Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fjölbreytt flóra erlendra leikmanna

Vel á þriðja hund­rað erlendra leik­manna frá 48 mis­mun­andi löndum spila knatt­spyrnu á Íslandi í sumar. Nærri tveir af hverjum þremur spila með liðum á lands­byggð­inni. Flestir hinna erlendu leik­manna koma frá Spáni.

Fjölbreytt flóra erlendra leikmanna
||||||

Mannlíf tók saman fjölda erlenda leik­manna í öllum deildum karla og kvenna á Íslands­mót­inu í knatt­spyrnu. Miðað er við fjölda útlend­inga á leik­skýrslu í leikjum fyrstu umferðar í hverri deild fyrir sig. Þetta eru ekki end­an­legar tölur þar sem ein­hverjar umferð­anna voru spil­aðar áður en félaga­skipta­glugg­inn lok­aði þann 15. maí. Hann opnar svo aftur í júlí og þá er lík­legt að ein­hver lið geri breyt­ingar á sínum leik­manna­hópi.

Alls voru 229 erlendir leik­menn á leik­skýrslu í þessum fyrstu umferðum, 199 í karla­flokki og 30 í kvenna­flokki. En 60 pró­sent þess­ara leik­manna leika með liðum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Bak­grunnur þess­ara leik­manna er æði ólíkur. Ætla má að meiri­hluti þeirra, einkum þeir sem leika í efstu deild­unum, hafi verið feng­inn til Íslands gagn­gert til að spila fót­bolta yfir sum­ar­tím­ann en einnig er um að ræða erlenda rík­is­borg­ara sem eru búsettir á Íslandi og hafa annað aðal­starf en fót­bolta. Þess vegna þarf fjöldi pól­skra leik­manna ekki að koma á óvart enda Pól­verjar stærsti hópur inn­flytj­enda á Íslandi.

Gott orð af Spánverjum og Bandaríkjamönnum

Ekki er hægt að segja annað en að flóran sé fjöl­breytt en alls koma leik­menn­irnir 229 frá 48 löndum úr öllum heims­hornum. Sam­setn­ing erlendra leik­manna í karla­flokki hefur breyst mikið á und­an­förnum árum. Hér áður fyrr voru leik­menn frá ríkjum fyrrum Júgóslavíu mest áber­andi ásamt ein­staka send­ingum frá Bret­landseyjum en í dag eru Spán­verjar fjöl­menn­astir. Hjá kon­unum hafa leik­menn frá Banda­ríkj­unum gjarnan verið áber­andi og er það enn svo.

„Það var nátt­úr­lega mjög eðli­legt ástand þegar þessir leik­menn frá fyrrum Júgóslavíu komu hingað á 10. ára­tugnum. Þetta voru menn sem voru að spila hörku fót­bolta í sínu heima­landi en eru að flýja stríðs­á­tök og enda á Íslandi sem þeir hefðu ann­ars aldrei gert,“ segir Hjörvar Haf­liða­son, einn helsti fót­bolta­spek­ingur lands­ins. Hann segir að fjölda Spán­verja umfram önnur þjóð­erni skýr­ast af aðstæðum þar í landi. „Ef við horfum til dæmis á önnur stór lönd eins og England, Þýska­land og fleiri lönd, þá eru C-deild­irnar mjög sterkar þar. Því er hins vegar ekki fyrir að fara á Spáni og fyrir leik­menn sem spila utan B-deildar, þá bíður þeirra nán­ast ekk­ert og þess vegna koma þeir hingað.“ Hjörvar segir að reynsla íslenskra liða af spænskum leik­mönnum sé mjög góð og að af þeim fari gott orð. Margir af bestu leik­mönn­unum í 1. og 2. deild séu Spán­verjar og þá séu nokkrir öfl­ugir leik­menn í Pepsi Max-deild­inni.

Alltaf einhver saga

Hjörvar segir einnig að gott orð fari af banda­rískum leik­mönnum. „Þeir Banda­ríkja­menn sem ég hef kynnst og heyrt af eru með rosa­lega jákvætt við­horf. Þeir eru mjög þakk­látir því þeir upp­lifa sig eins og atvinnu­menn í Evrópu.“ Það er þó ekki alltaf reynslan með erlendu leik­menn­ina. „Það er mjög oft þannig að þegar þú ert að fá útlend­ing, þá er ein­hver saga. Af hverju vill hann koma til Íslands og spila?“ spyr Hjörvar og tekur tvo leik­menn sem dæmi, Hol­lend­ing­inn Prince Rajcomar og Svíann Velmir Berisha. „Prince Rajcomar var í ung­linga­lands­liðum Hollands með leik­mönnum sem héldu áfram að spila í bestu deildum Evrópu og Valmir Berisha var marka­hæsti leik­mað­ur­inn á HM 17 ára lands­liða á undan Kelechi Iheanacho [fram­herja Leicester]. Frábærir leik­menn en það vantar bara svo margt annað, það er eitt­hvað að og þess vegna enda svona menn á Íslandi. En svo auð­vitað koma ein­staka gull­molar eins og Richard Keogh og Kemar Roofe,“ segir Hjörvar en þeir leik­menn komu hingað ungir að árum og léku með Víkingi áður en þeir gerðu gott mót í ensku deild­ar­keppn­inni.

Almennt er Hjörvar á því að aðkoma erlendra leik­manna sé af hinu góða. Víða úti á landi væri ekki hægt að halda úti liðum ef ekki væri fyrir erlenda leik­menn þótt vissu­lega sé nauð­syn­legt að hafa jafn­vægi, það er að ekki sé verið að fá miðl­ungs góða leik­menn erlendis frá á kostnað efni­legra heima­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi