Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hitti átrúnaðargoðið og átti erfitt með sig

Nýtt hlað­varp um veiði og veiði­t­engd mál er farið í loftið. Umsjón­ar­menn þess eru í skýj­unum með við­tök­urnar.

Hitti átrúnaðargoðið og átti erfitt með sig
Haf­steinn Már Sig­urðs­son

„Und­ir­tekt­irnar hafa komið skemmti­lega á óvart. Þær eru miklu meiri en við bjugg­umst við, því satt að segja vissum ekki hvernig við­brögðin yrðu, hvort 25 eða 2.500 manns kæmu til með að hlusta. En yfir þús­und hlust­endur hafa nú þegar hlýtt á fyrsta þátt­inn og við náðum á list­ann yfir mest spil­uðu hlað­vörpin á iTu­nes. Þannig að þetta er skemmti­legt, eig­in­lega bara alveg geggjað,“ segir Haf­steinn Már Sig­urðs­son, annar umsjón­ar­manna nýs hlað­varps um veiði sem fór í loftið á dög­unum og hefur þegar vakið lukku.

Hlað­varpið sem kall­ast Flugucastið ein­blínir á flugu­veiði og veiði­t­engd mál­efni en í hverjum þætti fá þeir Haf­steinn og félagi hans, Sigþór Steinn Ólafsson, til sín nýjan gest sem deilir meðal ann­ars með þeim veiði­sögum og gefur ýmis ráð varð­andi veiði og ein­staka veiði­staði. „Við fáum einn við­mæl­anda í hvern þátt og þeir koma inn á allt þetta, segja líka til dæmis frá upp­á­halds­ánni sinni og -flug­unni og svo fram­vegis og fara síðan í gegnum sína veiði­sögu, hvernig þeir hafi byrjað að veiða, „gæda“ eða unnið í veiði­kofa,“ lýsir hann.

„Það var geggjað að fá hann, sjálft átrún­að­ar­goðið manns til að segja sína sögu … Við Sigþór vorum alveg með stjörnur í augum.“

Þeir félagar hafa þegar fengið til sín nokkra góða gesta, þeirra á meðal eru veiði­menn­irnir Björn K. Rún­ars­son, Elías Pétur Viðfjörð Þór­ar­ins­son, sem hefur í sam­starfi við félaga sína fjallað á sam­fé­lags­miðlum um veiði, og síð­ast en ekki síst Eggert Skúlason sem gerði á sínum tíma hina vin­sælu veiði­þætti Sporða­köst en Haf­steinn segir að það hafi verið sann­kall­aður heiður að spjalla við hann.

„Það var geggjað að fá hann, sjálft átrún­að­ar­goð manns til að segja sína sögu og sög­una á bak við Sporða­köst sem ollu auð­vitað straum­hvörfum fyrir tutt­ugu árum. Við Sigþór vorum alveg með stjörnur í augum,“ segir hann og getur þess að sumir gest­anna ljóstri upp ýmsum áhuga­verðum leyni­trixum. „Þetta er alls konar fróð­leikur sem getur nýst byrj­endum jafnt og þeim sem eru lengra komnir.“

Með ólæknandi veiðibakteríu

Spurður hvernig hug­myndin að hlað­varp­inu hafi kviknað segir Haf­steinn að þeir Sigþór séu báðir miklir áhuga­menn um veiði. Sigþór hafi stundað allt frá flugu­hnýt­ingum yfir í leið­sögn víðs­vegar um landið og sjálfur kveðst Haf­steinn hafa fengið veið­bakt­er­í­una á þrí­tugs­aldri og verið ólæk­andi síðan. Þeir hafi svo hvor í sínu lagi gengið með þá hug­mynd í mag­anum að fara af stað með hlað­varp um veiði, en það hafi ekki verið fyrr en sam­eig­in­legur vinur kynnti þá að þeir ákváðu að gera eitt­hvað í mál­unum. „Þannig að við þekkt­umst ekk­ert áður en bara smullum saman og upp úr því varð Flugucastið til.“

Fjórir þættir af Flugucastinu hafa þegar litið dags­ins ljós, en nýr þáttur fer í loftið á hverjum fimmtu­degi og segir Haf­steinn ýmis­legt spenn­andi vera á döf­inni. Þannig sé til dæmis von á stórum nöfnum úr veið­inni en hann segir hins vegar ekki tíma­bært að segja nánar frá þeim að svo stöddu. Fólki verði bara að fylgj­ast með.

En hvar er hægt að nálg­ast hlað­varpið?
„Flugucastið er aðgengi­legt á Apple Podcasts, Soundclouds og Spotify,“ svarar Haf­steinn. „Svo er hlað­varpið á Facebook undir Flugucastið en þar verður hægt fylgj­ast með fréttum af nýjum þáttum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi