Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Alls ekkert fyrir aumingja

6.750 krónur á mán­uði. 80.000 á ári. Jafnvel 200.000 ef þú átt börn. Þetta kallar rík­is­stjórnin aðgerðir til kjara­bóta fyrir þá sem eru á lægstu laun­unum. Launum sem reyndar eru langt undir fram­færslu­við­miðum og allir vita að ekki er hægt að fram­fleyta sér á. 80.000 á ári. Það eru þriggja daga laun alþing­is­manns, nær ekki einu sinni dags­launum banka­stjóra. En nógu gott fyrir aum­ingj­ana, greini­lega. Þeir eiga bara að bukta sig og þakka.

Alls ekkert fyrir aumingja
Verkfall mót­mæli kjara­bar­átta

Það hefur mikið verið skrifað og skegg­rætt um ofstæk­is­fram­göngu nýrra verka­lýðs­leið­toga und­an­farið og af greina­skrifum og frétta­flutn­ingi síð­ustu mán­aða mætti ætla að þetta fólk, þessi nýja ofstæk­is­for­ysta, sé ekki í neinum tengslum við veru­leik­ann og gangi fram í full­kominni blindu á bol­magn atvinnu­rek­anda og ríkis til að greiða fólki mann­sæm­andi laun. En sé málið skoðað betur blasir við að það er ekki verka­lýðs­for­ystan sem er úr takti við raun­veru­leik­ann. Það er rík­is­stjórnin og alþing­is­menn, for­svars­menn atvinnu­rek­anda og fjár­magns­eig­endur. Fólkið sem á Ísland og lætur eins og það sé að gera und­ir­tyll­unum stór­kost­legan greiða með því að bjóða þeim tveggja pró­senta skatta­lækkun sem ganga mun í gegn á þremur árum. Hvað verða 6.750 krónur mik­ils virði eftir þrjú ár? Eins og staðan er í dag duga þær varla fyrir einum helg­ar­inn­kaupum í Bónus, hvað þá skóp­ari eða einum Food and Fun-mat­seðli. En lág­launa­fólk þarf nátt­úr­lega ekki svo­leiðis lúxus og er svo sem ekki að biðja um hann heldur. Það sem verið er að fara fram á er ein­fald­lega að geta kom­ist af frá mán­uði til mán­aðar af laun­unum sínum. Það er nú allt ofstækið og yfir­gang­ur­inn.

Málið er auð­vitað ekki alveg svona ein­falt, við vitum það. Alls kyns atriði sem þarf að reikna inn í jöfn­una til að hún gangi upp. En venju­legum leik­manni sýn­ist samt að það sé nákvæm­lega eng­inn áhugi hjá þeim sem með völdin fara að gera nokkuð sem skiptir máli til að bæta hlut þeirra verst settu. Bara alls eng­inn áhugi. Það er passað upp á að þeir sem best hafa það missi ekki svo mikið sem flís úr spóni úr sínum aski, en aum­ingj­arnir geta átt sig. Það má ekki minn­ast á hátekju­skatt sem gæti aukið þetta marg­um­tal­aða svig­rúm til alvöru­skatta­lækk­ana á þá lægst laun­uðu. Fjár­mála­öflin passa upp á sitt með dyggri aðstoð rík­is­stjórnar sem er undir for­sæti „vinstri“-sinn­að­asta flokks lands­ins. Er furða að fólk sé orðið lang­þreytt og búið að missa þol­in­mæð­ina og velji sér for­ystu sem gengur hart fram og gefur ekk­ert eftir í kröf­unum um betri afkomu fyrir þá lægst laun­uðu? Var það ekki löngu tíma­bært?

Það virð­ist nokkuð borð­leggj­andi að það komi til verk­falla í næsta mán­uði og þau gætu orðið löng. Verk­falls­vopnið er eina vopnið sem launa­fólk hefur til að reyna að knýja fram breyt­ingar á óvið­un­andi kjörum sínum. Hvort það muni bera til­ætl­aðan árangur er hins vegar alls óvíst. En það ætti að minnsta kosti að koma þeim sem með völdin fara í skiln­ing um að mælir­inn er fullur. Hér þurfa að verða breyt­ingar og þær rót­tækar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi