Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skrifar um dauðann út frá sjónarhorni barnsins

Miðstöð íslenskra bók­mennta veitti nýlega Auði Stef­áns­dóttur nýrækt­ar­styrk fyrir verk hennar Í gegnum þok­una, en nýrækt­ar­styrkir eru veittir árlega vegna skáld­verka höf­unda sem eru að stíga sín fyrstu skref á rit­vell­inum og eru hugs­aðir sem hvatn­ing til frek­ari dáða á þeirri braut.

Skrifar um dauðann út frá sjónarhorni barnsins

Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Auður vera him­in­lif­andi en játar að hún hafi ekki endi­lega búist við þessu. „Það voru auð­vitað margar umsóknir og margt hæfi­leik­a­ríkt fólk sem er að skrifa þannig að ég get ekki sagt að ég hafi gert það, nei. En þetta er mikil við­ur­kenn­ing og ómet­an­leg hvatn­ing og bendir til að ég sé að gera eitt­hvað rétt,“ segir hún glöð.

Í umsögn bók­mennta­ráð­gjafa um verkið segir að sagan sé fantasíu­bók fyrir börn um bar­áttu góðs og ills, dauð­ann og lífið. Höfundur taki á við­kvæmu mál­efni á fág­aðan hátt og flétti „saman við spenn­andi atburða­rás á flökt­andi mörkum raun­veru­leika og ímynd­unar.“ Sjálf segir Auður að sagan snú­ist um 10 ára stúlku í Reykja­vík sem kljáir við dauða tví­bura­systur sinnar og fer í kjöl­farið yfir í annan heim, þar sem bar­átta góðs og ills á sér stað, en hug­mynd­ina sækir hún úr eigin lífi. „Á und­an­förnum árum hef ég horft upp á fólk nákomið mér missa ung börn, síð­ast góða vin­konu mína sem missti aðra tví­bura­dóttur sína barn­unga að aldri og þótt þessi saga byggi ekki bein­línis á því þá var það kveikjan að henni.“

Er þetta fyrsta bókin þín? „Ja, ég hef nú verið að skrifa frá því að ég var krakki. Var til dæmis stað­ráðin í að gefa út mína fyrstu bók þegar ég var ell­efu ára, svona spæj­ara­sögu í anda Nancy Drew-bókanna en það varð ekk­ert af því og kannski sem betur fer,“ segir hún og hlær. „Síðan vann ég einu sinni til verð­launa í smá­sagna­keppni Mímis, félags íslensku­nema við HÍ. Annars hef ég verið hálf­gert skúffu­skáld, þar til nú.“

Auður er íslensku­kenn­ari í fram­halds­skóla og er í meist­ara­námi í rit­list við Háskóla Íslands með fram kennslu, en hún segir námið einmitt hafa orðið til þess að hún kláraði fyrsta upp­kastið að sögu sinni í vetur. „Námið hefur verið mér mikil hvatn­ing. Það hefur líka kennt mér að skrifa skipu­lega, vera ekki að bíða eftir að and­inn komi yfir mig, heldur koma skrif­unum upp í rútínu. Maður þarf auð­vitað að vera skipu­lagður og nýta tím­ann vel þegar maður er líka í vinnu og námi. Þannig að það hefur nýst mér mjög vel.“

Hvenær stefn­irðu á að gefa sög­una út? „Ég von­ast til að gefa hana út fyrir jól, svona ef allt gengur að óskum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi