Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Missti allt tímaskyn á djamminu í Reykjavík

Hin heims­þekkta hljóm­sveit Duran Duran heldur tón­leika í Laug­ar­dals­höll 25. júní næst­kom­andi. Mannlíf sló á þráð­inn til hljóm­borðs­leik­ar­ans, Nick Rhodes, sem segir með­limi sveit­ar­innar ekki getað beðið eftir að koma til lands­ins og troða upp. Enda sé orðið allt of langt liðið frá því síð­ustu tón­leikum.

Missti allt tímaskyn á djamminu í Reykjavík
Nick Rhodes hljóm­borðs­leik­ari Duran Duran.

Að sögn Nicks hefur Duran Duran engin plön um að halda aðra tón­leika í Evrópu á þessu ári fyrir utan þátt­töku á tón­list­ar­há­tíð í Danmörku í lok mán­að­ar­ins. Auk þess sem sveitin er með nokkra fyr­ir­hug­aða tón­leika í Banda­ríkj­unum í sept­em­ber. Tón­leik­arnir á Íslandi eru með öðrum orðum einu tón­leik­arnir í fullri lengd í Evrópu það sem eftir lifir árs. Eina tæki­færi aðdá­enda til að upp­lifa heilt pró­gramm með goð­unum í þessum heims­hluta. En hvernig kom eig­in­lega til að Ísland varð fyrir val­inu? „Ja, það er nú bara þannig að á síð­asta tón­leika­ferða­lag­inu okkar náðum við ekki að koma til Íslands, landið var aðeins úr leið fyrir okkur. Þannig að þegar þetta tæki­færi gafst, að halda þessa tón­leika í Reykja­vík, þá stukkum við á það. Hvað annað er hægt, Ísland er alveg geggjað,“ svarar hann og eft­ir­vænt­ingin leynir sér ekki.

Duran Duran er ein fræg­asta popp­sveit sög­unnar. Sveitin skaust upp á stjörnu­him­in­inn snemma á níunda ára­tug síð­ustu aldar og spannar fer­ill hennar því fjóra ára­tugi. Á þeim tíma hefur hún unnið til tvennra Grammy-verð­launa, tvennra Brit-verð­launa, hlotið sjö sinnum Lifetime Achievement-verð­launin auk fjöl­margra ann­arra við­ur­kenn­inga og selt yfir 100 millj­ónir platna um heim allan.

Sömu strákling­arnir inn við beinið
Nick segir að tón­leika­gestir verði ekki sviknir af tón­leik­unum í Höllinni. Meðlimir sveit­ar­innar ætli að leggja sig alla fram við að skemmta fólki með góðri blöndu af eldra og nýrra efni, meðal ann­ars með lögum af síð­ustu plötu sveit­ar­innar, Paper Gods sem hefur hlotið góðar við­tökur og fína dóma. „Hún er kannski svo­lítið til­rauna­kennd­ari en fyrri plötur. Til dæmis eru sum lögin ívið lengri en áður og svo gætir áhrifa frá hip hopi. Við erum reyndar alltaf að prófa nýja hluti í tón­list­inni, að máta okkur við alls konar tón­list­ar­stefnur en pössum okkur þó á því að halda í tón­inn sem ein­kennir Duran Duran. Platan er ein af okkar sterk­ari í seinni tíð, þótt ég segi sjálfur frá, og það var fer­lega gaman að gera hana,“ lýsir hann en flýtir sér að bæta við að aðdá­end­urnir þurfi þó engar áhyggjur að hafa af helstu smell­unum, þeir verði á sínum stað. „Eftir 40 ár höfum við úr ágæt­lega miklu efni að moða,“ segir hann og kímir.

„Þegar við fjórir bröllum eitt­hvað saman þá er eins og ein­hverjir töfrar losni úr læð­ingi. Ég bara veit að eitt­hvað skemmti­legt kemur út úr því.“

Talandi um það, er alltaf jafn­gaman að taka upp nýtt efni eftir öll þessi ár sem sveitin hefur starfað? „Já, veistu, það er það,“ svarar Nick hik­laust. „Ég hef unnið með slatta af fólki í þessum bransa og eitt af því sem ég hef lært er að maður getur ann­að­hvort orðið leiður á til­teknu sam­starfi eftir ákveð­inn tíma og hrein­lega misst áhug­ann eða sam­starfið styrk­ist. Það síð­ar­nefnda gerð­ist í okkar til­viki. Þegar við fjórir bröllum eitt­hvað saman þá er eins og ein­hverjir töfrar losni úr læð­ingi. Ég bara veit að eitt­hvað skemmti­legt kemur út úr því. Jú, jú, auð­vitað kemur fyrir að maður verður þreyttur inn á milli en það er þá ein­hverju öðru um að kenna en sam­starf­inu, til dæmis álag­inu sem getur fylgt því að túra mikið. Okkur finnst ein­fald­lega enn jafn­gaman að vinna saman eftir allan þennan tíma, enda má segja að þegar öllu er á botn­inn hvolft séum við innst inni sömu strák­arnir og við vorum í byrjun, fullir af ástríðu og ævin­týra­þrá.“

Hljóm­borðs­leik­ari Duran Duran, Nick Rhodes, hlakkar mikið til að koma aftur Íslands. „Svo sagði ein­hver: „Gerum eitt­hvað spenn­andi!“ Og nið­ur­staðan var að heim­sækja Ísland.“

Spurður hvort þetta téða álag sem fylgir tón­leika­ferða­lögum setji fjöl­skyldu­lífið ekki alveg úr skorðum játar Nick að vissu­lega geti stundum verið strembið að sam­eina þetta tvennt. „Jú, auð­vitað getur það verið það. En við gerum okkar allra besta til að passa upp á fjöl­skyld­urnar okkar. Fáum þær regu­l­ega í heim­sókn þegar við erum að túra og flökkum sjálfir mikið á milli fjöl­skyldn­anna og tón­leika­staða. Síðasti túr varði til dæmis í 18 mán­uði og reyndi á, enda tókum við okkur gott frí frá öllu tón­leika­stússi eftir það. Þegar við fórum svo aftur af stað byrj­uðum við að taka þátt í við­burðum hér og þar og hófum í leið­inni vinnslu á nýrri plötu. Svo sagði ein­hver: „Gerum eitt­hvað spenn­andi!“ Og nið­ur­staðan var að heim­sækja Ísland.“

Missti allt tíma­skyn á djamm­inu í Reykja­vík
Duran Duran spil­aði síð­ast á Íslandi fyrir fjórtán árum síðan við góðar und­ir­tektir tón­leika­gesta og seg­ist Nick muna vel eftir þeirri ferð; hún hafi verið ævin­týra­leg og hann minn­ist Íslend­inga með hlý­hug. „Fólkið var indælt og mjög skemmti­legt. Meira að segja blaða­manna­fund­ur­inn sem við héldum var fynd­inn, sem kom ánægju­lega á óvart. Svo var umhverfið ótrú­lega spes. Ég varð til dæmis hug­fang­inn af öllum marg­lita hús­unum og nátt­úr­unni, hún er alveg ein­stök. Birtan var líka klikkuð, þessi dags­birta sem varir allan sól­ar­hringin á sumrin. Hún varð til þess að við Simon [Le Bon, inn­skot blm.] misstum allt tíma­skyn. Ætluðum rétt að kíkja út á lífið og áður en við vissum af var klukkan orðin sex – sex um morg­un­inn.“ Hann hlær við til­hugs­un­ina og seg­ist hlakka til að koma aftur til lands­ins og upp­lifa fleiri ævin­týri.

Duran Duran spil­aði síð­ast á Íslandi fyrir fjórtán árum síðan og Nick man vel eftir þeirri ferð. „Fólkið var indælt og mjög skemmti­legt. Meira að segja blaða­manna­fund­ur­inn sem við héldum var fynd­inn.“

„Svo verður bara hrika­lega gaman og gef­andi að fá að koma fram og spila fyrir áhorf­endur. Það er allt of langt síðan við spil­uðum á Íslandi og ég get sko sagt þér að við ætlum að gefa okkar alla í þetta; skapa virki­lega gott og flott „show“ fyrir tón­leika­gesti, sem ég vona, nei, ég veit að þeir munu hafa gaman af.“

En verður ein­hver tími aflögu til að gera eitt­hvað annað? „Vá, það sem ég væri nú til í að fara í smá ferða­lag og sjá meira af land­inu ykkar, skoða þessa nátt­úru­feg­urð. En nei, því miður reikna ég ekki með að það gef­ist tími í neitt annað núna. Þetta verður ekki nema nokkra daga stopp á Íslandi og svo er það Danmörk. En, það er kannski bara góð afsökun fyrir því að koma aftur síðar og vera þá lengur,“ segir hann dreym­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi