Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Túrskattur á Íslandi einn sá mesti í Evrópu

Statista.com hefur tekið saman kort af Evrópu sem sýnir skatt­lagn­ingu á dömu­bindum og túr­töppum. Á Íslandi er almennur virð­is­auka­skattur í kringum 25%. Það á við um dömu­bindi og túrtappa. Það er meðal hæstu skatt­lagn­inga í Evrópu. Þessi skatt­lagn­ing er stundum kölluð túr­skattur.

Túrskattur á Íslandi einn sá mesti í Evrópu
Mynd úr safni|Skipting túr­skatts í Evrópu

Í Ung­verja­landi er túr­skattur í 27%. Það er hæsta hlut­fallið í Evrópu. Norð­ur­löndin eru þar rétt á eftir í 25%. Þar á eftir kemur Þýska­land með 19% túr­skatt. Bretland og Kýpur eru með lægsta skatt­hlut­fallið á túr­töppum og dömu­bindum eða í kringum 5%. Frakk­land, Holland, Portúgal og Belgía eru með 5,5-6% skatt­lagn­ingu.

Umræður standa nú yfir í Sviss og á Spáni en bæði lönd stefna á skatta­lækkun. Sviss stefnir á lækkun í 2,5% og Spánn í 4%. Þá er Írland eina landið sem hefur afnumið álagn­ingu á hrein­læt­is­vörum kvenna.

Skipting túr­skatts í Evrópu

Róbert Marshall, fyrrum for­maður Bjartar fram­tíðar, lagði inn til­lögu árið 2015 að skatta­lækkun á hrein­læt­is­vörum kvenna. Í frum­varp­inu er lagt til að „dömu­bindi og tíða­tappar falli undir 14. grein laga um virð­is­auka­skatt sem er lægra þrep lag­anna og skatt­ur­inn á þessar vörur verði því 11%.“ Oktavía Hrund Jóns­dóttir, vara­þing­kona Pírata, end­ur­flutti málið á þingi árið 2017. Frum­varpið hefur ekki náð fram.

Frum­varpið var lagt fram í kjöl­far ræðu Heiðu Krist­ínar Helga­dóttur, þing­konu Bjartrar fram­tíða, á Alþingi árið 2015. Hún beindi fyr­ir­spurn til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra, og spurði hvers vegna væri verið að skatt­leggja á henni legið. „Fjár­mála­ráð­herra hefur verið að vinna að því að lækka tolla og vöru­gjöld á ýmsum nauð­synja­vörum sem hafa bein áhrif á útgjöld heim­il­anna. Einnig hafa verið gerðar breyt­ingar á virð­is­auka­skatti á sam­svar­andi vörur. Ef mig minnir rétt þá hefur virð­is­auka­skattur á smokka, bleiur og bleiu­fóður verið lækk­aður en skattur á dömu­bindi og túrtappa hefur hins vegar verið ósnertur í 24%. Ég tek undir með þeim konum sem spyrja: Hvers vegna er verið að skatt­leggja á mér legið? Ég spyr því hæstv. ráð­herra hverju þetta sætir og hvort unnið sé að því í ráðu­neyti hans að lækka þessa skatta,“ sagði Heiða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi