Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það er enginn sem grípur mann“

Eig­in­maður Önnu Ing­ólfs­dóttur, Árni Mar­geirs­son, lést af völdum krabba­meins þrjá­tíu og níu ára gam­all. Anna segir tíma­bært að tala upp­hátt um stöðu ungs fólks sem missir maka og sér­stak­lega stöðu barna sem missa for­eldri.

„Það er enginn sem grípur mann“
Anna Ing­ólfs­dóttir

„Það eru rúm tutt­ugu ár síðan mað­ur­inn minn féll frá,“ segir Anna. „Hann hafði kennt sér meins um þremur árum áður og greind­ist þá með glút­en­óþol en veik­ist svo hast­ar­lega og þá kom í ljós að hann var með æxli í smá­girni. Það ferli tók nokkra mán­uði. Þetta voru erf­iðir tímar, við ung hjón með fullt af skuld­bind­ingum og þrjár ungar dætur sem voru fjög­urra, sex og tólf ára gamlar.“

Erfiðast að skilja börnin sín eftir
„Á þessum tíma bjuggum við á Egils­stöðum en ætt­in­gj­arnir í Reykja­vík. Árni leit­aði lækn­inga á Sjúkra­hús­inu á Akureyri, þannig að fjöl­skyldan var oft á þremur stöðum meðan á þessu stóð, yngri stelp­urnar hjá ætt­ingjum í Reykja­vík, elsta dóttirin hjá vina­fólki á Egils­stöðum en ég mikið með honum á Akureyri.

Þegar mak­inn deyr deyja líka fram­tíð­ar­draum­arnir en skuld­bind­ing­arnar standa eftir.

Árni lést svo á Lands­spít­al­anum. Það er afskap­lega erfitt að horfa í augun á barn­inu sínu og segja því að pabbi sé að deyja. Oft geta börn orðið mjög hrædd um að hitt for­eldrið deyi líka. Og börn tala hreint út, spyrja beint: „Mamma, munt þú deyja líka?“ Og hvernig getur „dauð­hrætt“ for­eldri lofað barni að það deyi ekki sjálft? Þetta er mjög við­kvæmt og flókið og oft þurfa for­eldrar mik­inn stuðn­ing, bæði fyrir sig og börnin. Á ákveðnum tíma­punkti var ljóst að hverju stefndi. Árni var sjálfur opin­skár með það og virt­ist á ákveð­inn hátt geta horfst í augu við eigin dauða af æðru­leysi. Það sem var erf­ið­ast fyrir hann var að skilja okkur allar eftir og geta ekk­ert að gert.

Þegar mak­inn deyr deyja líka fram­tíð­ar­draum­arnir en skuld­bind­ing­arnar standa eftir. Maður situr með það allt í fang­inu og alla þessa yfir­þyrm­andi sorg. Maður syrgir mak­ann og saknar óend­an­lega og maður syrgir líka fram­tíð­ina sem hefði getað orðið. Svo verður sorgin líka mikil yfir börn­unum sem hafa misst for­eldri sitt. Manni finnst það svo ósann­gjarnt. Þar kemur ekk­ert í stað­inn.“

Anna Ing­ólfs­dóttir myndi vilja sjá mála­flokk frá rík­inu sem er helg­aður stuðn­ingi við ungt fólk sem missir maka og börn þeirra. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Erf­ið­ustu stund­irnar voru sólin og jólin
Anna segir að fjöl­skyldan hafi flutt þremur árum síðar frá Egils­stöðum í Garða­bæ­inn. Henni þótti of mikið álag fyrir börnin að að flytja strax frá Egils­stöðum þar sem var gott sam­fé­lag sem hélt utan um þau. „Það er svo margt sem er erfitt fyrst á eftir. Til dæmis það að alls staðar úti í líf­inu erum við minnt á að það vantar pabbann í fjöl­skyld­una. Svo smám saman fær­ist lífið í ein­hverjar skorður. Erf­ið­ustu stund­irnar voru sólin og jólin, þegar allir voru að fara í sum­ar­frí og jólin þegar fjöl­skyldan var saman. Það getur verið flókið og erfitt að standa allt í einu einn með börn og þurfa að vera bíll og bíl­stjóri í öllu. Ég finn mikið til með ungu fólki í dag sem á ekki hús­næði og missir maka. Ég hefði orðið gjald­þrota ef ég hefði þurft að leigja hús­næði á sams konar leigu­verði og því sem er í gangi í dag. Ég var heppin, fékk hjálp við að velja íbúð sem ég gat keypt.“

„Erf­ið­ustu stund­irnar voru sólin og jólin, þegar allir voru að fara í sum­ar­frí og jólin þegar fjöl­skyldan var saman.“

Anna bendir á að hlut­skiptið að vera ein­stætt for­eldri hefur aldrei verið hátt skrifað í sam­fé­lag­inu hér eða hvar sem er í heim­inum og því breyti það miklu að vera skyndi­lega í þeim sporum. „Samfélög eru para­miðuð og fólk sem er ekki hluti af pari veit alveg hvað ég er að tala um.“

Fyrir nokkrum árum birti Anna sögu sína um maka­miss­inn í bók­inni Maka­laust líf sem hún skrif­aði með Guðfinnu Eydal sál­fræð­ingi sem þá var nýbúin að missa eig­in­mann sinn til ára­tuga. „Við könn­uð­umst hvor við aðra. Ég sýndi henni sög­una mína og við ákváðum að skrifa bók sem sam­ein­aði reynslu og sál­fræði. Við létum svo þýða bók­ina með breyt­ingum og hún kom svo út hjá Amazon á ensku. Nú erum við, tíu árum síðar, að fara yfir texta og stefnum á að end­ur­gera íslensku bók­ina með ýmsum breyt­ingum og við­bótum. Nú nálg­umst við mál­efnið á annan hátt, af meiri fjar­lægð og yfir­sýn. Bókin fékk ágætis athygli á sínum tíma en það er bara þannig að fáir vilja raun­veru­lega tala um dauð­ann. Fólk vill helst ekki vita af dauð­anum. Þessi umræða er við­kvæm og þrúg­andi þrátt fyrir að allir viti að dauð­inn er óhjá­kvæmi­legur hluti af líf­inu. Við hlaupum svo­lítið undan þess­ari umræðu.“

Áfallið fer ekk­ert frá þótt tím­inn líði
Anna segir þurfa fleiri úrræði fyrir börn sem missa for­eldri. Talið er að allt að 50 börn missi for­eldri sitt á hverju ári á Íslandi. „Það dúkka upp fréttir af því með reglu­legu milli­bili, kannski á fimm ára fresti. En ekk­ert svo meir. Það eru engin sér­stök úrræði til fyrir þessi börn. Væri ekki eðli­legt að for­eldrar sem missa maka og börnin þeirra fái fría sál­fræði­þjón­ustu í þrjú ár eða um þriggja ára skeið sem þau geta tekið þegar á þarf að halda, vegna þess að áfallið fer ekk­ert frá þótt tím­inn líði. Það gæti breytt miklu fyrir marga.

„Ég tel að for­eldrar séu verð­mætasta fólkið á jörð­inni. Greið­asti stuðn­ingur við börn er í gegnum for­eldra. Þess vegna þarf að hlúa að for­eldrum og veita þeim stuðn­ing.“

Bara sú vit­neskja að vita að það er til stuðn­ingur þarna úti af hálfu sam­fé­lags­ins gæti haft góð áhrif. For­eldrar þurfa oft mik­inn stuðn­ing. Ég tel að for­eldrar séu verð­mætasta fólkið á jörð­inni. Greið­asti stuðn­ingur við börn er í gegnum for­eldra. Þess vegna þarf að hlúa að for­eldrum og veita þeim stuðn­ing. Þeir sem missa maka og eru með börn í upp­eldi eru ber­skjald­aðir. Fólk er oft í svo miklum sárum og sorg að það getur ekki staðið í því að leita og berj­ast. Það stendur oft aleitt og það er eng­inn sem grípur.

Ég mundi vilja sjá mála­flokk frá rík­inu sem er helg­aður stuðn­ingi við ungt fólk sem missir maka og börn þeirra. Íslenskt sam­fé­lag getur gert betur. Við þurfum stefnu í þessum málum sem greiðir fyrir aðgangi þess­ara for­eldra og barna þeirra að stuðn­ingi. Við eigum fullt af góðu fólki og fag­að­ilum sem geta gert mikið ef fjár­magn og með­vituð stefna er til staðar. Er þetta ekki bara áskorun til þeirra sem völdin hafa?“

Sjá: „Eina svarið sem ég fékk ekki var: Hvar er mamma núna?“

Sjá líka: „ Þetta er ólækn­andi sjúk­dómur og ég vill að mínir nán­ustu geti rætt þetta“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi