða listamenn eru í uppáhaldi hjá þér?

„Erró hefur alla tíð verið í upp­á­haldi hjá mér, ég var einu sinni með eina mynd á sam­sýn­ingu í Hafn­ar­hús­inu á sama tíma og hann var með sýn­ingu þar í öðru rými sem mér fannst mjög skemmti­legt. Kjarval heillar mig líka.“

Hvernig nærir þú andann?

„Ég reyni að hugsa vel um mig. Fer í rækt­ina, út að hlaupa eða í sund og ég drekk eig­in­lega bara þegar ég er með opnun. Þá er stressið sem fylgir því að halda sýn­ingu liðið hjá og ég fæ mér í glas.“

Verk Úlfs eru gjarnan mjög stór.

Ljós­myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni