Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Verðhækkanir á versta tíma

Verð­bólgu­draug­ur­inn er vakn­aður og ástæðan er meðal ann­ars sú, að flug­far­gjöld hafa hækkað hratt að und­an­förnu. Í síð­ustu verð­bólgu­mæl­ingum var hækk­unin á flug­far­gjöldum um 20 pró­sent, og fór verð­bólgan úr 2,9 pró­sent í 3,3 pró­sent.

Grein­endur á mark­aði nefndu flug­far­gjöldin sér­stak­lega sem áhættu­þátt, fyrir kom­andi verð­bólgu­horfur á mark­aði.

Þessar hækk­anir eru ekki óvæntar. Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, hefur ítrekað minnst á það að und­an­förnu, bæði ítar­lega í ræðu á árs­fundi og eins í styttri við­tölum, að ósjálf­bærni í verð­lagn­ingu flug­far­gjalda gangi ekki til lengdar, og stór­skaði ferða­þjón­ust­una.

Óhætt er að segja að WOW air hafi boðið lág flug­far­gjöld, og nú er orðið aug­ljóst að félagið var komið í vanda – einkum á síð­asta eina og hálfa árinu í rekstri félags­ins – löngu áður en félagið varð gjald­þrota.

Neyt­endur finna fyrir þessu – ekki bara falli félags­ins, heldur versn­andi rekstr­ar­horfum í flug­inu almennt – með hærri flug­far­gjöldum. Icelandair hefur líka verið í miklum vanda, og tap­aði 13,5 millj­örðum króna á sex mán­aða tíma­bili, frá lokum síð­asta árs og á fyrstu þremur mán­uðum þessa árs. Það eru 75 millj­ónir á hverjum degi á fyrr­nefndu tíma­bili.

Krefj­andi tímar verða lík­lega áfram í flug­iðn­að­inum íslenska, og ekki ólík­legt að spil­aður verði varn­ar­leikur frekar en sókn­ar­leikur næstu miss­eri. Icelandair fékk inn nýjan hlut­hafa, banda­ríska félagið PAR Capital, sem á nú orðið rúm­lega 12 pró­sent í Icelandair. Samkvæmt við­mæl­endum Kjarnans, sem þekkja vel til rekstrar Icelandair og flug­rekstrar, þá er þessi inn­koma afar mik­il­væg á þessum tíma­punkti í sögu félags­ins. Félagið er með eigna­safn sem er tengt Boeing, óbeint og beint, og er meðal stærstu hlut­hafa Southwest, Delta, Expedia, Trip Advisor og Booking, svo nefndir séu nokkrir risar í ferða­þjón­ustu á heims­vísu. Með þennan hlut­hafa geti félagið skapað trú­verð­ug­leika gagn­vart alþjóð­legum flug­iðn­aði, og jafn­vel skapað sér betri samn­ings­stöðu í end­ur­skipu­lagn­ingu á flota félags­ins, hvaða leið sem farin verður í því.

Augljóst er þó, að það getur komið til þess að frek­ari hluta­fjár­aukn­ingu muni þurfa til, ef það dregst á lang­inn að Max-vél­arnar verði kyrr­settar. Það segir sína sögu um hversu erfitt umhverfið er þessi miss­erin, að eig­in­fjár­hlut­fall Icelandair lækk­aði úr 32 pró­sent um ára­mót niður í 23 pró­sent þremur mán­uðum síðar, á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins. Engu að síður er fjár­hags­staðan sterk, á flesta mæli­kvarða. Eigið fé félags­ins var 425 millj­ónir Banda­ríkja­dala í lok mars, eða sem nemur um 52 millj­örðum króna. Mark­aðsvirði félags­ins hefur sveifl­ast nokkuð á und­an­förnum mán­uðum, á milli 40 og 50 millj­arða.

Hægt er að lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs og á vef Kjarnans.

Texti / Magnús Hall­dórs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi