Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ágengir Tinder-notendur bjóða greiðslur fyrir kynlíf

Ágengir Tinder-notendur bjóða greiðslur fyrir kynlíf
Ragna Björg Guð­brands­dóttir

Kvenkynsnotendur á Tinder lenda ítrekað í því að þeim sé boðin greiðsla fyrir kynlíf þrátt fyrir að hafa frábeðið sér frekari samskipti. Teymisstjóri Bjarkarhlíðar segir hættu á að svona tilboð auki hættuna á því að viðkvæmir hópar leiðist út í vændi.

Tinder er vin­sælasta stefnu­móta­for­rit heims og er notkun þess útbreidd hér á landi. Ekki er of djúpt tekið í árinni þegar sagt er að for­ritið hafi gjör­breytt stefnu­móta­menn­ingu Íslend­inga. En for­ritið hefur sínar skugga­hliðar og er vændi ein þeirra. Ragna Björg Guð­brands­dóttir, teym­is­stjóri Bjark­ar­hlíðar, mið­stöðvar fyrir þolendur ofbeldis, kann­ast við þetta. Margar konur kvarti undan ágengni karl­manna.

„Það eru margar konur sem tala um að ef þær eru að leita eftir sam­bandi og sýna ekki hinum aðil­anum áhuga, að þá komi þessi spurn­ing: „Hvað ef ég borga?“. Þetta lýsir vel marka- og virð­ing­ar­leys­inu sem margar konur þurfa að fást við. Þetta er eitt­hvað sem við heyrum mjög oft“.

„Þetta lýsir vel marka- og virð­ing­ar­leys­inu sem margar konur þurfa að fást við.“

Ragna Björg segir að í sjálfu sér sé bara ein leið til að bregð­ast við svona boðum. „Nátt­úru­leg við­brögð eru að hætta að tala við mann­eskj­una sem sýnir svona hegðun. Hættan er mest þegar um við­kvæma hópa er að ræða, þetta er oft eitt­hvað sem ýtir fólki yfir brún­ina.“

 Mikil aukn­ing það sem af er ári

Greina má umtals­verða aukn­ingu í fjölda þeirra sem leitað hafa til Bjark­ar­hlíðar vegna ofbeldis. Fyrstu fjóra mán­uði árs­ins leit­uðu 210 manns til mið­stöðv­ar­innar sam­an­borið við 479 allt árið í fyrra. Engin ein ástæða er fyrir þess­ari aukn­ingu, að sögn Rögnu Bjargar.

„Við finnum einna helst fyrir því að sá hópur sem þarf að yfir­gefa heim­ili sitt vegna ofbeldis er að stækka, fólk sem er að flýja ofbeldi og eiga í engin hús að vernda. En að öðru leyti er aukn­ingin heilt yfir.“

Af þeim 479 sem leit­uðu til Bjark­ar­hlíðar í fyrra voru 87 pró­sent konur og 13 pró­sent karlar. Stærsti hóp­ur­inn, eða um helm­ingur, leitar þangað vegna heim­il­is­of­beldis en um einn af hverjum fimm vegna kyn­ferð­is­legs ofbeldis. Þessi mikla ásókn hefur orðið til þess að biðlistar eru farnir að mynd­ast í kerf­inu.

„Við heyrum það á þeim sam­tökum sem vinna með okkur að það er mikil aðsókn.  Það er enn þá ekki bið í fyrsta við­tal í Bjark­ar­hlíð en nokkur bið eftir stuðn­ings­úr­ræðum í fram­hald­inu.“

Ragna Björg segir að þessi bið geti reynst mörgum erfið. „Margir þeirra sem leita til okkar eru að fá aðstoð vegna eldri mála. Þeir hafa beðið í langan tíma og þegar fólk tekur ákvörðun um að leita til okkar þá er það mjög stórt skref. Þess vegna getur aukin bið verið gríð­ar­lega erfið.“

Mynd / Hallur Karlss­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vændi

InnlentVændi

Brynja stund­aði vændi á Íslandi: „Algjör skyndi­hug­detta“

„Þar sem ég hafði enga virð­ingu fyrir sjálfri mér og lík­ama mínum datt mér í hug að fyrst ég væri að sofa hjá mönnum á djamm­inu gæti ég alveg eins fengið greitt fyrir það. Þetta var ekki eitt­hvað sem ég lagði mikla hugsun í. Þetta var algjör skyndi­hug­detta,“ segir fyrr­ver­andi vænd­is­kona í Helg­ar­við­tali Mannlífs. Konan, sem við köllum Brynju, lýsir...
InnlentVændi

Hvað kostar góð rass­skell­ing? Ég á góða spaða og svipur

Mannlífi lék hugur á að gera óform­lega könn­una á eft­ir­spurn eftir vændi íslenskra kvenna eftir við­tal við Önnu Bentínu Herman­sen hjá Stíga­mótum sem sagði vændi íslenskra kvenna í atvinnu­leysi og Covid hafa stór­auk­ist. Tæplega 40 svör á sól­ar­hring Sett var aug­lýs­ing inn á íslenskan vef­mið­miðil sem margir tengja meðal ann­ars við vænd­is­sölu en ekki ein­vörð­ungu. Aug­lýs­ingin var sett inn fyrir...
InnlentVændi

Neyð rekur íslenskar konur í vændi. Gífurleg eft­ir­spurn í Covid-far­aldri

Stígamót hafi fundið fyrir auknu vændi íslenskra kvenna í Covid far­aldr­inum. ,,Okkar konur segja að áreitið sé tals­vert meira frá kaup­endum vændis í kjöl­far Covid. Margar fá lág­marks­fram­færslu í gegnum örorku, félags­þjón­ustu eða atvinnu­leys­is­bætur. Sú upp­hæð nægir ekki til þess að fram­fleyta þeim og þá verður vændi neyð­ar­úr­ræði” segir Anna Bentína Herman­sen ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, ,, Atvinnu­leysi hafi aldrei mælst...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi