Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sá ekki dóttur sína í átta ár

Í nýjasta tölu­blaði Mannlífs ræðir Kristinn Þór Sig­ur­jóns­son um and­lát eig­in­konu sinnar, Ing­veldar Geirs­dóttur, sem lést úr krabba­meini í apríl. Í við­tal­inu talar Kristinn einnig um erf­iða for­ræð­is­deilu sem hann stóð í þar sem hann sá ekki dóttur sína í átta ár.

Sá ekki dóttur sína í átta ár
Kristinn Þór Sig­ur­jóns­son. Mynd/Hallur Karlsson

Hér að neðan er brot úr við­tal­inu.

Eftir allt sem á undan er gengið leggur Kristinn áherslu á tvennt, að vera sáttur við lífið og að vera til staðar fyrir börnin. „Að koma í veg fyrir algjört hrun, því ég hef gert það áður,“ segir Kristinn og vísar þar í mál sem hann hefur aldrei áður viljað tala opin­skátt um. Árið 1991 eign­að­ist Kristinn dóttur, Stein­unni Helgu, með þáver­andi sam­býl­is­konu sinni. Þau slitu sam­vistum og þremur árum síðar flutti barns­móðir hans til Banda­ríkj­anna en Steinunn varð eftir hjá honum á Íslandi. Árið 1997 var gerð dómsátt um að Kristinn fengi fullt for­ræði en að Steinunn væri hjá móður sinnni í Banda­ríkj­unum yfir sum­ar­tím­ann. Það gekk eftir fyrstu árin en í ágúst 2000 fór af stað atburða­rás sem leiddi til þess að hann fékk ekki að sjá dóttur sína í átta ár.

„Á föstu­dags­kvöld­inu áður en ég ætl­aði að sækja hana út á Kefla­vík­ur­flug­völl hringdi mamma hennar í mig og sagði að hún kæmi ekki aftur. Ég var alltaf viss um að þetta myndi ger­ast á ein­hverjum tíma­punkti en þarna fór ég í algjöra afneitun. Ég var staddur í sum­ar­bú­stað á Búðum á Snæ­fells­nesi og ég brun­aði af stað til Kefla­víkur og ætl­aði að sækja hana út á flug­völl. Ég var þar í 6-7 tíma, bara að bíða eftir að hún kæmi út um hliðið. Ég fór bara í mók.“ Kristinn stóð uppi algjör­lega bjarg­ar­laus. Þetta var fyrir tíma sam­skipta­miðla og í árdaga Inter­nets­ins þar sem upp­lýs­ingar voru af skornum skammti og allar sam­skipta­leiðir mun hæg­ari en í dag. „Ég hringdi í sýslu­mann og þar var bara spurt hvort hún hefði það ekki fínt hjá mömmu sinni. Ég hringdi út um allt – í lög­fræð­inga, þing­menn, sendi­herr­ann í Banda­ríkj­unum. Þessi vetur fór í algjört mók hjá mér og ég man satt best að segja ekk­ert eftir honum. Heim­ur­inn bara hrundi.“

Þessi vetur fór í algjört mók hjá mér og ég man satt best að segja ekk­ert eftir honum. Heim­ur­inn bara hrundi.

Úr varð að Kristinn fór til Banda­ríkj­anna þar sem hann fékk að hitta dóttur sína á hót­el­her­bergi undir eft­ir­liti. Hann tal­aði við lög­fræð­ing sem útskýrði fyrir honum að hann væri í afar þröngri stöðu. „Banda­ríkin við­ur­kenndu ekki Haag-sátt­mál­ann og Texas [þar sem barns­móðir Kristins bjó] alls ekki. Hún sagði að ef ég færi með málið í gegnum dóms­kerfið í Banda­ríkj­unum myndi ég lík­lega vinna það en til þess þyrfti ég að vera í dóm­sal í átta ár. Þá yrði hún orðin 18 ára. Þannig að ég gerði sam­komu­lag um að snúa þessu við, að hún myndi búa í Banda­ríkj­unum og koma til mín á sumrin.“

Úr varð að Steinunn kom til Íslands vorið 2001 en Kristinn segir að and­legt ástand hans hafi verið þannig að hann muni lítið eftir þessum tíma. „Ég man ekki eftir þessu sum­ari nema á myndum og af þeim að dæma var þetta ágætis sumar. Eftir þetta sumar fékk hún ekki að koma aftur og hún kom ekk­ert aftur fyrr en 2009 þegar hún var orðin 18 ára og ákvað að koma sjálf. Ég heyrði eða sá lítið af henni í átta ár. Síðan hefur hún komið í heim­sóknir og hún bjó hérna hjá okkur einn vetur í hitteð­fyrra, hún og afa­strák­ur­inn Alan. Það var mjög góður tími. Hún er nátt­úr­lega full­orðin kona núna og kemur bara þegar hún vill koma.“

Allt við­talið má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi