Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Áfangastaðurinn skiptir engu ef þú naust ekki ferðarinnar“

Síðasta ár hefur verið við­burða­ríkt hjá Ara Ólafs­syni söngv­ara en hann keppti sem kunn­ugt er fyrir Íslands hönd í Eurovision í fyrra­vor. Þrátt fyrir þessa við­komu í popp­inu er Ari ten­ór­söngv­ari og hefur lært klass­ískan söng frá ung­lings­aldri.

„Áfangastaðurinn skiptir engu ef þú naust ekki ferðarinnar“
Ari Ólafsson stundar tón­list­ar­námi í The Royal Academy of Music í London og er byrj­aður að huga að plötu sem hann langar að senda frá sér.

„Ég byrj­aði að læra klass­ískan söng þegar ég var 12 ára og var þá nem­andi hjá Garðari Thor Cortes í Söng­skól­anum í Reykja­vík,“ segir Ari sem byrj­aði fer­il­inn í söng­leiknum Oliver Twist sem var leik­stýrt af Selmu Björns­dóttur en þar lék hann sjálfan Oliver Twist. „Ég tók oft þátt í söng­leikjum og leik­list en var samt alltaf að læra klass­ískan söng með og hef því alltaf verið virkur í alls­konar tón­list. Ég valdi strax að læra klass­ískan söng því það er besta leiðin til að þróa góða, öfl­uga og heil­brigða rödd. Út frá því er svo hægt að fara í hvaða útgáfu af söng sem er,“ heldur Ari áfram og úti­lokar ekk­ert í þeim efnum en hann hefur líkt og margir hafa tekið eftir verið að koma sér á fram­færi sem ten­ór­söngv­ari og sló meðal ann­ars í gegn á úrslita­kvöldi Söngvakeppni RÚV með lag­inu Grande amore ásamt þeim Bergþóri Pálssyni og Gissuri Páli Giss­ur­ar­syni.

„Mér líður best þegar ég er með mörg mis­mun­andi verk­efni í gangi – nenni ekki að slaka á og vera bara í ein­hverju einu. Ég vil vera fjöl­hæfur, ég þrái að læra meira og er alltaf að byggja ofan á það sem ég hef gert og lært. Án þess að lofa of miklu, þar sem ég bý í London og er í krefj­andi tón­list­ar­námi, er ég loks­ins byrj­aður að vinna að hugs­an­legri plötu en ég þrái að koma með eitt­hvað nýtt inn í tón­list­ar­heim­inn. Ég er virki­lega spenntur fyrir öllum verk­efn­unum sem bíða mín í fram­tíð­inni. En eins og þeir segja; góðir hlutir ger­ast hægt, bara von­andi ekki of hægt.“

„Ég fann að ég bjó yfir meiri styrk en ég vissi af, ég stóðst álagið og ég kom sáttur heim með haus­inn von­andi á réttum stað.“

„Hef verið lánsamur“

Ari var nýlega búinn að klára fram­halds­stigs­prófið í söng og kom­inn inn á fullum skóla­styrk í The Royal Academy of Music þegar hann fór í Söngvakeppn­ina og Eurovision. Þar var söngv­ar­inn Ari kynntur til leiks, ef svo má að orði kom­ast, en færri vissu að það færi klass­ískur söngv­ari. „Eurovision var í raun algjör kynn­ing á mér og síð­asta ár hefur verið gíf­ur­lega lær­dóms­ríkt og skemmti­legt. Stærsti lær­dóm­ur­inn var lík­lega að ég upp­götv­aði að ég gæti gert allt þetta. Ég fann að ég bjó yfir meiri styrk en ég vissi af, ég stóðst álagið og ég kom sáttur heim með haus­inn von­andi á réttum stað. Það er mik­il­vægt að hafa trú á sjálfum sér og láta vaða því ann­ars kemst maður ekk­ert áfram,“ segir Ari.

„En núna er komið að mér að sanna mig sem tón­list­ar­maður og söngv­ari. Ég veit hvað ég vil – ég vil læra meira og þroskast sem tón­list­ar­maður og njóta ferð­ar­innar hvert sem hún leiðir, áfanga­staður skiptir engu ef þú naust ekki ferð­ar­innar. Ég hef verið lán­samur í líf­inu og held að lyk­ill­inn að því sé að halda í jákvæðn­ina, horfa frekar á það sem er til staðar heldur en að ein­blína á það sem manni finnst vanta. Einnig er mik­il­vægt að vera trúr sjálfum sér og leyfa sér að finna fyrir til­finn­ing­unum sínum. Ást og friður,“ segir Ari að lokum.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi