Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pabbi greindist með alzheimer 53 ára

Hildigunnur Jón­as­dóttir ætlar að hlaupa 10 kíló­metra í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu og styrkja um leið Alzheimersamtökin en faðir hennar var aðeins 53 ára þegar hann greind­ist með sjúk­dóm­inn í fyrra. Með hlaup­inu vill hún ekki síst vekja athygli á úrræða­leysi fyrir fólk sem grein­ist svona ungt með sjúk­dóm­inn.

Pabbi greindist með alzheimer 53 ára
Hildigunnur og for­eldrar hennar

„Pabbi greind­ist með alzheimer í maí á síð­asta ári og grein­ingin end­an­lega stað­fest um haustið,“ segir Hildigunnur sem er lög­fræð­ingur að mennt. „Sjúk­dóm­ur­inn birt­ist í þeirri mynd að minni hans hefur versnað á síð­ustu árum. Hann á erfitt með að muna hluti er tengj­ast skamm­tíma­minni og þarf að skrifa niður þau verk­efni sem hann þarf að gera svo hann muni að fram­kvæma þau. Síðan er að sjálf­sögðu daga­munur á honum en það góða við pabba er að hann tekur þetta á bjart­sýn­inni.“

Annað áfall að missa vinnuna

Hildigunnur segir að ýmis úrræði vanti fyrir fólk sem grein­ist svo ungt með alzheimer og for­dómar séu miklir ekki síst þegar kemur að atvinnu. „Það vantar dag­vist­un­ar­úr­ræði fyrir þá aðila sem grein­ast ungir með sjúk­dóm­inn, stað þar sem yngra fólk með alzheimer getur hist, spjallað og gert eitt­hvað saman. Með­al­aldur er tölu­vert hár á þeim stöðum sem nú eru í boði. Pabbi sem nú er 54 ára er sem betur fer ekki kom­inn á þann stað að þurfa að nýta sér þetta en sá dagur mun koma. Einnig vantar atvinnu­úr­ræði fyrir þá sem treysta sér til.

„Fólk með alzheimer getur vel unnið, þá sér­stak­lega þeir sem grein­ast ungir og með alzheimer á byrj­un­ar­stigi eins og pabbi minn.“

Fólk með alzheimer getur vel unnið, þá sér­stak­lega þeir sem grein­ast ungir og með alzheimer á byrj­un­ar­stigi eins og pabbi minn. Mesta höggið fyrir pabba þegar hann greind­ist var að fá ekki að vinna lengur. Það eru miklir for­dómar þegar kemur að atvinnu og eins tel ég að fólk viti ekki nákvæm­lega hvað felist í þessum sjúk­dómi. Við í fjöl­skyld­unni höfum upp­lifað mjög ýkt við­brögð þegar fólk heyrir að pabbi sé kom­inn með alzheimer, eins og lífið sé búið. Það þarf að líta fram á veg­inn og líta lífið björtum augum – ekki sjá bara slæmu hlið­arnar,“ segir Hildigunnur.

Hildigunnur ásamt föður sínum í fjall­göngu í vor en hann greind­ist með alzheimer í fyrra, aðeins 53 ára gam­all.

Faðir hennar var skip­stjóri þegar hann greind­ist og missti vinn­una í kjöl­farið. „Þótt hann treysti sér ekki til að vera skip­stjóri áfram hefði hann viljað fá tæki­færi til að starfa í annarri stöðu á skip­inu. Hann hefur starfað á sjó alla sína tíð og þekkir ekk­ert annað. Þar sem þekk­ing­ar­leysi á sjúk­dómnum er til staðar þá er erfitt að finna nýja vinnu þegar maður er nýgreindur með alzheimer og hefur ekki starfað við annað en sjó­mennsku. Per­sónu­lega finnst mér að vinnu­veit­endur þurfi að hafa opn­ari hug þegar kemur að þessum sjúk­dómi og gefa fólki hið minnsta tæki­færi til að sanna sig. Það er nógu mikið áfall að vera greindur með alzheimer, hvað þá að missa vinn­una í þokka­bót.“

Mikilvægt að njóta

Hildigunnur hefur stundað hlaup í fjögur ár sér til gam­ans og heilsu­bótar og hefur auk þess verið í fjall­göngum í vetur ásamt for­eldrum sínum. Hún tekur und­ir­bún­ing­inn á gleð­inni. „Ég ætla að hlaupa 10 kíló­metra en mér hefur ekki enn tek­ist að plata ein­hvern til að hlaupa með mér. Pabbi og mamma eru svo miklir dugn­að­ar­forkar að þau ætla að hlaupa 21 kíló­metra þannig að ég hitti þau í mark­inu. Ég og for­eldrar mínir höfum gengið á eitt fjall í mán­uði síðan um ára­mótin með Fótfrá hjá Ferða­fé­lagi Íslands. Það hefur aukið úthaldið hjá manni og er mjög góður und­ir­bún­ingur fyrir hlaupið í ágúst. Annars er nú mitt plan að njóta sum­ars­ins og taka und­ir­bún­ing­inn ekk­ert of alvar­lega – tek þetta á gleð­inni,“ segir Hildigunnur að lokum.

Myndir / Aðsendar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi