Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Angelina Jolie skrifar í tilefni alþjóðadags flóttamanna: „Það sem við skuldum flóttamönnum“

Angelina Jolie leik­kona og leik­stjóri skrifar leið­ara í banda­ríska tíma­ritið Time Magazine í til­efni af alþjóða­degi flótta­manna í dag, 20. júní. Jolie er auk starfa sinna í kvik­mynda­brans­anum sér­stakur sendi­herra Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir flótta­menn.

Angelina Jolie skrifar í tilefni alþjóðadags flóttamanna: „Það sem við skuldum flóttamönnum“
Angelina Jolie í Mosul. Skjámynd: CNN

Hún hefur pistil­inn á eft­ir­far­andi orðum:

„Hvað dettur þér í hug þegar þú hugsar um flótta­mann? Þú hugsar þér lík­lega ekki Evr­ópu­búa. En ef þú varst Seinni heim­styrj­aldar-barn sem spurðir for­eldra þína um hverjir flótta­menn væru, þá hefðu þeir lík­lega lýst ein­hverjum frá Evrópu.“

Meira en 40 millj­ónir Evr­ópu­búa þurftu að flýja heim­ili sín í heim­styrj­öld­inni síð­ari. Jolie minnir á að það var fyrir þá sem flótta­manna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna var upp­haf­lega stofnuð.

„En þessu gleymum við. Sumir þeirra leið­toga sem tala mest gegn flótta­mönnum eru að tala fyrir hönd landa sem þurftu mikla hjálp alþjóða­sam­fé­lags­ins vegna flótta­manna þaðan.“

Hún lýsir því sem eðli­legu við­bragði við átökum eða ofsóknum að koma sjálfum sér og börnum sínum í öruggt skjól. Flótta­menn kjósi að yfir­gefa átök og hjálpa til við  end­ur­upp­bygg­ingu landa, eitt­hvað sem beri að virða.

Því veltir Jolie því fyrir sér af hverju orðið flótta­maður hafi svona nei­kvæðar skír­skot­anir á okkar dögum. Hvers vegna séu stjórn­mála­menn kosnir út á lof­orð um að loka landa­mærum?

Hún minnir á að sam­kvæmt alþjóða­lögum sé hrein­lega skylda að hjálpa flótta­mönnum og bendir á að sum fátæk­ustu lönd heims hafi verið hvað dug­leg­ust að taka við flótta­mönnum. Í Líbanon sé sjötta hver mann­eskja flótta­maður og yfir milljón flótta­menn séu í Úganda, blá­fá­tæku Afr­íku­ríki.

Jolie hóf að vinna fyrir Sam­ein­uðu þjóð­irnar að mál­efnum flótta­manna fyrir átján árum, þegar flótta­menn voru um 40 millj­ónir. Núna eru þeir um 70 millj­ónir – þar af um helm­ingur börn.

En þótt reglul­verk sé til staðar þá „beita aðild­ar­lönd verk­færum og aðferðum Sam­ein­uðu þjóð­anna eftir henti­semi. Hinn sári sann­leikur er að ríki for­gangs­raða ósjaldan við­skipta­hags­munum fram yfir manns­líf.“

Svo verði þreyta til þess að athygli heims­ins er farin annað áður en búið er að koma á stöð­ugu ástandi á stríðs­hrjáðum svæðum, leiti eftir ómann­úð­legum frið­ar­samn­ingum og hunsum að mestu þátt lofts­lags­ham­fara þegar kemur að flótta­mönnum.

Loks vísar Jolie í upp­hafs­orð grein­ar­innar þegar hún minnir okkur á að „fjar­lægðin á milli flótta­manna for­tíð­ar­innar og okkar sjálfra er styttri en við höldum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi