Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bólusetningarskylda gæti haft öfug áhrif

Sótt­varn­ar­læknir telur ekki ástæðu til að taka upp bólu­setn­ing­ar­skyldu þrátt fyrir ný til­felli misl­inga hér á landi. Slíkar aðgerðir gætu jafn­vel haft öfug áhrif. Hlutfall bólu­settra er lægra en æski­legt þykir en fyr­ir­byggj­andi aðgerðir ættu að duga til að koma málum í rétt horf.

Bólusetningarskylda gæti haft öfug áhrif
Mynd/Pixabay

Fjórir ein­stak­lingar hafa greinst með misl­inga á Íslandi nýlega, tveir full­orðnir og tvö börn. Öll voru þau óbólu­sett en börnin eru yngri en 18 mán­aða sem er sá aldur sem er bólu­sett fyrir misl­ingum. Sá sem fyrstur greind­ist með misl­inga smit­að­ist erlendis en hinir þrír smit­uð­ust í flugi Iceland Air Connect (áður Flug­fé­lag Íslands) þann 15. febr­úar. Misl­ingar eru afar smit­andi eins og þessi til­felli sýna og smit­ast þeir auð­veld­lega á milli ein­stak­linga í sama loft­rými og við litla sem enga snert­ingu.

Bólu­setn­ing­ar­hlut­fall barna á Íslandi hefur almennt verið mjög gott sem sést á því hversu vel hefur gengið að halda smit­sjúk­dómum á borð við misl­inga í skefjum. Þó hefur heldur gefið eftir und­an­farin ár líkt og fram kom í riti Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins í fyrra um þátt­töku í almennum bólu­setn­ingum barna á Íslandi. Þar segir: „Þátttaka barna í bólu­setn­ingum við 18 mán­aða og 4 ára aldur hér á landi er ekki ásætt­an­leg og ef fram heldur sem horfir, þá geta blossað hér upp bólu­setn­inga­sjúk­dómar sem ekki hafa sést um ára­bil.“

Í rit­inu kemur einnig fram að hlut­fall bólu­settra barna hafi lengi verið við 98 pró­sent, en Land­læknir metur að hlut­fallið þurfi að vera í kringum 95 pró­sent til að koma í veg fyrir hjarð­ó­næmi. Um miðjan síð­asta ára­tug fór hlut­fallið ört lækk­andi, fór niður fyrir 95 pró­sent milli áranna 2010 og 2011 og nálg­ast nú 90 pró­sent.

 Skylda gæti fælt fólk frá

Árið 2015 lögðu borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík fram til­lögu um að leik­skólar borg­ar­innar tækju ekki við óbólu­settum börnum án lækn­is­fræði­legra ástæðna. Sú til­laga var felld. Land­lækn­is­emb­ættið bland­aði sér í þá umræðu og sagði að ekki væri þörf á slíkum ráð­stöf­unum. Bólu­setn­ingar væru almennt í góðu horfi og nær væri að að bæta inn­köll­un­ar­kerfi heilsu­gæsl­unnar og að fræða for­eldra og heil­brigði­starfs­menn um mik­il­vægi bólu­setn­inga til að halda uppi góðri þátt­töku.

Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir segir að afstaða emb­ætt­is­ins sé óbreytt þrátt fyrir þau til­felli sem nú hafa komið upp. „Við sjáum ekki smit hjá hópum sem hefðu átt að vera búnir að fara í bólu­setn­ingu. Það yrði alveg ný nálgun að skylda fólk í bólu­setn­ingu og gæti jafn­vel haft þau áhrif að fleiri myndu setja sig upp á móti bólu­setn­ingum. Við miðum við að 95 pró­sent þurfi að vera bólu­sett til að koma í veg fyrir hjarð­ó­næmi og það vantar ekki mikið upp á og því verður helst náð með því að fara í aðgerðir til að ná betri þátt­töku, þá í gegnum inn­töku­kerfið og með auk­inni fræðslu.“

 Fáir and­stæð­ingar bólu­efna á Íslandi

Misl­ingar eru afar sjald­gæfir á Íslandi en misl­inga­far­aldur hefur geisað í Evrópu und­an­farin ár og nú nýverið í Banda­ríkj­unum, eins og rakið er hér til hliðar. Í Banda­ríkj­unum hafa spjótin beinst gegn hreyf­ingum sem berj­ast gegn bólu­setn­ingum (e. anti-vaxx­ers) og þeim skað­legu áhrifum sem fylgja boð­skap þeirra og var málið meðal ann­ars tekið fyrir á Banda­ríkja­þingi í vik­unni. Þar kom meðal ann­ars fram að styrkur þess­ara hreyf­inga er hvað mestur í norð­vest­ur­hluta Banda­ríkj­anna, einmitt þar sem neyð­ar­á­standi hefur verið lýst yfir vegna misl­inga.

Þórólfur segir að lítið beri á hreyf­ingum sem þessum á Íslandi. Harðir and­stæð­ingar bólu­setn­inga á Íslandi séu fáir, kannski um 2 til 3 pró­sent. Hefur áður komið fram hjá Land­lækn­is­emb­ætt­inu að ástæður þess að börn eru ekki bólu­sett séu frekar af „tækni­legum toga“ en and­stöðu for­eldra við bólu­setn­ingar. Svo virð­ist sem misl­inga­til­fellin í vik­unni hafi hreyft við mörgum for­eldrum því mikil ásókn hefur verið í bólu­setn­ingar síð­ustu daga og gengur hratt á birgð­irnar í land­inu. Búið er að panta meira bólu­efni. Þess vegna er allt eins mögu­legt að þessi til­felli verði til þess að bólu­setn­ing­ar­hlut­fallið fari aftur hækk­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi