Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ætlar að vinna í sjálfum sér

Kristinn Þór Sig­ur­jóns­son er ekk­ill og fjög­urra barna faðir eftir að eig­in­kona hans, Ing­veldur Geirs­dóttir, lést úr krabba­meini í lok apríl. Hann ætlar að halda minn­ingu Ing­veldar á lofti fyrir börn­unum og ekki reyna að grafa þetta niður til að ein­falda lífið. Mik­il­vægt er að ræða málin opin­skátt að hans mati og vinna skipu­lega í sjálfum sér, en það ætlar Kristinn að gera í fyrsta skipti á ævi sinni.

Ætlar að vinna í sjálfum sér

Kristinn segir að í öllu þessu hafi bæði hann og Ing­veldur verið vel með­vituð um að enda­lokin væru óum­flýj­an­leg. Þau hafi lagt áherslu á að gera börn­unum grein fyrir því líka og alltaf talað hreint út um veik­indin við börnin. „Við þá yngstu líka þótt hún hafi ekki enn fangað hug­takið dauð­ann. Hún fangar þetta svo­lítið þannig að „nú er mamma ekki lengur á sjúkra­hús­inu. Núna er hún í hjart­anu í mér. Hún er með hús þar.“ Svo á þetta bara eftir að þró­ast með hennar þroska. Hún var nátt­úr­lega búin að upp­lifa það að mamma hennar hafði verið á sjúkra­hús­inu í um 100 daga síð­ast­liðna níu mán­uði. Þetta var svo­lítið langur tími sem hún hitti alltaf mömmu sína á spít­ala. Það kom mér nokkuð í opna skjöldu að hún var vissu­lega sorg­mædd en samt glöð yfir því að nú væri mamma hjá sér. Svo þegar hún er að melta þetta hug­tak, dauði, þá koma spurn­ingar eins og „við erum ekki dáin, er það?“ Það þarf bara svo­lítið að halda henni við efnið og tala um þetta. Að vera ekki að vernda börnin gagn­vart þessu. Þetta er bara staðan og ég hef ekk­ert verið að segja við hana að mamma hennar sé á himnum með englum eða eitt­hvað svo­leiðis. Hún er bara dáin og hún lifir í minn­ingum okkar.“

„Ég vor­kenni stundum fólki sem slys­ast til að spyrja hvernig ég hafi það því ég segi það bara hreint út. Fólk verður þá bara að taka því og höndla það ef ég fer að gráta.“

Eðli máls­ins sam­kvæmt hafa und­an­farnar vikur verið anna­samar hjá Kristni. Auk þess að skipu­leggja útför­ina og ganga frá öðrum praktískum málum hefur verið gest­kvæmt á heim­il­inu. En það er aðeins farið að hægja á og þá vill það oft ger­ast að sorgin hellist yfir. Kristinn seg­ist mjög með­vit­aður um þetta. „Núna hefur lífið snú­ist um að klára útför­ina og þessi praktísku mál, taka börnin úr þessu umhverfi og fara með þau til Tenerife og svo í úti­legur í sumar. Ég geri alveg ráð fyrir því að það komi skellur í haust. Ég veit að það mun ger­ast en ég ætla þá alla vega að vera búinn að und­ir­búa það með því að vera kom­inn í rútínu með leik­skól­ann, að þetta verði eins og smurð vél. Varðandi fram­haldið þá bara er það að halda minn­ingu Ing­veldar á lofti fyrir börn­unum og ekki reyna að grafa þetta niður til að ein­falda lífið. Við tölum bara um þetta, grátum saman þegar þarf að gráta saman. Það er allt í lagi. Það verður erfitt að halda jólin, það verður erf­iður apr­íl­mán­uður á næsta ári þegar öll barna­af­mælin eru. En ég hef ekk­ert rosa­lega miklar áhyggjur af því enn þá.“

Í fyrsta skipti ætlar Kristinn svo að vinna skipu­lega í sjálfum sér. „Ég hef verið að hugsa um það að ég þurfi að finna mér nýjan takt, hvernig ég ætli að hafa hlut­ina. Ég er búinn að panta mér við­tals­tíma hjá Ljósinu eftir að ég kem heim frá Tenerife og þá ætla ég að byrja að spá í mig. Það er eitt­hvað sem ég hef aldrei gert áður og ég finn að það hjálpar að tala. Bara það að tala opin­skátt við börnin hefur verið eins og sál­fræði­tími fyrir mig. Ég vor­kenni stundum fólki sem slys­ast til að spyrja hvernig ég hafi það því ég segi það bara hreint út. Fólk verður þá bara að taka því og höndla það ef ég fer að gráta.“

Reykja­vík­ur­mara­þonið er fram undan og svo vill til að það ber upp á brúð­kaups­dag­inn, 24. ágúst. Þar ætlar Kristinn að hlaupa 21 kíló­metra í nafni Ljóssins. Hann við­ur­kennir að lang­hlaup séu ekki hans sterkasta hlið enda stór og mik­ill maður. Ástríða hans liggur í ruðn­ingi (rugby) en Kristinn er einn af for­víg­is­mönnum íþrótt­ar­innar hér á landi. „Ég fer bara hægt og örugg­lega yfir. Ég hef engar áhyggjur að kom­ast ekki í enda­markið.“

Sjáðu einnig „Hún lifir í minn­ingum okkar“.

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi