Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pizza-kíló pössuðu ekki karakternum

Telma Huld Jóhann­es­dóttir leik­kona fer með hlut­verk Lóu í kvik­mynd­inni Eden sem frum­sýnd er í dag. Hún segir að Lóa sé svo­lít­ill vand­ræða­gemsi sem hafi séð ýmis­legt sem myndi buga marga en hún sé alltaf til­búin í næsta slag.

Pizza-kíló pössuðu ekki karakternum
Karakt­er­arnir Lóa og Óliver eru til­búin að gera hvað sem er til að láta draumana ræt­ast.|Aðal­leik­konan Telma Huld Jóhann­es­dóttir. Ljósmynd af IMDb.

„Ég var að vinna á Mývatni sum­arið 2017 þegar ég fékk sím­tal frá Snævari [Sölva­syni] leik­stjóra. Hann sagði mér frá hug­mynd­inni og spurði hvort ég væri í alvöru snoðuð,“ segir hún og hlær en Snævar hafði séð mynd af Telmu snoð­aðri á Facebook og fannst það passa svo vel fyrir karakt­er­inn.

„Mér fannst hug­myndin spenn­andi – svo­lítið svona íslensk Bonnie & Clyde-kvik­mynd, elskendur á hlaupum, lit­rík, mikið aksjón og spenna auk und­ir­liggj­andi dýpri pæl­inga um lífið og til­ver­una. Þetta tikk­aði í öll mín box. Þarna var Snævar ekki búinn að skrifa nema byrj­un­ina af hand­rit­inu en samt vorum við ein­hvern veg­inn búin að ákveða að við myndum gera þessa mynd áður en við slitum sím­tal­inu.“

Þyngdartap og rannsóknarvinna

Aðal­leik­arar í Eden eru auk Telmu Hansel Eagle sem leikur Óliver kærasta Lóu, Gunnar Maris og Arnar Jónsson. Myndin var tekin á 18 dögum á 68 stöðum og Telma segir að tök­urnar hafi verið krefj­andi.

„Lóa situr ekki beint heima, sæt að prjóna, í þess­ari mynd svo að ég hafði nóg að gera á setti,“ segir Telma sem lagði að auki mikið á sig við und­ir­bún­ing.

Aðal­leik­konan Telma Huld Jóhann­es­dóttir. Ljósmynd af IMDb.

„Þegar áhorf­endur hitta Lóu í mynd­inni er hún aug­ljós­lega ekki í heil­brigðum aðstæðum. Sumarið fyrir tökur vann ég á pizzu-stað og tók með mér nokkur heil­brigð pizzu-kíló inn í haustið. Pizzu-kílóin meik­uðu ekki alveg sens fyrir aðstæður Lóu svo ég réðst í það verk­efni að grenna mig um það bil tveimur mán­uðum fyrir tökur. Ekkert brjál­æði samt, ég bara tók út brauð og fór í sund á hverjum degi, synti þar til ég byrj­aði að svitna í vatn­inu og var síðan í að minnsta kosti tutt­ugu mín­útur í gufu­bað­inu. Ég grennt­ist hell­ing á þessum tveimur mán­uðum en leið vel allan tím­ann. Annar und­ir­bún­ingur fólst að mestu leyti í ýmis­konar rann­sókn­ar­vinnu á þessum heimi og karakt­erum innan hans.“

„Við erum vön að sjá fólk í þess­ari stöðu sem Lóa og Óliver eru komin í sem fórn­ar­lömb, en í þess­ari mynd fáum við að sjá þegar þau eru hetjur.“

Aðspurð hvort henni finn­ist myndin eiga erindi við almenn­ing svarar hún að þessi saga hafi ekki verið sögð frá þessu sjón­ar­horni áður. „Við erum vön að sjá fólk í þess­ari stöðu sem Lóa og Óliver eru komin í sem fórn­ar­lömb, en í þess­ari mynd fáum við að sjá þegar þau eru hetjur. Þegar þau takast á við aðstæður sem flestir geta ekki ímyndað sér að vera í og hvernig þau þurfa að taka ákvarð­anir til þess að lifa af. Svo er þetta líka bara skemmti­leg bíó­mynd, full­komin til að gleyma stað og stund í smá­tíma.“

Undirbýr eigin stuttmynd

Telma lærði leik­list bæði í París og Prag og segir að báðir stað­irnir hafi gefið henni mikið. „En minn mesti skóli var og verður alltaf öll verk­efnin sem ég vann hér heima áður en ég fór út. Hlutverk mitt í Webcam eftir Sigurð Anton Frið­þjófs­son var mitt fyrsta í kvik­mynd í fullri lengd. Þá hafði ég aldrei leikið í svona stóru verk­efni áður og hopp­aði því beint út í djúpu laug­ina. Þessi upp­lifun mót­aði mig, ég fann að þetta átti vel við mig og ég hélt áfram að finna djúpar laugar til að hoppa í. Eden er mitt stærsta verk­efni og hlut­verk til þessa, í Webcam og Snjó & Salóme var ég meira auka­leik­ari, og það er virki­lega skemmti­legt að fylgja henni loks­ins í bíó.“

Fram undan hjá Telmu er svo að klára námið í Prag og svo kemur hún heim í júní. „Ég verð svo vinn­andi eitt­hvað í kvik­mynda­gerð hingað og þangað auk þess að und­ir­búa tökur á minni fyrstu stutt­mynd sem leik­stjóri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi