Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Alltaf verið hugfangin af glæpum og sakamálum“

Morðcastið er nýtt hlað­varp (e. podcast) úr smiðju Unnar Örnu Borg­þórs­dóttur sem hefur lokið grunn­námi lög­fræði, býr í Kaup­manna­höfn og er sér­stak­lega áhuga­söm um íslenskan refsirétt.

„Alltaf verið hugfangin af glæpum og sakamálum“
Unnur Arna Borg­þórs­dóttir.|Unnur Arna Borg­þórs­dóttir frá Egils­stöðum er þátt­ar­stjórn­andi hlað­varps­ins Morðkast en hún er mikil áhuga­mann­eskja um sönn saka­mál. Mynd / Aðsend

„Hug­myndin er nú ekki ný af nál­inni,“ segir Unnur í sam­tali við Mannlíf. „Ég hef alltaf verið hug­fangin af glæpum og saka­málum og hef í gegnum tíð­ina mikið kynnt mér slíkt, meðal ann­ars með því að hlusta af ákafa á erlend hlað­vörp þar sem fjallað er um efnið. Mér hefur hins vegar alltaf fund­ist slíkt vanta fyrir íslenskan markað og sér­stak­lega þar sem íslenskir glæpir eru teknir fyrir.“

Í lög­fræði­nám­inu hefur Unnur varið miklum tíma í að skoða gömul mál og áhuga­verða dóma. „Ég tuð­aði mikið um að það vant­aði svona íslenskt hlað­varp og vin­konur mínar sögðu mér að ég ætti þá bara að gera það sjálf. Stuttu seinna voru upp­töku­græjur á leið­inni og ég á Youtube að finna út úr því hvernig á að klippa saman hlað­varps­þátt.“

Unnur Arna Borg­þórs­dóttir frá Egils­stöðum er þátt­ar­stjórn­andi hlað­varps­ins Morðcast en hún er mikil áhuga­mann­eskja um sönn saka­mál. Mynd / Aðsend

Mál Mary Vincent á toppnum
Í þætt­inum verða tekin fyrir íslensk og skand­in­av­ísk morð- og saka­mál á aðeins létt­ari nótum. „Ég stefni á að kynna hlust­endur fyrir tveimur saka­málum í hverjum þætti en það fer eðli­lega líka eftir umfangi mál­anna sem tekin eru fyrir. Einnig koma gestir í þátt­inn til mín sem segja frá sínum upp­á­halds­málum en ég vil endi­lega ná að fræða hlust­endur og jafn­framt hafa þetta í spjall­formi upp að vissu marki,“ segir Unnur sem heill­ast hefur af fjöl­mörgum málum í gegnum tíð­ina.

„Ég er ekki mikið fyrir þessa stærstu raðmorð­ingja, heldur hef ég heill­ast meira af því sem endar vel eða eru flókin í sönn­un­ar­færslu eða hinu laga­lega umhverfi.“

„Ég er ekki mikið fyrir þessa stærstu raðmorð­ingja, heldur hef ég heill­ast meira af málum sem enda vel eða eru flókin í sönn­un­ar­færslu eða hinu laga­lega umhverfi. Málið hennar Mary Vincent er alveg vafa­laust á toppnum hjá mér þegar talað er um upp­á­halds­saka­mál, en hún einmitt lifði af hrotta­lega árás. Annars verð ég alltaf mjög heilluð af því sem ég skoða hverju sinni. Íslensk saka­mál hafa líka alltaf heillað mig mikið, sér­stak­lega þar sem mér finnst oft sem það sé látið sem þau hafi hrein­lega ekki átt sér stað og umræðan er lítil sem engin um þau. Með Morðcastinu vil ég þess vegna opna um þau umræð­una og gera þeim góð skil.“

Fyndin og hnyttin
Unnur svarar því bæði ját­andi og neit­andi þegar hún er spurð hvort hún eigi sér fyr­ir­myndir í hlað­varps­heim­inum. „Mér finnst mik­il­vægt að þátt­ur­inn sem ég er að hlusta á grípi mig, hvort sem um er að ræða staka þætti eða heila seríu af þáttum. Serial, Up and Vanished og My Favorite Murder eru vafa­laust nokkur af mínum upp­á­halds­hlað­vörpum og svo finnst mér Snorri Björns mjög góður þátta­stjórn­andi. Mér þætti þar af leið­andi gaman að vera ein­hvers­konar blanda af þeim öllum. Ná að halda athygli hlust­enda, vera fyndin og hnyttin, en samt geta frætt og vera vel upp­lýst.“

Þátt­ur­inn kemur út á hverjum fimmtu­degi og hann er aðgengi­legur á öllum helstu hlað­varpsveitum eins og iTu­nes, Apple podcasts, Podbean, Spotify, Podcast Addict, og Pocket casts. Morðcastið er að finna á Instagram og Twitter og svo er hægt að hafa sam­band við Unni gegnum [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi