Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skrýtið að fá skipanir frá konu í eldhúsinu

Hrefna Sætran varð fljót­lega vakt­stjóri í eld­hús­inu þegar hún gekk til liðs við Sjáv­ar­kjall­ar­ann eftir að hún útskrif­að­ist. Mönnum hafi hins vegar þótt skrítið að fá skip­anir frá konu í eld­hús­inu.

Skrýtið að fá skipanir frá konu í eldhúsinu
Kokk­ur­inn Hrefna Rósa Sætran. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

„Ég vann mig síðan upp í það að verða yfir­kokkur og eig­and­inn sagði mér seinna að það hefði tekið hann mjög langan tíma að átta sig á því að það ætti að hlusta á þessa konu­rödd sem væri að skipa fyrir í eld­hús­inu, það var eng­inn vanur því, hvorki hann né aðrir. Þessi eig­andi Sjáv­ar­kjallar­ans er reyndar með­eig­andi minn í dag og það var hann sem kom til mín einn dag­inn fyrir tólf árum og spurði hvort ég vildi enn þá opna veit­inga­stað. Ég hélt það nú og til varð Fisk­mark­að­ur­inn sem við rekum enn í dag.“

Þessi saga af við­brögðum við konu sem stjórn­anda í eld­hús­inu vekur upp spurn­ing­una um hvort Hrefna hafi upp­lifað eitt­hvert mót­læti í geir­anum vegna þess að hún er kona. Hún vill sem minnst gera úr því.
„Það gerð­ist aldrei eftir að maður fór að vinna með fólki,“ segir hún ákveðin. „Maður þurfti auð­vitað alltaf að sanna sig í byrjun fyrir þeim sem maður var að vinna með, en það var aðal­lega fólk sem maður þurfti að eiga sam­skipti við utan eld­húss­ins sem átti erfitt með þetta. Ég man sér­stak­lega eftir einum manni sem ég þurfti oft að tala við og hann bað sífellt um að fá að tala við yfir­kokk­inn og tók ekk­ert mark á mér þegar ég sagði að það væri ég. Körlunum sem ég var að vinna með fannst hins vegar bara voða gaman að fá konu í eld­húsið og töl­uðu oft um hvað það breytti umræð­unni á vakt­inni að þar væru ekki bara karlar. Þetta var búið að vera nán­ast hrein­ræktað karla­sam­fé­lag svo lengi að ég held í alvöru að allir hafi verið ánægðir með að það breytt­ist.“

Ég man sér­stak­lega eftir einum manni sem ég þurfti oft að tala við og hann bað sífellt um að fá að tala við yfir­kokk­inn og tók ekk­ert mark á mér þegar ég sagði að það væri ég.

Síðan Hrefna Rósa kom fram á sjón­ar­sviðið sem kokkur hefur kon­unum í stétt­inni þó fjölgað tölu­vert og hún er að vonum ánægð með það.
„Það er alla­vega orðið mun meira af sýni­legum konum í kokka­stétt­inni,“ segir hún. „Það eru til dæmis nokkrar konur í kokka­lands­lið­inu, ég held þær séu orðnar helm­ingur af lið­inu, en það end­ur­spegl­ast ekki í eld­húsum veit­inga­hús­anna, það er meira valið í liðið til að passa upp á að kynja­hlut­föllin séu ekki óhag­stæð.“

Ítarlegt við­tal við Hrefnu Rósu birt­ist í Mannlífi á föstu­dagin og má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi