Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Vonlaust ef ég fékk ekki gagnrýni og bara hrós“

Við fengum að gægj­ast inn í vinnu­stofu graf­íska hönn­uð­ar­ins og teikn­ar­ans Sigríðar Rúnar sem er einna þekkt­ust fyrir verk­efnið „Líf­færa­fræði let­urs“.

„Vonlaust ef ég fékk ekki gagnrýni og bara hrós“

Ákvaðst þú á ein­hverjum tíma­punkti að verða lista­maður/teikn­ari eða gerð­ist það bara „óvart“?

Þegar ég var krakki vildi ég verða bóndi en ég var alltaf teikn­andi og þá aðal­lega dýr nátt­úr­lega. Þegar ég varð eldri og leidd­ist í skóla hugs­aði ég oft hvers vegna ég gæti ekki bara unnið ann­að­hvort við að teikna eða með dýr. Ég fór fyrst í nám í prent­smíði (graf­ískri miðlun) og er með sveins­bréf í þeim efnum og fljót­lega eftir það fór ég í Lista­há­skól­ann í graf­íska hönnun.

Í dag get ég unnið við að teikna og hanna en starfa líka með dýrum, þjálfa og tem hesta eins og vit­leys­ingur. Þetta gerð­ist síður en svo óvart, en ég hef stefnt í þessa átt frá blautu barns­beini.

Hvenær sólarhringsins finnst þér best að vinna?

Ég vinn yfir­leitt á kvöldin við að teikna og hanna, en ef ég kemst í að vinna á morgn­ana er ég afkasta­meiri. Ég glími hins vegar við að vera B- mann­eskja og finnst ekki spenn­andi að fara snemma á fætur.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Hvernig verk ertu aðallega að gera og fyrir hvað?

Ég er aðal­lega að teikna og reyni að hafa verk­efnin sem fjöl­breytt­ust. Ég frum­sýndi verkið mitt Líf­færa­fræði Leturs árið 2012 og er enn að vinna í því á ýmiss konar vett­vangi. Ég hef gaman af því að setja upp sýn­ingar og stekk á flest­öll tæki­færi sem mér gef­ast í þeim efnum.

Hvaða litir heilla þig?

Ég er hrifn­ust af and­stæðum og nota mikið svartan og hvítan.

Hvaðan færðu innblástur?

Allt getur veitt mér inn­blástur, allt frá því að fara í reið­túr að vori til þess að vafra á Netinu og skoða. Ég fer ekki á neina sér­staka staði með það í huga að fá inn­blástur þá og þegar, það bara ger­ist og þegar það ger­ist reyni ég að grípa tæki­færið.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Hefur þú alla tíð haft gaman af að teikna/mála?

Já, ég hef alla tíð haft gaman af því að teikna og þá sér­stak­lega dýr. Það sem situr fast í mér varð­andi að teikna sem krakki var að allir hrósuðu mynd­unum mínum, nema amma. Hún sagði að þær væru fínar og kom svo með gagn­rýni. Ég vil meina að það hafi hvatt mig til að teikna meira, frekar en allt hrósið.

Ég fann fyrir því sama þegar ég fór síðan í Lista­há­skól­ann og fannst von­laust ef ég fékk ekki gagn­rýni og bara hrós -það þarf jafn­vægi þarna á milli.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Hvaða listamenn eru í uppáhaldi hjá þér?

Það er breyti­legt eftir því hvernig mér líður en Björk sem lista­maður er alltaf í upp­á­haldi.

Hvar fást myndirnar þínar?

Líf­færa­fræði Leturs fæst hjá Geysi Heima, í Hönn­un­ar­safn­inu og á heima­síð­unni minni. Allar aðrar myndir fást í gegnum mig, svo ekki hika við að hafa sam­band.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Hvað er fram undan á næstu misserum?

Ég held áfram að teikna og hanna. Svo stefni ég enn þá ótrauð að því að verða bóndi með vinnu­stofu í hlöð­unni eða eitt­hvað álíka róm­an­tískt svo það er nóg að gera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni