Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hann, hún eða annað?

Gríð­ar­leg rétt­ar­bót fyrir trans og inter­sex fólk sam­þykkt á Alþingi í gær.

Hann, hún eða annað?

Ein mesta rétt­ar­bót sem snýr að frið­helgi einka­lífs­ins var í gær afgreidd sem lög frá Alþingi, þegar 45 þing­menn sam­þykktu lög um kyn­rænt sjálfs­ræði. Ljóst er að mikil sam­staða var um málið á þing­inu, þar sem þing­menn allra flokka – nema Mið­flokks­ins – veittu mál­inu braut­ar­gengi.

Nýju lögin gera öllum ein­stak­lingum kleift að skil­greina sjálfir kyn sitt, krefj­ast við­ur­kenn­ingar opin­berra og einka­að­ila á kyni sínu, kyn­vit­und og kyntján­ingu. Í lög­unum er líka kveðið á um rétt ein­stak­linga, til þess að krefj­ast þess að vera hvorki skil­greindir sem karlar eða konur – nú geta ein­stak­lingar jafn­framt kraf­ist þess að skrán­ing kyns þeirra sé hlut­laus. Í slíkum til­fellum er kyn við­kom­andi t.d. í vega­bréfum ein­fald­lega skráð sem „X“.
Fram­vegis verða allir einka- og opin­berir aðilar að gefa fólki kost á því að skrá kyn sitt sem X, í kjöl­far opin­berrar breyt­ingar þar um (að loknum skömmum aðlög­un­ar­tíma). Þeir sem óska eftir breyt­ing­unni með form­legum hætti snúa sér til Þjóð­skrár Íslands, sem gerir þá breyt­ingu á kyn­skrán­ingu við­kom­andi í opin­berum skrám. Þeir ein­stak­lingar, sem kjósa að láta leið­rétta kyn sitt eiga þá líka rétt á því að fá end­ur­út­gefin t.d. próf­skír­teini frá skólum, með breyttu nafni sem við­kom­andi fram­kvæmir sam­hliða breyt­ing­unni. Ein­stak­lingar ráða því jafn­framt sjálfir hvort þeir taki eign­ar­falls­end­ingu föður eða móður (sleppi þá -son eða -dóttir í eft­ir­nafn­inu sínu) eða skipti út -son eða -dóttir fyrir end­ing­una -bur.

Það er ljóst að engin leikur sér að því að láta leið­rétta kyn sitt eða breyta skrán­ingu á kyni. Kyn hvers ein­stak­lings er einn helsti skil­grein­ar­þáttur nokk­urs ein­stak­lings á sjálfum sér. Að þurfa að burð­ast með þann böggul, að upp­lifa að manni hafi verið úthlutað röngu kyni í fæð­ingu, er vafa­lítið afar erfitt. Með því að færa fólki þetta frelsi, er því stigið gríð­ar­stórt fram­far­ar­skref og per­sónu­frelsi allra aukið gríð­ar­lega.

Ein­hverjir kunna vafa­lítið að velta því fyrir sér, hvernig þessi laga­breyt­ing snýr að frið­helgi einka­lífs­ins. Jú, eins og fram kemur í grein­ar­gerð frum­varps­ins, sem nú er orðið að lögum, felst í frið­helgi einka­lífs­ins réttur til þess að ráða yfir lífi sínu, lík­am­anum, lífs­háttum og einka­högum. Það, hvort ein­hver kjósi að skil­greina sig sem karl, konu eða eitt­hvað annað, varðar ákkúrat ekki nokkurn annan ein­stak­ling. Nýju lögin stað­festa þetta og loka á að gerðar séu strangar kröfur til ein­stak­linga þess efnis, að þeir hafi gengið í gegnum t.d. lyfja­með­ferð eða „lifað sem“ það kyn sem helst kjósa sér í ein­hvern tíma, áður en orðið getur að breyt­ing­unni. Þessi rétt­indi flútta því afar vel við ákvæði 71. gr. stjórn­ar­skrár­innar um frið­helgi einka­lífs, 8. gr. mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu sem fjallar um sama efni, sem og alþjóð­lega mann­rétt­inda­sátt­mála sem Ísland hefur stað­fest að þjóð­ar­rétti og jafn­vel inn­leitt í lög, s.s. samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barns­ins.

Það segir sig sjálft, að ein­stak­lingum á að vera heim­ilt að gera allt sem þeir vilja, svo fram­ar­lega sem það hefur ekki nei­kvæð áhrif á þriðja aðila. Þessi nýju lög eru dæmi um rétt­ar­bót sem bætir bara lífs­gæði ein­stak­linga, en hefur ómögu­lega slæm áhrif á nokkurn mann. Því fagna allir góðir og rétt­sýnir menn, konur og annað fólk.

Ómar R. Valdi­mars­son lög­maður

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi