Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Langvarandi álag varð að sprengju

Fjöl­miðla­konan Sirrý Arn­ar­dóttir var að gefa út bók­ina Þegar kona brotnar , bók­ina gefur hún út í sam­starfi við VIRK – starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóð. Í bók­inni er að finna við­töl við konur sem kikn­uðu undan álagi en risu aftur upp.

Langvarandi álag varð að sprengju
Mynd / Bjartur & Veröld|Þegar

Í bók­inni er einnig fjallað um konur fyrri tíma, hvernig þær brugð­ust við örmögnun. Þá er rætt við sál­fræð­ing um hvað ger­ist þegar kona brotnar og hver bjarg­ráð hennar eru.

Með­fylgj­andi er brot úr við­tali Sirrýar við Helgu Ólafs­dóttur.

Helga Ólafsdóttir hárgreiðslu­meist­ari rak um árabil vin­sælu hárgreiðslu­stof­una Monroe í hjarta mið­borg­ar­innar. Sem atvinnu­rek­andi með hárgreiðslufólk og nema í vinnu þurfti Helga – sem var einnig ein­stæð móðir – oft að sinna starfs­manna­haldi á kvöldin eftir langan vinnu­dag á stof­unni. Eftir að hafa glímt við álag og líkam­lega verki í nokkur ár dró Helga sig út úr hárgreiðsl­unni, seldi stof­una og tók góðan tíma í að hvíla sig og end­ur­heimta ork­una. Læknir taldi að hún ætti að hætta alveg að vinna og fara á örorku­bætur en Helga ákvað að breyta lífi sínu, end­ur­mennta sig og víkka sjóndeild­ar­hring­inn.

Hefur þú lent í að brotna niður?

„Já, en það var alls ekki þannig að ég gæf­ist allt í einu upp. Ég er týpískt dæmi um konu sem bjó við mikið langvar­andi álag sem barn og ung­lingur og svo varð þetta langvar­andi álag að sprengju og ég bug­að­ist.

Í kringum 1998 var ég farin að finna fyrir miklu álagi og vanlíðan. Ég hafði verið þjökuð af sársauka í kroppnum lengi og sætti mig bara við það. Eftir á sé ég að ég fékk síþreytu. Þetta var því ekki skyndi­legt skip­brot heldur síþreyta sem erfitt var að vinna sig út úr. En ég gerði alla vega eitt­hvað í þessu og fyrir 16 árum hætti ég að starfa í mínu fagi.

Mín skoðun er að þegar fólk er að tala um kulnun er það aldrei einn þáttur sem veldur kulnun. Það er ekki bara vinnan heldur margt sem safn­ast saman. Eins og bílslys, það er margt sem spilar inn í, röð atvika sem leiðir til árekst­urs.

Ég var alltaf svo þreytt eftir dag­inn. Gat í raun ekki hreyft mig. Ég hafði áhyggjur af eigin rekstri. Það voru ekki pen­ingaáhyggjur heldur fann ég fyrir miklu álagi sem fylgdi ábyrgð­inni á manna­forráðum og rekstri. Ég bjó við flóknar aðstæður í prívatlífinu. Ég hafði verið í erf­iðu sam­bandi við mann. Og svo þessi sársauki í kroppnum út af miklu vinnuálagi.

Ég hafði alltaf unnið mikið og alltaf tekið meira og meira að mér. Ég hafði enda­laust mikið af kúnnum og lengdi bara vinnu­dag­inn minn. Ég gat ekki farið að vinna hálfan dag­inn og hugað að sjálfri mér eins og ég þurfti á að halda. Ég áttaði mig á því að ég væri komin í strand og það var svo óþægi­legt að vera fastur. Þegar ég var farin að eiga erfitt með að anda spurði ég heim­il­is­lækn­inn hvort það væri eitt­hvað að mér: „Ég á svo erfitt með að anda og líður illa í öndun­ar­fær­unum,“ sagði ég en fékk að vita að þetta var stress. Ég reyndi að gera ýmis­legt fyrir mig á þessum tíma og stunda ein­hverja líkams­rækt en fannst erfitt að vera í reglu­legri hreyf­ingu. Ég var svo þreytt eftir langan vinnu­dag, var líka ein­stæð móðir svo ég varð að drífa mig heim. Reyndar hafði ég búið mér til góðar aðstæður og var með ráðskonu heima. Ég náði að hafa þetta svona með því að for­gangs­raða en samt var þessi eilífa sekt­ar­kennd. Við bætt­ust flókin sam­skipti við fyrr­ver­andi mann minn og hans konu og það var erfitt að koma þessu heim og saman. Þó þau hafi tekið þátt þá bar ég ábyrgð­ina á vel­ferð barns­ins.

„Samt gat ég varla hreyft mig út af líkam­legum verkjum.“

Líkam­lega var ég orðin svo slæm að ég gat ekki lyft upp höndunum. Lengi vel setti ég mig í ein­hvern gír og keyrði mig áfram. Samt gat ég varla hreyft mig út af líkam­legum verkjum. Flest hárgreiðslufólk sem hefur unnið langa ævi í hárgreiðsl­unni kemst ekki hjálpar­laust í jakka. Vinnu­dag­ur­inn er iðu­lega mjög langur og oft er eng­inn mat­artími. Iðn­að­arfólk er oft slæmt af verkjum.“

Komst ekki upp úr skurðinum

„Við rekstur hárgreiðslu­stofu þarf að hafa heil­mikið fyrir því að ná pen­ingum inn sem duga fyrir starf­sem­inni. Ég bar ábyrgð á tíu mann­eskjum og þeirra launum og þegar ein­hver var veikur þurfti maður sjálfur að spýta í lófana og bæta við sig vinnu til að eiga fyrir rekstr­inum. Það hefur skort aga í litlum fyr­ir­tækjum á þann hátt að hver og einn starfs­maður getur haft mikil völd. Maður fékk alveg að heyra: „Ef ég fæ þetta ekki þá er ég nú bara hætt.“ Sem stjórnandi gat verið erfitt að vera á gólfinu með öllum hinum á dag­inn og vinna svo stjórnun­ar­vinn­una ein á kvöldin.

Ég hafði því ekki tíma til að fara upp úr skurð­inum og horfa yfir stöðuna. „Hvað get ég gert til að gera þetta léttara?“ – ég gat ekki stoppað og íhugað það. Við­skipta­vinir voru á biðlista enda stofan vin­sæl. En ég réð við þetta og hefði gert það áfram ef ekk­ert annað hefði komið til. En að lenda í erf­iðu sam­bandi og hafa verið undir álagi frá bernsku safn­að­ist saman og hvíldi þungt á mér. Undir það síðasta var ég mjög áhyggju­full yfir starfs­manna­hald­inu og að standa undir launa­kostn­aði.

Ég gerði margt gott fyrir mig eins og að fara á kvíðastill­andi lyf og sækja mér sálfræði­legan stuðn­ing. Ég er fegin því vegna þess að ég gat endað þetta ferli á hárgreiðslu­stof­unni fal­lega og gengið frá mínum málum í stað þess að „krassa“ og sturl­ast. Þegar ég lít til baka er ég ánægð. Ég hef lent í heilmörgu en náði að leysa það vel. Þetta sá ég til dæmis þegar ég tók nýlega þátt í rannsókninni Áfalla­saga kvenna á net­inu en þar fann ég hvað ég hafði leyst margt vel í erf­iðum aðstæðum. Það var til dæmis mjög skyn­sam­legt fyrir mig, ein­stæða móður, að sækja mér stuðn­ing í sálfræðitímum og ræða þar mín mál í trúnaði.

Auk þess hef ég alltaf átt flott stuðn­ings­net í systk­inum og vin­konum. Stuðn­ings­net hjálpar alveg rosa­lega við að taka á erf­iðum málum í einkalífi og starfi. Það hlýtur að vera hrika­legt fyrir ein­stæða for­eldra sem lenda í kulnun eða örmögnun að hafa ekki öflugt stuðn­ings­net.“

Bókin er gefin út í sam­vinnu við VIRK – starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóð.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi