Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fjórir af fimmtán hæstu útsvarsgreiðendum í Garðabæ búa beinlínis hlið við hlið

Fjórir af fimmtán þeirra sem hæstar útsvars­greiðslur greiða í Garðabæ búa bein­línis hliðin á hvor öðrum sam­kvæmt athugun Stund­ar­innar . Þá búa tíu þeirra í sama hverf­inu. Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, rit­stýra Stund­ar­innar, gerir aukna stétta­skipt­ingu á Íslandi og hraða sam­þjöppun auðs að umfjöll­un­ar­efni í nýjum leið­ara Stund­ar­innar.

Fjórir af fimmtán hæstu útsvarsgreiðendum í Garðabæ búa beinlínis hlið við hlið

Hún bendir á að Íslensk yfir­sétt sé eins­leit með ein­dæmum. „Í rann­sókn á elítu Íslands kom í ljós að fólk sem til­heyrir elít­unni er lík­legra til að bía á sama svæði. Í Garðabæ og á Sel­tjarn­ar­nesi búa 2,5 sinnum fleiri úr við­skipta- og atvinnu­el­ít­unni en ann­ars staðar, þeirra á meðal fram­kvæmda­stjórar stærstu fyr­ir­tækja lands­ins,“ segir í leið­ara Stund­ar­innar. Ingi­björg bendir á að búseta myndi inn­byrðis tengsl „sem við­halda elít­unni, með­limir í fram­kvæmda­stjórnum fyr­ir­tækja er lík­legri til að velja nágranna sína með sér í stjórn. Eftir því sem menn eru virk­ari í stjórn­mála- og íþrótta­starfi aukast lík­urnar á því að stjórn­ar­menn fyr­ir­tækja komi úr sama póst­núm­eri.“

Ingi­björg nefnir dæmi um tekjur rík­asta Íslend­ings­ins sem kemur úr röðum útgerð­ar­manna. Sá aðili þénar slíkar tekjur að það tæki lækni með 1.5 milljón á mán­uði 117 ár að þéna sömu upp­hæð. „Mann­eskja á lág­marks­launum væri 576 ár að ná því.“

Þá gerir hún hags­muna­bar­áttu efstu laga sam­fé­lags­ins að umfjöll­un­ar­efni í leið­ar­anum og nefnir þar meðal ann­ars bar­áttu útgerð­ar­manna gegn sér­stöku veiði­gjaldi. Gjaldi sem hefur að mark­miði að skila rentu vegna tak­mark­aðs aðgengis að auð­lindum til sam­fé­lags­ins í stað þess að skilja rentu eftir hjá útgerð­inni sjálfri. „Veiði­leyfagjaldi var harð­lega mót­mælt, enda full­yrtu hags­muna­sam­tök útgerð­ar­manna að þau myndi valda fjölda­gjald­þoti í grein­inni. Sama ár skil­uðu útgerð­irnar met­hagn­aði. Á fundi með íbúum í litlu sjáv­ar­plássi birti for­stjóri útgerð­ar­innar mynd af börnum sínum og spurði hvað yrði um fram­tíð þeirra, ef veiði­leyfagjöldum yrði komið á. Því var hótað að auknum álögum rík­is­ins yrði velt yfir á sjó­menn­ina sjálfa, sem áttu ekki aðeins að bera kostn­að­inn heldur einnig mót­mæla þessum áformum.“

Ritstýra Stund­ar­innar nefnir fleiri dæmi um hvernig efsta lag sam­fé­lags­ins hefur komið sér hjá því að standa sína plikt og hvernig kerfið virð­ist bein­línis hannað til að aðrar reglur gildi um hóp­inn en aðra. „Fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi við­ur­kenndi skatta­laga­brot en brot hans voru fyrnd. Hann var síðan dæmdur fyrir pen­inga­þvætti,“ skrifar Ingi­björg. Þar á hún við mál­efni Júlíus Vífils Ingv­ars­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem faldi fé frá fjöl­skyldu sinni og skatt­yf­ir­völdum auk þess að þvætta féð og nota í eigin þágu. Júlíus var dæmdur fyrir pen­inga­þvætti en fékk að halda fénu. Sak­sókn­ari gerði ekki kröfu um upp­töku fárs­ins þrátt fyrir að slíkt tíðk­ist. Þá nefnir hún dóma sem féllu vegna banka­hruns­ins og hvernig sömu aðlar og hlotið höfðu dóma gátu haldið við­skiptum með aflands­fé­lögum áfram innan veggja fang­els­is­ins auk þess að fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans stóð þeim til boða.

„Einstaka sinnum fáum við inn­sýn í valdastrúktúr sam­fé­lags­ins. Hvernig fámennir hópar beita áhrifum sínum eigin þágu en ekki sam­fé­lags­ins. Við vitum að þeir sem fara með völd í íslensku sam­fé­lagi, hafa pen­inga og stöðu til, hafa til­hneig­ingu til að beta áhrifum sínum til að styrkja stöðu sína. Við vitum líka að það þjónar ekki endi­lega hags­munum okkar sem sam­fé­lags að eft­ir­láta þeim þetta vald.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi