Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Var með eina og hálfa manneskju utan á sér

Tómas Þór Þórð­ar­son hefur verið ráð­inn til að stýra þætti um enska bolt­ann þegar Sjónvarp Símans tekur við útsend­ingum frá ensku deild­unum í sumar. Hann seg­ist vera ánægður með nýja starfið, þótt hann sé í eðli sínu lítið gef­inn fyrir breyt­ingar. Fáir hafa þó gert meiri breyt­ingar á lífi sínu en hann und­an­farin ár því árið 2014 var hann orð­inn 225 kíló og átti erfitt með að hreyfa sig en er í dag 105 kíló og í fínu formi. Hann segir breyt­ing­una jafn­ast á við að losna úr fjötrum.

Var með eina og hálfa manneskju utan á sér
|16. tbl. 2019

Tómas er heima að vaska upp þegar Mannlíf nær tali af honum en hann er enn í fullu starfi sem íþrótta­f­rétta­maður á Stöð 2 Sport og verður það fram á sum­arið þegar hann flytur sig um set yfir á Símann.

„Ég fékk til­boð um að rit­stýra enska bolt­anum hjá Símanum eftir að þeir keyptu rétt­inn á útsend­ingum. Enski bolt­inn hefur verið á Stöð 2 Sport ansi lengi og þeir hjá Símanum voru í leit að ein­hverjum til að vera aðal­lýsir og rit­stýra enska bolt­anum. Eins og frægt er orðið leit­uðu þeir fyrst til Gumma Ben en það gekk ekki þannig að ég var næstur á blaði hjá þeim. Ég var ekk­ert ósáttur við það að vera „second choice“, ég get alveg sætt mig við það hlut­skipti í líf­inu að vera næstur á eftir Gumma Ben,“ segir Tómas og hlær.

Fékk ekki krónu fyrstu árin

Tómas hefur verið lengi í íþrótta­f­rétta­mennsk­unni, byrj­aði strax á ung­lings­aldri að skrifa um leiki á heima­síðu síns félags, Víkings. En hvað kom til að hann tók þá ákvörðun að gera þetta að ævi­starfi?

„Ég hef alltaf haft brjál­aðan áhuga á íþróttum og ég held ég hafi alltaf vitað innst inni að þetta yrði fram­tíð­ar­starf mitt. Á þeim tíma var ekk­ert auð­velt að kom­ast í starfið, held það sé auð­veld­ara í dag, en þetta var árið 2007 og ég byrj­aði með því að skrifa á fot­bolti.net og hef haldið tryggð við þá síðan, meira að segja verið með útvarps­þátt í þeirra nafni í tíu ár. Ég fékk ekki krónu borg­aða fyrstu árin en var mjög metn­að­ar­fullur, mætti á alla lands­leiki og fullt af öðrum leikjum og skrif­aði um þá og þá fóru ein­hverjir að taka eftir mér. Ég átti ágætis félaga sem heitir Benedikt Bóas og þegar það losn­aði staða hjá honum á DV 2008 fór ég þangað. Settist við skrif­borð þar 2. jan­úar 2008 í mínu fyrsta starfi sem blaða­maður á launum og hef síðan verið í þessu starfi í rúm ell­efu ár.“

Frá DV fór Tómas yfir á Morg­un­blaðið, þar sem hann var í rúm tvö ár en þá fékk hann til­boð um starf hjá Frétta­blað­inu og þrátt fyrir að líka vel á Mogganum end­aði með því að hann tók því. „Ég kunni vel við mig á Mogganum og ætl­aði ekk­ert að fara þaðan en 365 miðlar sóttu hart að fá mig yfir til sín og buðu mér hærri laun, þannig að ég bað um mjög litla kaup­hækkun hjá Mogganum til að vera þar áfram en yfir­menn þar höfðu ekki þá fram­tíð­ar­sýn að halda mér. Það var í raun­inni allt gott á Mogganum nema æðstu yfir­menn á þeim tíma. Þannig að ég gekk þaðan út, svo­lítið von­svik­inn yfir því að þeir vildu ekki halda í mig, og fór yfir á Frétta­blaðið og Vísi í byrjun febr­úar 2014 og hef verið þar síðan. Fylgdi svo Vísis- og Stöðvar 2 Sport-pakk­anum yfir til Sýnar.“

„Það var í raun­inni allt gott á Mogganum nema æðstu yfir­menn á þeim tíma.“

Hvernig leggst í þig að skipta um vinnu­stað eftir svona langan tíma á sama stað?

„Ég er nátt­úr­lega að fara inn í nýtt fyr­ir­tæki, í nýjar höf­uð­stöðvar með nýju fólki, þannig að maður þarf að fara í nafna­leik­inn aftur,“ segir Tómas og glottir. „Það leggst bara vel í mig þótt ég sé í grunn­inn eng­inn maður breyt­inga og finn­ist mjög þægi­legt að vera í því sem ég þekki. Ef ég fengi alltaf að velja í líf­inu vildi ég helst bara borða það sama, vinna við það sama og gera það sama. Þetta eru reyndar kannski smá­ýkjur en mér líður mjög vel þar sem ég er en svona ger­ast bara kaupin á eyr­inni í þessum bransa og ég er mjög sáttur.“

Búinn að missa 120 kíló

Talandi um breyt­ingar, fáir menn hafa breytt lífi sínu á eins rót­tækan hátt og Tómas hefur gert und­an­farin ár. Átak í Meist­ara­mán­uði 2014 dróst á lang­inn og end­aði með því að hann er búinn að missa 120 kíló. Það hljómar ekki eins og ein­hver sem er ekki hrif­inn af breyt­ingum. „Það er satt,“ segir hann. „Ég er ekki alveg sami mað­ur­inn og ég var í októ­ber 2014, eig­in­lega bara allt annar maður, alla vega útlits­lega. Ég held samt að ég hafi ekki breyst mikið sem per­sóna, nema eitt­hvað aðeins til batn­aðar. Ég er alveg sami gæinn en lífið er holl­ara og tölu­vert bjart­ara eftir þessar breyt­ingar.“

Tómas Þór hefur verið lengi í íþrótta­f­rétta­mennsk­unni, en hann byrj­aði strax á ung­lings­aldri að skrifa um leiki á heima­síðu síns félags, Víkings, og kemur nú til með að stýra þætti um enska bolt­ann.

Spurður hvenær offitan hafi orðið vanda­mál fyrir hann veltir Tómas svar­inu fyrir sér dágóða stund. „Ég hef oft pælt í því hvað má kalla vanda­mál,“ segir hann.

„Ég hef verið þybb­inn eða feitur allt mitt líf, ég var voða sætur með krullur og svona þegar ég var lít­ill en alltaf búst­inn. Svo man ég að tveir kenn­arar mínir höfðu orð á því í tíunda bekk að ég væri kannski orð­inn of feitur. Það var í fyrsta sinn sem ein­hver skipti sér af því hvað ég þyngd­ist mikið. Þeir reyndu ekk­ert að leið­beina mér, höfðu bara svona orð á þessu en ég lét það sem vind um eyru þjóta. Sem ung­lingur vann ég nokkur sumur hjá Vega­gerð­inni, þar sem pabbi minn var að vinna í um fjöru­tíu ár, og þar vann ég á risa­stóru plani sem lá í brekku þannig að ég þurfti mikið að rölta hingað og þangað til að sækja timbur, gera og græja. Þarna var ég um tví­tugt og far­inn að fá í bakið ef ég gekk mikið en ég tók það ekk­ert alvar­lega og hélt bara áfram og áfram án þess að gera nokkuð í mál­inu, sama þótt for­eldrar mínir og fleiri væru að reyna að hjálpa mér að gera breyt­ingar. Vegna þess að ég tók þyngd­ar­aukn­ing­unni ekki alvar­lega varð ástandið að lokum grafal­var­legt, hélt bara áfram að versna næstu tíu árin þangað til ég var orð­inn eins og lítil pláneta. Síðast þegar ég leit á vigt­ina áður en ég tók mig á var ég 225 kíló þannig að ég miða við það.“

Tómas upp­lýsir að í dag sé hann 105 kíló. Það eru sem sagt 120 kíló fokin, eins og áður segir, og hlæj­andi seg­ist Tómas nú ekki sakna þeirra mikið. „Ég sakna sumra hluta í mínu lífi en ég sakna ekki þess­arar einu og hálfu mann­eskju sem ég bar utan á mér. Hins vegar verður maður ekki svona stjarn­fræði­lega stór án þess að glíma við hluti eins og mat­ar­fíkn og alveg ofsa­fengna leti þannig að ég segi stundum við kærust­una mína að ég sakni þess að geta ekki straujað niður einni 16 tommu pítsu eins og ekk­ert sé. Þetta er sagt bæði í gríni og alvöru en í raun og veru sakna ég þess ekki því ef ég hefði ekki farið í maga­ermi­að­gerð og gæti enn þá borðað eins og ég borð­aði áður þá væri ég ekki búinn að ná þessum árangri.“

„Var fastur inni í mér, horf­andi út“

Spurður hvort offit­unni hafi fylgt þung­lyndi, setur Tómas fyr­ir­vara. „Ég vil ekki hafa orðið þung­lyndi í flimt­ingum,“ segir hann. „Ég hef aldrei verið greindur með þung­lyndi en auð­vitað var maður and­lega þungur. Sér­stak­lega árið 2014 þegar ég náði botn­inum. Allt það ár upp­lifði ég mikla van­líðan, fór ekki á fætur fyrr en rétt áður en ég átti að mæta í vinn­una á kvöld­vakt klukkan fjögur. Ég bara komst ekki fram úr rúm­inu og fannst allt voða­lega ómögu­legt. Ég lifi að stórum hluta fyrir íslenska fót­bolt­ann en var hættur að geta farið á völl­inn. Það var algjör kvöl og pína að þurfa að horfa á leik­ina í sjón­varp­inu eins og auli.“

Tómas seg­ist ekki síst þakka hvatn­ingu frá fólk­inu í kringum hann að hann skyldi að lokum ákveða að prófa að taka matar­æðið í gegn.

„Þessi mynd er tekin árið 2016, þá var ég búinn að missa 60 kíló.“

„Allt í kringum mig var fólk sem vissi hvað í mér bjó, hvað ég gat og get varð­andi vinn­una. Alveg frá því að ég lýsti mínum fyrsta leik hef ég fundið hvað það á vel við mig og ég geri það vel, eins og sést kannski á því að nú er verið að kaupa mig til að lýsa enska bolt­anum sem tug­þús­undir horfa á – svo eitt­hvað hef ég verið að gera rétt. Ég hef kannski ekki mesta sjálfs­traust í heimi, út af mínum komp­lexum í gegnum tíð­ina. Ég var alltaf að líta í kringum sig til að gá hvort ein­hver væri að benda á mig eða tala um mig sem byggði upp óör­yggi og gerði mér erfitt fyrir að vera eitt­hvað breim­andi af sjálfs­trausti út á við.

„Það vill eng­inn horfa á mann sem er 225 kíló.“

En samt sem áður þá hef ég alltaf vitað að í þessum eina geira, að minnsta kosti, þá get ég fjallað og talað um íþróttir og lýst þeim. Ég hef það, en gat aldrei verið fyrir framan mynda­vél, bara lýst leikjum þar sem eng­inn mögu­leiki var á að ég þyrfti að vera í mynd. Það vill eng­inn horfa á mann sem er 225 kíló. Ég vissi samt að ég gat það og vissi líka að það voru fleiri á þeirri skoðun þótt ég væri ekki lík­am­lega í standi til þess. Það olli mér van­líðan að vita hvað ég gat en þurfa að horfa á það líf sem ég gæti átt í gegnum ein­hverja rimla. Ég var bara fastur inni í mér, horf­andi út. Og sem betur fer braust ég á end­anum út og er núna með tvo sjón­varps­þætti auk þess að lýsa oft beinum útsend­ingum og hef átt alveg frá­bær ár und­an­farið.“

Brenndur eftir fyrstu höfnunina

Þegar ég spyr Tómas hvað hafi að lokum ýtt honum út í að fara að gera eitt­hvað í sínum málum, hvort hann hafi orðið ást­fang­inn eða eitt­hvað, fer hann aftur að hlæja. „Nei, það kom síðar og hefur gert enda­laust af hlutum fyrir mig líka,“ segir hann og brosir út að eyrum.

„Ég veit eig­in­lega ekki alveg hvað gerð­ist en í októ­ber­mán­uði 2014 ákvað ég, meira í gríni en alvöru, að taka þátt í Meist­ara­mán­uði, sem er reyndar konsept sem ég hef gert grín að í gegnum tíð­ina. Það bara virt­ist ekki óyf­ir­stíg­an­legt að borða ekki ógeðs­lega óhollan mat eða nammi og drekka ekki sykrað gos í einn mánuð. Það gekk upp en þegar þú ert svona feitur og færð þér til dæmis epli í stað­inn fyrir Snickers í vinn­unni hafa allir skoðun á því og vilja endi­lega ræða það við þig, sem er það versta sem fólk í minni stöðu getur lent í. Ég veit að þetta er vel meint og fólk er boðið og búið til að hjálpa þér og styðja þig, en maður þarf ekki komment á hvern ein­asta hlut sem maður gerir ef maður er að reyna að taka sig á. Þetta var auð­veld­ara undir yfir­skin­inu Meist­ara­mán­uður. Það kost­aði færri komment frá fólk­inu í kring sem var gott, maður vill byrja þessa ferð með sjálfum sér.“

„Það gekk upp en þegar þú ert svona feitur og færð þér til dæmis epli í stað­inn fyrir Snickers í vinn­unni hafa allir skoðun á þv.“

Til að gera langa sögu stutta þá gekk Tómasi ágæt­lega að halda sig frá óholl­ust­unni í einn í mánuð þannig að hann ákvað að fram­lengja Meist­ara­mán­uð­inn einn mánuð í einu þangað til hann var búinn með eitt meist­araár, tók matar­æðið í gegn, hætti að borða sæl­gæti og drekka gos á kvöldin og, eins og hann segir sjálfur, fór bók­staf­lega að geta gengið aftur án þess að þurfa að setj­ast og hvíla sig eftir 50-60 metra. Hann segir kílóin ekki hafa hrunið af sér en honum hafi liðið betur og lík­am­inn hafi verið betur á sig kom­inn. Það sem gerði svo úts­lagið var að hann komst að sem hugs­an­legur kandi­dat í maga­ermis­að­gerð, sem honum hafði árið áður verið neitað um á þeim for­sendum að hann væri of feitur.

„Það voru mjög erfið skila­boð að vera sagt að maður væri of feitur til að geta fengið hjálp við offitu,“ segir hann. „Ég harð­neit­aði fyrst að fara aftur til lækn­is­ins, sagði við for­eldra mína sem höfðu sett þetta ferli aftur í gang, að ég væri bara enn þá svo brenndur eftir höfn­un­ina frá honum, ég gæti ekki með­tekið aðra höfnun. Þau ráku mig samt til hans og þótt ég væri ekki búinn að losna við nema tíu kíló og væri því enn of þungur til að fara í aðgerð­ina sjálfa sagði hann að þetta liti mun betur út. Ég fékk bolta með vatni í mag­ann og var með hann í tvo mán­uði, missti tutt­ugu kíló og var þá gjald­gengur í aðgerð­ina sem ég fór í í mars 2016. Síðan hafa kílóin bara verið á strauinu niður.“

„Sturtaði frá mér þrí­tugs­aldr­inum með mat“

Spurður hver stærsta breyt­ingin sé eftir að kílóin fuku dæsir Tómas og segir að það sé ein­fald­lega allt. Hann hafi til dæmis getað farið til útlanda í fyrsta skipti í mörg ár og nú geti hann gengið um allt, hafi til dæmis gengið 16 kíló­metra á einum degi í New York fyrir skömmu. Mesta breyt­ingin sé þó kannski sú að þurfa ekki lengur að vera að fela vand­ann og ljúga því að fólk­inu sínu að hann sé að taka sig á.

Fáir hafa gert meiri breyt­ingar á lífi sínu og Tómas. Árið 2014 var hann orð­inn 225 kíló og átti erfitt með að hreyfa sig en í dag er hann 105 kíló og í fínu formi.

„Ég var alltaf að ljúga því að ég væri að gera eitt­hvað í þessu,“ segir hann. „Það er mjög erfitt að vera í enda­lausum blekk­inga­leik, aðal­lega við sjálfan sig auð­vitað, en líka þá sem standa manni næst. Lygar og felu­leikir eru algjör­lega órjúf­an­legur hluti af fíkni­hegð­un­inni og það er alveg ótrú­legt hvað það er erfitt að fá hjálp við mat­ar­fíkn. Ég vona samt að það sé komið eitt­hvað lengra núna en það var á þeim árum. Ég fór enda­laust til nær­ing­ar­fræð­inga og lækna sem allir höfðu sína lausn á vanda­mál­inu og ég get alveg sagt að ég var í und­ir­bún­ings­vinnu fyrir þetta í tutt­ugu ár. Ég vissi alltaf hverjar hætt­urnar voru og hvað gæti gerst, var búinn að fá allar upp­lýs­ingar um hvað ég ætti að gera og hvernig ég ætti að nær­ast, ég bara fór aldrei eftir því sem mér var sagt fyrr en ég loks­ins tók mig á.“

Komum aftur að því hver er stærsta breyt­ingin?

„Já, á rosa­lega skömmum tíma var ég far­inn að geta gert alls konar hluti sem ég hafði ekki getað áður,“ útskýrir Tómas. „Ég hafði til dæmis ekki getað farið í vinnu­ferðir til útlanda síðan 2008 þegar ég fór á EM í Frakk­landi 2016. Ég hafði bara einu sinni á þeim tíma farið í flug, í afmæl­is­ferð með pabba til Manchester 2014. Ég var bara fangi á Íslandi. Síðan ég fór í aðgerð­ina hef ég farið í enda­lausar flug­ferðir, bæði vegna vinn­unar og til að skemmta mér með kærust­unni. Og ég get gengið.

„Mér finnst ég engan tíma mega missa þar sem ég sturt­aði frá mér þrí­tugs­aldr­inum með mat.“

Ég veit ekki hvort nokkur maður áttar sig á því hvernig það er að geta ekki labbað nema 60 metra í einu og geta ekki staðið í lapp­irnar meira en fjórar mín­útur í einu án þess að þurfa að setj­ast, þannig að mér finnst næstum því eins stór­kost­legt að geta gengið um allt eins og að sjá alla þessa stór­kost­legu staði. Svo er ég nátt­úr­lega kom­inn með minn eigin sjón­varps­þátt sem ég hélt að myndi aldrei ger­ast, það var verið að kaupa mig í aðra vinnu og ég er kom­inn í sam­búð. Þannig að hlut­irnir hafa gengið alveg rosa­lega hratt fyrir sig eftir að ég loks­ins komst í stand til að gera venju­lega hluti í líf­inu, ná frama í vinn­unni og verða ást­fang­inn til dæmis. Mér finnst ég engan tíma mega missa þar sem ég sturt­aði frá mér þrí­tugs­aldr­inum með mat, þannig að mark­miðið er að reyna að gera eitt­hvað af viti á þessum bless­aða fer­tugs­aldri.“

Bara pláss í íþróttahjartanu fyrir Víking

En kom aldrei neitt annað starf til greina?

Hefurðu ekki áhuga á neinu nema íþróttum?„Eh, nei, eig­in­lega ekki,“ segir Tómas og skelli­hlær. „En ég hef áhuga á eig­in­lega öllum íþrótta­greinum og þær eru ansi margar. Íþróttir eru mínar ær og kýr og ég veit alveg ótrú­lega mikið um þær. Ég geri ekki upp á milli íþrótta­greina, ef ein­hver getur unnið í leiknum þá hef ég áhuga.“

Íslenskum íþrótta­f­rétta­mönnum er stundum legið á hálsi fyrir að halda með ákveðnum liðum í enska bolt­anum og ég dreg þá ályktun af sögu Tómasar um flug­ferð­ina til Manchester að hann sé stuðn­ings­maður Manchester United. Hann neitar því ekki, en seg­ist þó alls ekki vera ein­hver eld­heitur stuðn­ings­maður liðs­ins. „Það halda til dæmis margir að ég haldi með Southampton,“ segir hann sposkur. „Ég hef aldrei verið svo mik­ill stuðn­ings­maður að það hafi farið í taug­arnar á fólki þegar ég er að lýsa leikjum. Ég hef bara pláss í íþrótta­hjart­anu til að vera sturl­aður stuðn­ings­maður eins liðs og það er Víkingur. Það er nógu mikil sorg og lítið af gleði hjá stuðn­ings­mönnum þess liðs, þannig að ég hef ein­hvern veg­inn hvorki hjarta né taugar í það að hella mér út í stuðn­ing við fót­boltalið í útlöndum.“

Tómas er enn á Stöð 2 Sport, eins og fyrr segir, og verður þar fram í lok maí en þá fer hann yfir til Símans og hefur und­ir­bún­ing að upp­hafi útsend­inga á enska bolt­anum í byrjun ágúst. Eitthvað sem við getum öll hlakkað til.

 Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi