Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Oft talað um að líkaminn verði eins og „fat burning machine“ á ketó“

Ketó-matar­æðið nýtur afar mik­illa vin­sælda á Íslandi núna og annar hver maður virð­ist vera að tala um ketó þessa dag­ana. Elísabet Ögn Jóhanns­dóttir er ein þeirra sem er á ketó-matar­æð­inu og segir það hafa ótal kosti.

„Oft talað um að líkaminn verði eins og „fat burning machine“ á ketó“
||

Á Facebook er að finna hóp­inn Keto Iceland sem er til­eink­aður ketó-matar­æð­inu en þar eru um 7.400 manns sam­an­komnir til að ræða ketó. Hópurinn hefur stækkað mikið síðan um jólin og alltaf bæt­ast nýir með­limir í hann.

Elísabet Ögn Jóhanns­dóttir er ein þeirra sem er stjórn­andi í hópnum. „Það hefur verið mikil aukn­ing í hópnum síðan um jólin og hann heldur áfram að stækka,“ segir Elísabet.

Aðspurð hvað fari fram í Keto Iceland-hópnum segir hún: „Fólk sækir aðal­lega stuðn­ing í aðra og óskar eftir hug­myndum að mál­tíðum, gefur alls konar ráð og spyr spurn­inga sem vakna þegar fólk byrjar á nýju matar­æði.“

Strangari útgáfa af lágkolvetnamataræði

En hvað nákvæm­lega er ketó? „Ketó er strang­ari útgáfa af lág­kol­vetna­matar­æði. Í ketó er venju­lega miðað við að fólk borði innan við 20 grömm af kol­vetnum á dag og áhersla er lögð á að nær­ingin komi aðal­lega úr fitu. Pró­tín­inn­taka á að vera hóf­leg á ketó og sem minnst er neytt af kol­vetnum.

Á týpísku lág­kol­vetna­matar­æði sem kall­ast ýmist LCHF (low carb high fat) eða á íslensku LKL (lág­kol­vetna­lífs­stíll­inn) er hins vegar oft­ast miðað við að borða undir 50 grömm af kol­vetnum á dag og þar er prótín ekki tak­markað eins og á ketó.

Margir detta í það að sleppa morg­un­mat ein­fald­lega því þeir hætta að finna til svengdar á morgn­ana.

Heitið ketó kemur frá orð­inu ketogenic og það þýðir að fólk brennir þá í raun aðal­lega fitu sem orku­gjafa, það ástand er kallað ketosis. Þegar þessu ástandi er náð minnkar mat­ar­lyst fólks, orka verður stöðugri og blóð­sykur verður einnig stöð­ugur. Þegar fólk er í svona ástandi verður mjög auð­velt að fasta fram að hádeg­is­mat og fólk hefur ekki sömu þörf fyrir að borða oft á dag. Margir detta í það að sleppa morg­un­mat ein­fald­lega því þeir hætta að finna til svengdar á morgn­ana,“ útskýrir Elísabet.

Hún heldur áfram um föstur: „Það hefur verið mikil umræða und­an­farið um föstur og sumir halda að föstur séu hluti af ketó. Þegar ég tala um föstur meina ég í raun bara það að borða ekki eftir kvöld­mat og sleppa morg­un­mat. Föstur eru ekki hluti af ketó en virka aftur á móti ótrú­lega vel með ketó þar sem svengd gerir oft­ast ekki vart við sig fyrr en um hádegi. Ef kvöld­mál­tíðin er nær­ing­ar­rík og nóg af fitu í henni er mjög auð­velt að fasta.

Í umræð­unni um ketó er oft minnst á föstur vegna þess að þegar lík­am­inn er far­inn að brenna fitu sem orku­gjafa gengur hann á fitu­birgðir lík­am­ans þegar hann er búinn að nýta þá fitu sem hefur verið inn­byrt. Þess vegna er oft talað um að lík­am­inn verði eins og „fat burn­ing machine“ á ketó.“

„Maður þarf svolítið að treysta matarlystinni“

Elísabet segir ekki flókið að vera á ketó, aðal­málið sé að kynna sér matar­æðið vel. „Til að byrja með er nauð­syn­legt að kynna sér und­ir­stöðu­at­riðin vel – eins og hvað má borða og hvað má ekki borða. Svo er þetta ansi auð­velt, borð­aðu það sem má borða þegar þú ert svangur þangað til þú ert saddur.

Það er erfitt að borða yfir sig af fitu.

Mik­il­vægt er að hafa næga fitu í matar­æð­inu og halda kol­vetnum í algjöru lág­marki svo þetta gangi upp. Ég hef per­sónu­lega aldrei stundað það að telja ofan í mig kol­vetni eða kalor­íur, vigta mat eða neitt svo­leiðis. Maður þarf svo­lítið að treysta mat­ar­lyst­inni því það er erfitt að borða yfir sig af fitu. Smátt og smátt fer maður að borða aðeins minna því mat­ar­lystin minnkar,“ segir Elísabet sem borðar sjálf yfir­leitt tvær mál­tíðir á dag – hádeg­is­mat og kvöld­mat. „Ég passa að hafa mál­tíð­irnar mjög nær­ing­ar­ríkar og mér finnst nauð­syn­legt að fá mikið af fersku græn­meti, nægar trefjar og sem minnst af unnum mat­vælum.“

Elísabet mælir með að borða mikið að fersku græn­meti á ketó.

Elísabet tekur fram að ef mark­mið fólks sé að grenn­ast á ketó geti verið hjálp­legt að nota smá­forrit til að telja kalor­íur og mæla hlut­föll kol­vetna, fitu og próteins. „Þá er líka hægt að skoða ýmsa aðra þætti. Það eru nefni­lega oft litlir hlutir sem hægt er að skoða og breyta þar til maður áttar sig nákvæm­lega á hvernig þetta virkar fyrir mann. En við erum öll ólík og það er mik­il­vægt að fara eftir inn­sæi sínu og vera dug­legur að leita sér upp­lýs­inga.“

Elísabet segir ketó ekki endi­lega henta öllum. Hún mælir með að áhuga­samir kynni sér matar­æðið á dietdoctor.com. „Þar er sér­stak­lega tekið fram að ein­stak­lingar með syk­ur­sýki 1, konur með börn á brjósti og fólk á lyfjum fyrir háan blóð­þrýst­ing þurfi að kynna sér ketó út frá þeim þáttum. Best er þá að ráð­færa sig við lækn­inn sinn.“

Árangurinn kemur fljótt í ljós

Þegar Elísabet er spurð hvernig þetta hálf­gerða ketó-æði hafi kviknað á Íslandi segir hún: „Það er lík­lega vegna þeirrar vit­und­ar­vakn­ingar sem varð um lág­kol­vetna­matar­æðið, syk­ur­lausa lífs­stíl­inn og föst­urnar vin­sælu. Og nú er það ketó. Þetta teng­ist allt. Margt fólk er búið að upp­götva hversu árang­urs­ríkt það er að vera á ketó. Það er hægt að leggja af hratt og örugg­lega á ketó á meðan maður borðar góm­sætan mat.

Æðið breið­ist líka hratt út því árang­ur­inn er oft svo fljótur að koma fram ef fólk gerir þetta rétt.

Það getur samt reynst mörgum erfitt að halda þessum lífs­stíl áfram í langan tíma. Þess vegna fara margir á ketó sem tíma­bund­inn kúr og bæta svo öllum kíló­unum á sig aftur þegar kúrnum lýkur. Það tekur auð­vitað langan tíma að breyta lífs­stíl sínum var­an­lega. Æðið breið­ist líka hratt út því árang­ur­inn er oft svo fljótur að koma fram ef fólk gerir þetta rétt. Fyrstu vik­urnar missa flestir nokkur kíló og ummál minnkar. Það er auð­vitað að mestu vatns­þyngd því fólk missir mik­inn bjúg þegar kol­vetnin fá að fjúka.

En svo koma oft nokkrir dagar í kjöl­farið þar sem margir fá svo­lít­inn haus­verk og finna fyrir slapp­leika meðan lík­am­inn er að aðlag­ast. Þá er mik­il­vægt að huga vel að því að auka stein­efna­töku á meðan lík­am­inn er að losa sig við bjúg­inn, þetta kall­ast ketó-flensan (keto flu) og gengur venju­lega yfir á nokkrum dögum,“ útskýrir Elísabet.

„Maður lærir betur á sjálfan sig“

Elísabet segir áhuga­vert að sjá hvernig lík­am­inn bregð­ist við á ketó. „Sama hvort fólk haldi sig við ketó eða prófi það tíma­bundið þá er þetta ákveðin fræðsla og lær­dómur. Maður verður meira vak­andi fyrir áhrifum syk­urs á líðan, þyngd og heilsu manns. Maður fer að skilja inni­halds­lýs­ingar á mat­vörum betur og lærir betur á sjálfan sig.“

„Ketó er miklu meira en bara egg og beikon,“ segir Elísabet.

Elísabet tekur fram að ketó sé ekki eins ein­hæft og margir vilja halda. „Ketó er miklu meira en bara egg og beikon. Það skiptir auð­vitað alltaf máli að fá sem besta nær­ingu. Þá er mik­il­vægt að passa upp á að borða fullt af grænu græn­meti og auð­vitað ætti maður að fara var­lega í vörur sem inni­halda gervi­sykur og borða þær bara í hófi. Svo þarf að leggja áherslu á að borða sem mest af mat sem kemur ekki með inni­halds­lýs­ingu.“

Ég finn að þetta hefur mjög góð áhrif á marga aðra þætti hjá mér, til dæmis dregur ketó úr bjúg og bólgum.

Að lokum telur Elísabet upp helstu kosti ketó-matar­æð­is­ins, að hennar mati. „Það er rosa­lega auð­velt að leggja af á lág­kol­vetna­matar­æði, sér­stak­lega á ketó. Ástæðan fyrir því er sú að þú ferð að neyta færri hita­ein­inga án þess að finna fyrir svengd því fitan er mett­andi. Þú sleppur við blóð­syk­ur­s­sveiflur og orkan verður stöðugri. Ég finn að þetta hefur mjög góð áhrif á marga aðra þætti hjá mér, til dæmis dregur ketó úr bjúg og bólgum, kemur í veg fyrir fyr­ir­tíð­ar­spennu, bætir melt­ingu og ein­beit­ingu, minnkar syk­ur­löngun, húðin verður betri og svona mætti lengi telja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi