Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Öllu tjaldað til á 20 ára afmæli Eddunnar

Eddan, upp­skeru­há­tíð íslenska kvik­mynda- og sjón­varps­geirans, fer fram í Austurbæ í kvöld.

Öllu tjaldað til á 20 ára afmæli Eddunnar
||

Eddu­há­tíðin fer fram í Austurbæ í kvöld, en þá verða sjón­varps- og kvik­mynda­verð­laun veitt af Íslensku sjón­varps- og kvik­mynda­aka­dem­í­unni, ÍKSA, fyrir bestu frammi­stöðu og verk í nokkrum völdum flokkum. Þetta er í 20. sinn sem hátíðin er haldin og segir Hlín Jóhann­es­dóttir, for­maður ÍKSA, að mikil eft­ir­vænt­ing sé fyrir kvöld­inu.

„Já, það er sko óhætt að segja að það ríki mikil spenna,“ segir hún hress. „Því fyrir utan það að þetta sé árleg upp­skeru­há­tíð kvik­mynda­gerð­ar­fólks, erum við auð­vitað líka að fagna því að nú eru 20 ár liðin frá því að Eddu­verð­launin voru fyrst afhent, sem gerir kvöldið enn hátíð­legra.“

Það er sko óhætt að segja að það ríki mikil spenna.

Þetta er þriðja ár Hlínar sem for­manns ÍKSA og fimmta ár hennar í stjórn. Spurð hvort eitt­hvað sér­stakt ein­kenni Edduna í ár öðru fremur segir hún að fyrst og fremst beri hátíðin merki fag­mennsku íslensks sjón­varps- og kvik­mynda­gerð­ar­fólks. Gæði inn­lends sjón­varps- og kvik­mynda­efnis hafi auk­ist jafnt og þétt og síð­ustu ár hafi greinin tekið stökk, þökk sé elju og metn­aði fólks í geir­anum.

Á fyrstu Eddu­há­tíð­inni 1999 hafi verið verð­launað í átta flokkum, auk þess sem heið­ursverð­laun Eddunnar voru veitt. Það segi sitt um metnað og dug íslensks kvik­mynda­gerð­ar­fólks að nú, 20 árum síðar, sé keppt um Edduna í 26 verð­launa­flokkum. Og þegar þess­ari hátíð ljúki verða Eddu­verð­launin frá upp­hafi orðin 403 tals­ins.

Á Eddunni í kvöld verða veitt verð­laun í 26 flokkum auk heið­ursverð­launa. Í flokknum Besta mynd árs­ins stendur valið á milli þriggja kvik­mynda: Lof mér að falla, sem er með sam­tals 12 til­nefn­ingar, Kona fer í stríð, sem er með næst­flestar til­nefn­ingar, eða 10 tals­ins, og Andið eðli­lega með 9 til­nefn­ingar.

„Við getum verið afskap­lega stolt af þeirri stöðu sem greinin er í í dag,“ segir Hlín. „Sem dæmi hafa kvik­mynd­irnar þrjár sem eru til­nefndar sem besta myndin í ár, Andið eðli­lega, Kona fer í stríð og Lof mér að falla, allar hlotið alþjóð­leg verð­laun og við­ur­kenn­ingar og eft­ir­spurn eftir íslensku sjón­varps- og kvik­mynda­efni úti í heimi hefur sjaldan verið eins mikil og akkúrat núna. Sem sýnir bara að Íslend­ingar tefla fram gæða­fram­leiðslu á öllum sviðum, fram­leiðslu sem er á heims­mæli­kvarða. Enda er fólk erlendis stein­hissa á því hvað það kemur mikið af vönd­uðu og fjöl­breyttu efni frá jafn­fá­mennri þjóð. Efni sem ein­kenn­ist oftar en ekki af skemmti­legum vinklum og frum­legum efn­is­tökum. Sem er auð­vitað alveg frá­bært, en minnir líka á hversu miklu máli skiptir að leggja áfram rækt við þessa grein.“

Athygli vekur að aldrei hafa jafn­margir leik­arar af erlendum upp­runa verið til­nefndir fyrir leik. Leik­konan Babetida Sadjo er til­nefnd fyrir auka­hlut­verk í kvik­mynd­ini Andið eðli­lega og Paaru Oja og Kaspar Velberg eru til­nefndir fyrir aðal­hlut­verk og auka­hlut­verk í Undir hala­stjörnu.

 Ekki bara verð­launa­há­tíð

Hlín segir að í kvöld gef­ist því ekki síður tæki­færi til að fagna því hversu langt íslenskt sjón­varps- og kvik­mynda­gerð­ar­fólk hefur náð á alþjóða­vísu.

„Við stjórnin höfum verið að vinna að því að vekja fólk innan brans­ans til vit­undar um að þetta er ekki ein­göngu verð­launa­há­tíð, heldur líka upp­skeru- og sam­ein­ing­ar­há­tíð. Hluti af því felst í því að stefna ekki bara þeim sem eru til­efndir til Eddu­verð­launa í ár heldur fleira fólki úr kvik­mynda- og sjón­varps­brans­anum. Við viljum ein­fald­lega gera meira úr Eddunni og vinna að því að hún verði sam­ein­ing­ar­vett­vangur fyrir íslenskt kvik­mynda­gerð­ar­fólk. Vett­vangur til að fagna saman.“

Eins og áður kom fram verður Eddan með örlítið hátíð­legri blæ nú í ljósi þeirra 20 ára sem eru liðin síðan hún var fyrst haldin. Hlín getur þess að viss árs­há­tíð­ar­stemn­ing muni ein­kenna kvöldið. „Já, við höfum unnið að því að skapa þannig anda, bæði með því að halda hátíð­ina á föstu­degi en ekki sunnu­degi, bjóða fleirum til leiks og færa hátíð­ina yfir í Austurbæ, gamla Aust­ur­bæj­ar­bíó, þar sem boðið verður upp á popp auk ann­arra veit­inga.

Það má því kannski segja að það verði líka ákveðið bíó­þema í kvöld með áherslu á þessi 20 ár og svo fullt af skemmti­legum við­burðum en kynnir kvölds­ins er Logi Bergmann Eiðsson,“ lýsir hún. „Það á því engum eftir að leið­ast í kvöld, allra síst áhorf­endum heima fyrir,“ bætir hún við en RÚV verður með beina útsend­ing frá hátíð­inni í kvöld og hefst hún klukkan níu

Mynd / Vilborg Ein­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi