Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Söngvakeppni Sjónvarpsins: Alls ekki útséð með úrslitin

Úrslit í Söngvakeppni Sjón­varps­ins 2018 munu ráð­ast annað kvöld, laug­ar­dag­inn 2. mars, þegar þjóðin velur eitt lag sem full­trúa sinn í Eurovision-söngvakeppn­inni sem fer fram í Tel Aviv í maí. Álits­gjafar Mannlífs telja flestir sveit­ina Hatari nokkuð sig­ur­strang­lega en segja sam­keppn­ina þó harða. Í raun geti allt gerst á loka­kvöld­inu.

Söngvakeppni Sjónvarpsins: Alls ekki útséð með úrslitin
||||

„Fyrir viku hefði ég sagt Hatari, alveg án þess að hika“

Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, áhuga­kona um Eurovision.

Besta íslenska lagið í Söngvakeppninni í ár?

„Það fer eftir því hvaða mæli­kvarða maður notar. Ef maður notar stuð­kvarð­ann er það Hatari, ef maður notar límist-á-heil­ann-kvarð­ann þá er það Kristina Bærend­sen, og ef maður notar lík­leg­ast til að verða öskur­sungið í partíum er það Friðrik Ómar. Tara er mjög flott og vin­sælust hjá yngstu dótt­ur­inni og vin­konum hennar, en Hera verður helst út undan, þótt hún syngi vel eins og alltaf og lagið sé fal­legt.“

Ég held að bæði Hatari og Friðrik Ómar gætu komið okkur upp úr und­ankeppn­inni.

 Sig­ur­strang­leg­asta lagið í Söngvakeppni Sjón­varps­ins?

„Fyrir viku hefði ég sagt Hatari, alveg án þess að hika. Ein­fald­lega vegna þess að þeir hafa verið áber­andi og eru með mjög töff lag. Mér finnst komin örlítil þreyta gagn­vart atrið­inu á síð­ustu dögum og það er alveg mögu­legt að þjóðin hafi ekki jafnað sig á Silvíu Nótt og nenni þess vegna ekki að senda ein­hvern gjörn­ing í Eurovision. Það gæti sem sagt unnið gegn þeim. En ef maður horfir til þess að krakkar eru senni­lega dug­leg­astir að kjósa, og þeir muna fæstir eftir Silvíu-ævin­týr­inu, held ég að ég haldi mig við Hatara.“

 Hvaða íslenska lag á mesta mögu­leika á því að ná langt í Eurovision?

„Ég held að bæði Hatari og Friðrik Ómar gætu komið okkur upp úr und­ankeppn­inni. Eða ég vona það að minnsta kosti – það er ekki hægt að klúðra þessu frá­bæra partítæki­færi ár eftir ár. Ég set bara traust mitt á þá flytj­endur sem fara út; að þeir syngi eins og þeir eigi lífið að leysa og sjái til þess að við fáum loks­ins almenni­leg Eurovision-partí út um allt land.“

„Maður veit svo sem aldrei hvað gerist í þessu fríksjói“

Gunnar Lárus Hjálm­ars­son, a.k.a. doktor Gunni, tón­list­ar­maður.

Besta íslenska lagið í Söngvakeppninni í ár?

„Hatrið mun sigra. Ég verð svo reyndar að nota tæki­færið og koma því á fram­færi að Til ham­ingju Ísland með Silvíu Nótt er lang­besta lagið sem Íslend­ingar hafa nokkurn tím­ann sent í keppn­ina. En því miður sýndi Evrópa yfir­þyrm­andi smekk­leysi með því að hafna því meist­ara­verki.“

Sigurstranglegasta lagið í Söngvakeppni Sjónvarpsins?

„Það eru eig­in­lega bara tveir mögu­leikar í boði: Hatari og svo öll hin lögin. Hatari er eitt­hvað nýtt og ferskt á meðan restin er svipuð sam­suða og við höfum ótal sinnum séð í keppn­inni. Ég ætla að vera bjart­sýnn og veðja á að þjóðin sé fersk og velji Hatara áfram.“

Maður veit svo sem aldrei hvað ger­ist í þessu frík­sjói sem Eurovision.

Hvaða íslenska lag á mesta möguleika á því að ná langt í Eurovision?

„Maður veit svo sem aldrei hvað ger­ist í þessu frík­sjói sem Eurovision er, hvaða lag er sig­ur­strang­legt, en Hatari mun í það minnsta vekja athygli í Ísrael og jafn­vel kom­ast í úrslita­sjóið. Það yrði þá eitt­hvað nýtt eftir nið­ur­læg­ing­una síð­ustu ár. Þeirra hómó­eró­tíska bdsm-popp gæti fleytt þeim í topp 5, en ég ætla samt ekki að setja pen­ing á það.“

Búin að panta leðurólar og latex á Netinu

Kristín H. Krist­jáns­dóttir, blaða­maður á wiwibloggs og í rit­stjórn FÁSES.

Besta íslenska lagið í Söngvakeppninni í ár?

„Að öllum öðrum ólöst­uðum finnst mér „Hatrið mun sigra“ vera besta lagið. Það er ferskt og öðru­vísi og fangar athygli manns strax. Hatari er bara svo mikil vítamín­sprauta. Ég er þegar búin að panta fullt af leður­ólum og latexi á Netinu og er að safna mér fyrir gimpi.“

Sigurstranglegasta lagið í Söngvakeppni Sjónvarpsins?

„Ég spái því að valið muni á end­anum standa á milli Hatara og Friðriks Ómars. En hvernig úrslitin verða, er rosa erfitt að segja. Ætla samt að vera ofursvöl og segja að Hatari hafi það til Tel Aviv.“

Hvaða íslenska lag á mesta möguleika á því að ná langt í Eurovision?

„Hatari alla leið. Nei, er ekki á launum hjá þeim, ég sver það! Sveitin mun koma okkur upp úr for­keppn­inni í Eurovision og mögu­lega í topp 10. Þeir eru nú þegar búnir að sigra hjörtu harð­kjarna aðdá­enda. Pælið í því hvað ger­ist þegar Hatrið sigrar hinn almenna áhorf­anda.“

Allar líkur á að lagið nái allt að toppnum

Reynir Þór Egg­erts­son, lektor í íslensku við Helsinki-háskóla og Euro-nörd.

Besta íslenska lagið í Söngvakeppninni Sjónvarspsins í ár?

„Eft­ir­læt­islagið mitt í keppn­inni í ár var Helgi með Heiðrúnu Önnu, kom mér í veru­lega gott skap og öðru­vísi texti. Af lög­unum í úrslit­unum er ég per­sónu­lega hrifn­astur af lagi Heru Bjarkar, sér í lagi eftir flutn­ing­inn í und­ankeppn­inni. Maður heyrði og skildi hverja til­finn­ingu sem hún hefur verið að berj­ast við. Stór­kost­legur söngur og  vel svið­sett. Hatrið mun sigra er líka mjög gott, við­lagið heillar mig gjör­sam­lega og gerir það að verkum að lagið nær til mín.“

Hatrið mun sigra hlýtur að telj­ast sig­ur­strang­asta lagið.

Sigurstranglegasta lagið í Söngvakeppni Sjónvarpsins?

„Hatrið mun sigra hlýtur að telj­ast sig­ur­strang­asta lagið, að minnsta kosti miðað við alla umræðu, hvort sem er á sam­fé­lags­miðlum eða í fjöl­miðlum. Það eina sem virð­ist geta komið í veg fyrir sigur þess er að and­stæð­ing­unum tak­ist að sam­ein­ast gegn þeim í ein­víg­inu. Hvert hitt lagið í ein­víg­inu verður er erf­ið­ara að spá, öll hin fjögur lögin eiga þar séns, nema kannske helst Mama Said. Ef Hatari vinnur ekki, verður það lík­lega Friðrik Ómar.“

Hvaða íslenska lag á mesta möguleika á því að ná langt í Eurovision?

„Bæði lagið Hatrið mun sigra og flytj­end­urnir Hatari skera sig veru­lega úr og eiga því mögu­leika á heil­mik­illi athygli fyrir keppn­ina í vor. Lagið er sterkt, við­lagið fal­legt og ég tel í raun allar líkur á að það kom­ist í úrslit og nái allt að toppnum. Hera Björk og Friðrik Ómar eru frá­bærir söngv­arar og gætu auð­vitað skinið í gegn í vor. Fighting for Love er gott lag, en Tara Mobee þarf að flytja lagið mun betur en hún gerði í und­ankeppn­inni. Kristina Skoubo er góð söng­kona, en ég held að lagið eigi ekki séns.“

Mynd / Magnús Andersen fyrir Grapevine

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi