Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Brexit ferlið er rétt að byrja: Hinar raunverulegu samningaviðræður bíða

Michael Mann, sendi­herra ESB, telur að Bretland muni á end­anum ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu þótt mögu­leiki á annarri þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu hafi auk­ist. Hann minnir á að ferlið sé rétt að byrja því stærsta samn­inga­lotan sé enn eftir, það er hvernig sam­bandi ESB og Bret­lands verði háttað í fram­tíð­inni.

Brexit ferlið er rétt að byrja: Hinar raunverulegu samningaviðræður bíða
|||

Útganga Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu er búin að vera í margra mán­aða sjálf­heldu á meðan Bretar reyna að kom­ast að nið­ur­stöðu um hvaða leið eigi að fara. Í þrí­gang hefur þingið fellt útgöngu­samn­ing Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra, og nú standa yfir við­ræður við Verka­manna­flokk­inn um ein­hvers konar lausn áður en reynt verður í fjórða skiptið. Þá herma fréttir frá Bret­landi að svo kunni að fara að May muni fall­ast á aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Mann, sem sjálfur er frá Bret­landi, seg­ist þó enn full­viss um að útganga verði að veru­leika. „Fólk utan Bret­lands sagði lengi við mig að Brexit myndi aldrei verða að veru­leika, að þetta væri algjört brjál­æði og myndi aldrei ger­ast. Ég hef þó alltaf verið sann­færður um að þetta yrði að veru­leika vegna þess að Bretar eru afar þrjóskir og jafn­vel þótt þeir viti að þetta muni skilja þá eftir í verri stöðu en ella, þá eru þeir ákveðnir í að virða vilja fólks­ins. En á síð­ustu vikum hefur þró­unin orðið þannig að það er mögu­leiki á að Brexit verði ekki að veru­leika.“

„Ég hef þó alltaf verið sann­færður um að þetta yrði að veru­leika vegna þess að Bretar eru afar þrjóski.“

Vísar Mann þar til end­ur­tek­inna til­rauna May til að koma samn­ingnum í gegn og að Bretar séu nægi­lega skyn­samir til að ganga ekki úr sam­band­inu án samn­ings. Þá séu Íhalds­flokk­ur­inn og Verka­manna­flokk­ur­inn, sem báðir töp­uðu fylgi í nýaf­stöðnum sveita­stjórn­ar­kosn­ingum, að reyna að sækja fylgi þeirra sem vilja aðra þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. „Ég held samt að Brexit verði að veru­leika en það er smá von um að almenn skyn­semi ráði yfir­hönd­inni. En ég set mína pen­inga enn á Brexit ger­ist á þessu ári.“

Mann seg­ist að nokk­urrar óþreyju sé farið að gæta í Brussel vegna þess hversu tví­stíg­andi Bretar hafa verið í ferl­inu. Hann undr­ast það við­horf sem fram hefur komið að ESB sé á ein­hvern hátt að refsa Bretum fyrir að ganga út úr sam­band­inu enda séu það Bretar sem hafa dregið lapp­irnar.

„Ef maður byrjar samn­inga­við­ræður er ágætt að gera upp við sig áður hvað maður vill fá út úr þeim. Ráðamenn í Brussel eru ekki enn búnir að átta sig á því hvað Bretar vilja fá út úr við­ræð­unum vegna þess að þingið og þjóðin eru klofin. Bretland hefur kosið að yfir­gefa sam­bandið. Margir stjórn­mála­menn sem töl­uðu fyrir útgöngu gáfu til kynna að það væri hægt að fara en við­halda sömu rétt­indum eftir sem áður. Þetta er eins og að hætta að borga aðild­ina í lík­ams­rækt­ar­stöð­inni en mæta samt á hverjum degi og nota aðstöð­una. Það virkar ekki þannig,“ segir Mann og bætir við:

„Það má heldur ekki gleyma því að þetta er ekki hinn end­an­legi samn­ingur, þetta er útgöngu­samn­ing­ur­inn. Hinar raun­veru­legu samn­inga­við­ræður hefj­ast þegar Bretland gengur út og byrjar að semja um fyr­ir­komu­lagið til fram­tíðar. Það verður mun flókn­ara ferli.“

Eru fyrst núna að átta sig á hvað ESB er

Mann segir að ástæðan fyrir Brexit liggi að mörgu leyti í því hvernig stjórn­mála­menn og fjöl­miðlar hafi talað um Evr­ópu­sam­starfið í gegnum árin. Breskir stjórn­mála­menn hafi aldrei talað máli Evrópu ólíkt mörgum kol­legum sínum á meg­in­land­inu. „Þvert á móti var Evrópa hent­ugur blóra­bögg­ull fyrir breska stjórn­mála­menn og þegar eitt­hvað slæmt gerð­ist var það Brussel að kenna og ef eitt­hvað gott kom þaðan var það vegna til­stilli þeirra.“

Sama máli gegnir um fjöl­miðla, segir Mann og talar hann þar af reynslu því hann var um ára­bil tals­maður tveggja breskra fram­kvæmda­stjóra.

„Flestir fjöl­miðlar í Bret­landi eru and­snúnir Evr­ópu­sam­band­inu. Ég varði miklum tíma í að fást við bresku press­una, að hrekja ein­hverja algjöra vit­leysu sem hafði verið birt. Hlutir sem kunna að vera fyndnir eins og þetta með bognu ban­an­ana. En það er í raun­inni ekki fyndið því þetta síast inn í haus­inn á fólki. Þessar furðu­fréttir götu­blað­anna kunna að vera skemmti­legar en þær hafa mjög nei­kvæð áhrif á þekk­ingu fólks og að ætla að leið­rétta það í tveggja mán­aða kosn­inga­bar­áttu var óraun­hæft. Það liggur fyrir að margir af helstu tals­mönnum Brexit fóru frjáls­lega með sann­leik­ann og því miður voru margir sem töl­uðu máli Evrópu ekki með hjartað á réttum stað. Við þetta bæt­ist að á sama tíma og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan átti sér stað voru flótta­manna­málin í hámarki og fólki var sagt að allir íbúar Tyrk­lands myndu koma og búa í Bret­landi. Margir trúðu því.“

„Þessar furðu­fréttir götu­blað­anna kunna að vera skemmti­legar en þær hafa mjög nei­kvæð áhrif á þekk­ingu fólks.“

Segir Mann að það sé fyrst núna sem alvöru umræða sé að eiga sér stað um Evr­ópu­sam­bandið.

„Það hefur aldrei verið umræða um ESB í Bret­landi nema þegar ein­hver deilu­mál koma upp og þá sett í þann bún­ing að Bretar standa í stappi við ESB. Það var mikil götu­blaða­stemn­ing, jafn­vel á meðal virtu miðl­anna. Það er aðeins núna þegar Bretland er að ganga út úr sam­band­inu að það á sér stað ein­hver umræða um hvað ESB er og hvað það er ekki. Það er mjög sorg­legt því þessi umræða átti að fara fram fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una og þá sætum við kannski ekki uppí í þess­ari stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi