Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Teipuðu fyrir munninn á Gordon Ramsey

Jóhanna Jak­obs­dóttir, eig­andi veit­inga­stað­ar­ins Nostra, starf­aði meðal ann­ars við hug­bún­aðar- og tækni­þýð­ingar, var heima­vinn­andi og uppi­stand­ari áður en hún hellti sér í veit­inga­brans­ann. Nostra fékk nýlega við­ur­kenn­ingu þegar hann komst lista yfir veit­inga­staði sem Michelin mælir með.

Teipuðu fyrir munninn á Gordon Ramsey

„Ég kom í raun inn í þetta alveg græn sem fjár­festir og ætl­aði að hafa þetta sem krútt­legt áhuga­mál. Það varð ekki bein­línis raunin,“ byrjar Jóhanna. Nostra var form­lega opn­aður 21. októ­ber 2017 og hún segir að stað­ur­inn leggi áherslu á ferskt, íslenskt hrá­efni og sjálf­bærni. „Við höfum verið í nor­rænni mat­ar­gerð undir klass­ískum frönskum áhrifum en mest í svoköll­uðum mat­ar­upp­lif­unum, fjög­urra, sex og átta rétta mat­seðlum.“

Það er mik­ill heiður að vera komin þessa við­ur­kenn­ingu ein­ungis tæpu einu og hálfu ári frá opnun.

Nostra fékk nýlega við­ur­kenn­ingu frá Michelin og er núna í Michelin Guide sem þýðir að Michelin mælir með staðnum en Michelin sendur á bak við ein virt­ustu verð­laun sem veitt eru í veit­inga­geir­anum. „Margir fletta upp í Michelin Guide áður en þeir ferð­ast til stór­borga og velja veit­inga­staði með hlið­sjón af því sem þar kemur fram og það er mik­ill heiður að vera komin þessa við­ur­kenn­ingu ein­ungis tæpu einu og hálfu ári frá opnun. Aðeins níu veit­inga­staðir á Íslandi hafa þessa við­ur­kenn­ingu í dag.“

Var lengi heimavinnandi

Jóhanna starf­aði lengi sem þýð­andi, meðal ann­ars hug­bún­aðar- og tækni­þýð­ingar fyrir Google og Expedia.

„Mér finnst stundum gaman að skjóta því að ég hafi unnið fyrstu íslensku þýð­ing­una af Gmail en ann­ars var þetta nú ekk­ert glam­úr­starf. Ég sat mest á nátt­bux­unum heima og baukaði í ein­hverjum for­ritum,“ segir Jóhanna. Hún hefur alltaf haft mik­inn áhuga á leik­list og ekki síst uppi­standi sem hún sótti þegar hún bjó í Montreal í Kanada.

Nostra fékk nýlega við­ur­kenn­ingu frá Michelin og er núna í Michelin Guide sem þýðir að Michelin mælir með staðnum.

„Ég fór svo á fullt í að taka nám­skeið í bæði leik­list og improv-i þar úti og hélt svo áfram í slíku eftir að ég flutti heim árið 2011. Svo leidd­ist ég bara óvart út í að vera með uppi­stand, oft fyrir fjölda fólks, en hef lítið sinnt því und­an­farið – tek það kannski upp síðar. Úti í Kanada lærði ég líka mark­þjálfun en hef aldrei starfað við það – það hefur hins vegar komið að góðum notum nú þegar ég er með manna­for­ráð og eins þegar ég tók við­töl í heim­ild­ar­mynd­inni Fellum grímuna fyrir Ekta Ísland. Ég er afar stolt af því verk­efni okkar Sig­ur­bjargar Bergs­dóttur því það hafði jákvæð áhrif á þá sem á horfðu og boð­skap­ur­inn er skýr og fal­legur,“ segir hún og bætir við að myndin sé aðgengi­leg á Facebook-síðu fyr­ir­tæk­is­ins.

„Þrátt fyrir að hafa prófað fjöl­margt hef ég nú lík­lega varið hvað mestum tíma í eld­hús­inu en ég var heima­vinn­andi í mörg ár. Ég myndi seint telj­ast afburða hús­móðir en ég er góður kokkur, þótt ég telj­ist senni­lega til ham­fara­kokka því ég þarf að hafa mann­eskju til þess að taka til eftir mig þegar ég kemst í gír­inn. Þegar ég bjó úti und­ir­bjó ég mat­inn oft dag­inn áður og byrj­aði kannski að elda í kvöld­mat­inn í hádeg­inu. Það er kannski þess vegna sem veit­inga­húsa­rekstur heill­aði mig síðar meir.“

Starfsfólkið mikilvægt

Jóhanna leggur áherslu á að án starfs­fólks­ins væri eng­inn veit­inga­staður og er stolt af öllum þeim sem vinna á Nostra. „Það er alveg ein­stakt starfs­fólkið; metn­að­ar­fullt, tryggt, dug­legt og lausn­a­miðað,“ segir Jóhanna en athygli hefur vakið að starfs­fólkið er kynnt sér­stak­lega á heima­síðu Nostra.

„Mig langar að gestir okkar upp­lifi að þeir þekki starfs­fólkið og finni að við leggjum okkur öll fram um að gera upp­lifun­ina hjá okkur sem allra besta. Svo er það ekki síður mik­il­vægt að starfs­fólkið finni að það skipti máli og að verk þess og eig­in­leikar séu metin að verð­leikum. Mannlegi þátt­ur­inn er alltaf það sem skiptir mestu máli í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur.“

Til að leggja áherslu á orð sín nefnir Jóhanna að strax í upp­hafi hafi stofn­endur Nostra ákveðið að ein­ræð­is­herrastemn­ing, eins og víða tíðkast í eld­húsum yrði ekki liðin.

Gordon Ramsey er þekktur fyrir óheflaða fram­komu og fúk­yrði og við vildum að and­inn yrði alger­lega gagn­stæður.

„Gordon Ramsey er þekktur fyrir óheflaða fram­komu og fúk­yrði og við vildum að and­inn yrði alger­lega gagn­stæður – virð­ing, vin­semd og sam­vinna höfð að leið­ar­ljósi. Stofn­endur útveg­uðu sér pappa­spjald af Gordon í fullri stærð, teip­uðu fyrir munn­inn á honum og stilltu upp í rým­inu á meðan fram­kvæmdir stóðu yfir. Það má segja að þetta hafi verið tákn­rænn gjörn­ingur.“

Róandi að skrifa

Jóhanna gerir ýmis­legt í frí­stundum, finnst nauð­syn­legt að hreyfa sig 3-6 sinnum í viku og fer í Laugar á morgn­anna.

„Mér finnst best að vakna snemma og hafa dálít­inn tíma áður en allt fer í gang. Þá fæ ég mér kaffi og hug­leiði aðeins inn í dag­inn. Nýlega fór ég líka að skrifa dag­bók en mér finnst afar róandi að skrifa þegar ég er stressuð þótt það sé oft bara eitt­hvert bull í bland við verk­efna­lista og mark­mið dags­ins. Annars er aðal­á­huga­mál mitt í gegnum tíð­ina lestur góðra bóka. Best finnst mér að ná jarð­teng­ingu með því að dúll­ast í eld­hús­inu og knúsa og fífl­ast í börn­unum mínum. Svo hef ég alltaf sagt að það er fátt sem sjóð­andi heitt bað getur ekki lagað,“ segir hún.

Fram undan er svo að koma Nostra á næsta stig eða nokk­urs konar Nostra 2.0 eins og hún nefnir það.

„Ég vil fá fleiri Íslend­inga sem fasta­gesti, meira stuð og bjóða upp á à la carte-seðil sem segir sex, til við­bótar við setta seðla sem hafa verið í for­grunni hjá okkur frá upp­hafi. Svo langar mig aðeins að poppa upp hitt og þetta en sjáum hvað setur og hvað verður.

Að lokum má geta þess að við vorum að fá við­ur­kenn­ingu frá Reykja­vík Grapvine fyrir að vera besti stað­ur­inn til þess að fara fínt út að borða á en í fyrra vorum við val­inn besti nýi veit­inga­stað­ur­inn og bar­inn okkar Artson – besti nýi bar­inn af sama tíma­riti. Allt svona gleður mann og hvetur mann áfram til góðra verka. Svo verð ég bara að koma einu að í við­bót – ég er afar lítið fyrir eft­ir­rétti en ég lýg engu þegar ég segi að eft­ir­rétt­irnir á Nostra eru upp á tíu. Þeir eru svo pass­lega sætir, með gott jafn­vægi og alltaf áhuga­verðir án þess að vera of skrýtnir. Þið bara hrein­lega verðið að smakka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi