Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Engin lifandi manneskja sem kýs að vera þunglynd“

Sóley Dröfn Dav­íðs­dóttir var að gefa út sjálfs­hjálp­ar­bók­ina Náðu tökum á þung­lyndi . Hún segir lesn­ingu bók­ar­innar jafn­ast á við nokkra tíma hjá sál­fræð­ingi.

„Engin lifandi manneskja sem kýs að vera þunglynd“
Sóley Dröfn Dav­íðs­dóttir.|

Sóley er for­stöðusál­fræð­ingur við Kvíða­með­ferð­ar­stöð­ina og hefur sér­hæft sig í kvíða­vanda­málum svo sem félags­fælni. „Kvíða­vanda­mál og þung­lyndi fara hins vegar svo oft saman og því hef ég líka mikið unnið með þung­lyndi í gegnum tíð­ina,“ segir Sóley.

Spurð út í fyrir hvern bókin sé skrifuð segir Sóley: „Bókin er hugsuð fyrir fólk sem glímir við þung­lyndi og vill vinna á vand­anum á eigin spýtur eða nýta hana sam­hliða með­ferð hjá fag­fólki. Einnig er þetta góð lesn­ing fyrir aðstand­endur sem vilja skilja sína nán­ustu betur og vera þeim innan handar.“ Sóley segir bók­ina einnig geta koma sér vel fyrir fag­fólk.

„Svo er bókin góð lesn­ing fyrir alla sem vilja fræð­ast um þung­lyndi en eins eru kaflar um svefn­leysi, kulnun, maníu og sam­skipti í bók­inni sem komið geta ein­hverjum að gagni.“

Ein leið út úr þunglyndinu

Spurð út í hvernig sé að takast á við þetta viða­mikla við­fangs­efni segir Sóley: „Það virð­ist flókið og viða­mikið að skrifa um þung­lyndi og eins og við vitum eru margar og mis­mun­andi ástæður fyrir því að fólk verður þung­lynt. Góðu frétt­irnar eru hins vegar þær að það er aðeins ein leið út úr þung­lynd­inu og það er að rjúfa víta­hring þung­lyndis. Við fæð­umst ekki með þekk­ingu á víta­hring þung­lyndis en þegar búið er að átta sig á hvað við­heldur vand­anum hjá hverjum og einum er eft­ir­leik­ur­inn auð­veld­ari.“ Hún tekur fram að bókin sé byggð á hug­rænni atferl­is­með­ferð (HAM).

„Hugrænni atferl­is­með­ferð er ein öfl­ug­asta með­ferðin sem völ er á við þung­lyndi og dregur mest með­ferða úr líkum á að þung­lyndi taki sig upp aftur. Stór hluti af HAM er fræðsla um það hvernig til­finn­ingar virka og hvernig hafa megi áhrif á líðan sína og því er til­valið að koma þeirri þekk­ingu á fram­færi í bók­ar­formi. Lesning svona bókar er ódýr kostur og ætti að vera á við nokkra tíma hjá sál­fræð­ingi. Það hafa alls ekki allir kynnst HAM sem glíma við þung­lyndi og þessar aðferðir því afar öflug verk­færi í bar­átt­una við þung­lyndið.“

Sóley bætir við: „Það er engin lif­andi mann­eskja sem kýs að vera þung­lynd. Fólk reynir að kom­ast til botns í vand­anum en sekkur við það bara dýpra, líkt og að berj­ast um í kvik­syndi. Um leið og fólk lærir hvernig þung­lyndi virkar og breytir vana­bundnum við­brögðum sínum við þung­lynd­inu fara góðir hlutir að ger­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi