Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Notar skrautskriftina til að hugleiða

Ingi Vífill Guð­munds­son hefur und­an­farið varið frí­tíma sínum í að kenna fólki skraut­skrift. Hann segir skraut­skrift­ina vera góða aðferð til að stunda hug­leiðslu og þjálfa ein­beit­ing­una.

Notar skrautskriftina til að hugleiða
|||

Ingi Vífill fór að stunda skraut­skrift fyrir þremur árum og fann að hún hafði góð áhrif á ein­beit­ing­una. Í kjöl­farið stofn­aði hann Reykja­vík Lett­er­ing og hóf að halda skraut­skrift­ar­nám­skeið. Á nám­skeið­unum kennir hann fólki réttu hand­tökin í skraut­skrift ásamt því að tengja skrift­ina við önd­unaræf­ingar og hug­leiðslu.

Ingi Vífill kennir nám­skeið í skraut­skrift um helgar í The Space Reykja­vík, Hólma­slóð 2.

„Ég hef haft mik­inn fókus á hug­rækt í þessu sam­hengi og leið­beini fólki að tengja skraut­skrift­ina við and­ar­drátt­inn og gera þessa iðju þannig að virkri hug­leiðslu,“ útskýrir Ingi Vífill.

Það er mér hrein­lega í blóð borið að kenna og hanna – tala nú ekki um þegar ég fæ að steypa þessu tvennu saman.

Aðspurður hvernig hann hóf að stunda skraut­skrift segir Ingi: „Ég hef skrifað lykkju­skrift­ina frá barns­aldri en við yngri bróðir minn gengum í grunn­skóla í Danmörku. Þar er gömul gildi höfð í heiðri, þar með talið vönduð skrift­ar­kennsla. Til dæmis áttum við að skila heima­dæmum í stærð­fræði viku­lega og dæmin áttum við að hrein­skrifa með blek­penna áður en þeim var skilað. Svo ætli það sé ekki sá bak­grunnur sem fylgir mér inn í þetta fag“

Ingi Vífill segir kennsl­una eiga vel við sig. „For­eldrar mínir eru ann­ars vegar arkítekt og hins vegar kenn­ari. Það er mér hrein­lega í blóð borið að kenna og hanna – tala nú ekki um þegar ég fæ að steypa þessu tvennu saman,“ segir Ingi sem er nemi í graf­ískri hönnun við Lista­há­skóla Íslands.

Hafði ekki eirð í sér til að hugleiða

Að eigin sögn hefur Ingi Vífill oft reynt að stunda hug­leiðslu en hefur ekki tek­ist það almenni­lega, mögu­lega sökum þess að hann er greindur með athygl­is­brest og ofvirkni (ADHD).

„Ég hafði ekki nægi­lega eirð í mér. En ég get varið lögum tíma í það sem ég hef áhuga á, oft mörgum klukku­stundum án þess að vita hvað tím­anum líður. Þegar þetta fag fór að opn­ast fyrir mér þá sá ég að það er hægt að tengja strok­urnar við and­ar­drátt­inn. Upp­strokur eru á inn­öndun og nið­ur­strok­urnar á útöndun. Þá nýtir maður líka and­ar­drátt­inn til að gefa lín­unum til­ætl­aða vigt; þunnar og þykkar,“ útskýrir hann. Skraut­skrift­inn varð því hans leið inn í heim hug­leiðsl­unnar.

„Verk­efnið er skýrt og afmarkað og með því skipu­legg ég æfing­una – í raun hug­leiðsl­una. Segjum sem svo að æfingin sem ég set mér sé að fylla eina síðu af há- og lág­stafa A. Þá sest ég við og ein­beiti mér fyrst og fremst að því að ná öllum formum réttum. Spor­öskj­urnar séu reglu­legar; að hryggir séu með réttan halla og að línu­þykktir séu hæfi­legar. Ekkert annað kemst að. Og þegar ég set punkt­inn eftir síð­asta a-ið í lok síð­unnar, þá hef ég leitt hug­ann að skrift­inni í um það bil 20 mín­útur.“

Allir geta lært að skraut­skrifa að sögn Inga.

Allir geta lært skrautskrift

Spurður út í hvort hann telji að allir geti lært skraut­skrift svarar hann ját­andi: „Að sjálf­sögðu. Alveg eins og allir geta lært að dansa eða tala íslensku. Það er okkur mann­eskj­unum eðl­is­lægt að læra, ann­ars leið­ist okkur og hug­ur­inn leitar í eitt­hvað minna upp­byggi­legt.“

Það er okkur mann­eskj­unum eðl­is­lægt að læra.

Ingi Vífill hefur kennt fólki úr öllum áttum skraut­skrift. „Á nám­skeið hafa komið syst­kyna­hópar að styrkja fjöl­skyldu­böndin, vin­konur að víkka sjón­deild­ar­hring­inn, mæðgin og feðgin, ein­stæð­ingar í leit að félags­skap, útlend­ingar í leit að teng­ingu við aðra í sömu stöðu og svona mætti lengi telja.“

Áhuga­samir geta skoðað það sem Ingi er að gera á Facebook-síðu hans og á Instagram.

Myndir og mynd­band / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi