Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þetta er grjóthart fag“

Bylgja Kærne­sted, deild­ar­stjóri hjúkr­unar á hjarta­deild Land­spít­ala (LSH), segir að þörf á sér­þekk­ingu hjúkr­un­ar­fræð­inga hafi aldrei verið meiri og hvetur til þess að fag­stéttin nýti fjórðu iðn­bylt­ing­una til gera starf hjúkr­un­ar­fræð­inga enn skil­virkara.

„Þetta er grjóthart fag“

Ein helsta áskorun hjúkr­un­ar­fræð­innar sem fag­stéttar er að höfða betur til karla til að auka nýliðun í fag­inu en 97 pró­sent hjúkr­un­ar­fræð­inga á Íslandi eru konur.

„Við þurfum að breyta þess­ari ímynd um að hjúkr­un­ar­fræði sé krútt­legt kvenna­starf, því það gæti ekki verið lengra frá sann­leik­anum. Þetta er grjót­hart fag, það eru alvöru­hlutir að ger­ast alla daga og hjúkr­un­ar­fræð­ingar bjarga manns­lífum alla daga og en líka efla og við­halda lífs­gæðum sjúk­linga,“ segir Bylgja og bætir við að auk þess ættu margir hlutar fags­ins að höfða til karla, sér­stak­lega tækni­legi hluti starfs­ins.

„Ég held að þegar fagið var ungt voru þetta mest konur sem sóttu í og sinntu þessu starfi. Síðan hefur okkur ekki tek­ist að mark­aðs­setja starfið fyrir karla hér á Íslandi eins og víða ann­ars staðar,“ segir hún og bendir á að það starfi mun fleiri karlar við fagið á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Bylgja segir að það sé vöntun á hjúkr­un­ar­fræð­ingum sem tala erlend tungu­mál eins og pólsku og fil­ipínsku, þeim þurfi að fjölga í stétt­inni sem og körlunum. „Við sinnum alls konar fólki, bæði konum og körlum, hvaðan sem er úr heim­inum og það er mjög gott að hafa blöndun í umönn­un­ar­stétt­unum.“

Tækifærin felast í fjórðu iðnbyltingunni

Bylgja útskýrir að sjúkra­hús séu farin að beita sífellt flókn­ari með­ferðum, þá segi það sig sjálft að þörf fyrir sér­þekk­ingu hjúkr­un­ar­fræð­inga sé alltaf að aukast. „Kannanir sýna líka fram á að þar sem fleiri hjúkr­un­ar­fræð­ingar starfa fyrir hvern sjúk­ling, þar er einnig lægri dán­ar­tíðni, styttri legur, minni byltur og færri sýk­ingar. Þannig að þessi sér­þekk­ing sem hjúkr­un­ar­fræð­ingar búa yfir er ótrú­lega mik­il­væg.“

Gott skipu­lag, nýjasta tækni og góð vinnu­að­staða er meðal þess sem Bylgja nefnir sem mik­il­væga þætti sem stuðla að hámarks­nýtni hverrar vinnu­stundar hjúkr­un­ar­fræð­ings.

„Hjúkr­un­ar­fræð­ingar eru tak­mörkuð auð­lind og við þurfum að fara vel með hana. Við höfum meðal ann­ars gert það með því að ráða inn aðstoð­ar­fólk af því að rann­sóknir sýna að stór hluti af tíma hjúkr­un­ar­fræð­inga fer í að sinna störfum sem aðrir gætu gert. Eins er hægt að láta tækn­ina hjálpa sér meira. Það er hægt að nota lyfti- og létti­tækni og ýmis­legt sem léttir vinnu starfs­fólks og nýtir tíma þess betur. Þetta eru hlutir sem við erum byrjuð að laga. Það er um að gera að nýta þessa fjórðu iðn­bylt­ingu sem mikið er verið að tala um.

„Vélmenni geta sinnt hluta skurð­að­gerða en það verður lík­lega enn lengra í að þörf á hjúkr­un­ar­fræð­ingum minnki.“

Við þurfum að vera óhrædd við að henda okkur á vagn­inn varð­andi tækn­ina. Tæknin og gervi­greindin getur gert það að verkum að það verði jafn­vel minni þörf fyrir til dæmis lækna eftir nokkur ár. Vélmenni munu geta sinnt hluta skurð­að­gerða en það verður lík­lega enn lengra í að þörf á hjúkr­un­ar­fræð­ingum minnki miðað við það sem nú er. Hins vegar er lík­legt að störfin breyt­ist sam­hliða tækni­þróun en þá hefur hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn meiri tíma til að sinna störfum sem eng­inn annar getur gert og sitja gjarna á hak­anum,“ segir Bylgja að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi