Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Krúnudjásn myndasöguheimsins

Ævintýri Leð­ur­blöku­manns­ins og undra­drengs­ins Gló­bryst­ings eru nú komin út á íslensku.

Krúnudjásn myndasöguheimsins

Versl­unin Nexus, sem sér­hæfir sig meðal ann­ars í sölu á mynda­sögum og borð­spilum, stendur fyrir útgáf­unni og segir þýð­and­inn Haraldur Hrafn Guð­munds­son að þetta séu fyrstu hefð­bundnu ofur­hetju­sög­urnar sem gefnar eru út á okkar ást­kæra ylhýra síðan Siglu­fjarð­ar­prent­smiðjan var og hét á níunda ára­tugnum.

„Þetta eru valdar sögur um Leð­ur­blöku­mann­inn, alveg frá 6. ára­tugnum og til dags­ins í dag. Þarna er meðal ann­ars að finna upp­runa­sögu hans og eins af erkió­vinum hans hins dul­magn­aða Ra’s al Ghul. Við erum að raða sög­unum þannig að þær myndi heild­steypta sögu, fyrst og fremst Leð­ur­blöku­manns­ins, en þær hafa aldrei verið settar fram í réttri lesröð áður. Það má því líta á þessa útgáfu sem ævi­sögu hans,“ lýsir Haraldur.

Þetta eru valdar sögur um Leð­ur­blöku­mann­inn, alveg frá 6. ára­tugnum og til dags­ins í dag.

Spurður hvers vegna sög­urnar um Leð­ur­blöku­mann­inn hafi orðið fyrir val­inu frekar en til dæmis um Ofur­mennið eða Undra­kon­una segir hann svarið vera ein­falt. Leð­ur­blöku­mað­ur­inn hafi í gegnum tíð­ina laðað til sín marga af bestu mynda­sögu­höf­und­unum og teiknur­unum og sög­urnar séu því marg­slungnar og með ein­dæmum vel skrif­aðar. Tónninn sé myrk­ari en í mörgum öðrum sögum sem helgist meðal ann­ars af áhrifum frá drunga­legum spæj­ara­myndum (film noir) og got­neskum bók­menntum.

Helsta aðdrátt­ar­aflið sé þó tví­mæla­laust Leð­ur­blöku­mað­ur­inn sjálfur, breyska hetjan og sem beitir vafasömum aðferðum til að knýja fram rétt­læti og er rek­inn áfram af hatri á glæpa­mönnum og hefnd­ar­þorsta í kjöl­far hrotta­legs morðs á for­eldrum hans. Allt geri þetta að verkjum að sög­urnar um hann séu vin­sælli en aðrar og þess vegna hafi þeir valið þær. Leð­ur­blöku­mað­ur­inn sé ein­fald­lega krúnu­djásn mynda­sögu­heims­ins.

Fyrst og fremst ástríðuverkefni

En er ekki svo­lítið áhættu­samt að vera að gefa sög­urnar út á íslensku fyrst þær eru þegar aðgengi­legar á ensku? Er mark­aður fyrir þetta? Haraldur brosir. „Þegar við réð­umst í þetta verk þá vissum við ekki hvernig sög­urnar myndu selj­ast,“ við­ur­kennir hann hik­laust. „Bjuggum okkur alveg undir að það yrði smá­vegis brekka til að byrja með. En veistu, við­tök­urnar hafa verið góðar, satt að segja farið fram úr björt­ustu vonum.“

Hann bætir við að útgáfan sé hvort sem er ekki rekin í sér­stöku hagn­að­ar­skyni, þótt auð­vitað sé fínt að hún standi undir sér. Fyrst og fremst sé þetta ástríðu­verk­efni sem miði meðal ann­ars að því að fá ung­menni til að lesa. „Rann­sóknir sýna að krakkar, einkum drengir lesa bækur á íslensku í minna mæli en áður, á sama tíma og mynda­sögur á ensku selj­ast vel. Okkur langar bara að sjá hvort við getum ekki tendrað áhuga krakk­ana á móð­ur­mál­inu með því að gefa svona sögur út á íslensku. Það má því segja að þetta sé eig­in­lega lestr­ar­á­tak líka.“

Getur ekki beðið eftir næstu sögu

Haraldur tekur fram að ekk­ert sé til sparað við útgáf­una, prentun og pappír séu í hæsta gæða­flokki og sjálfur leggi hann sig allan fram um að gera þýð­ing­una sem best úr garði, sem sé tví­mæla­laust sú skemmti­leg­asta sem hafi rekið á fjörur hans sem þýð­anda.

„Ég er búinn að vera að þýða alls konar skjöl og gögn síð­ustu tíu ár og sjón­varps­efni og kvik­myndir annað slagið og verð að segja að þetta verk­efni tekur öllu öðru fram. Það datt óvænt í hend­urnar á mér þegar Gísli Ein­ars­son, eig­andi Nexus, hafði sam­band og við og rit­stjór­inn, Pétur Yngvi Leósson, höfum unnið að þessu saman. Maður getur eig­in­lega ekki beðið eftir næsta verk­efni, þetta er svo gaman.“

Talandi um það, þá er nú ekki úr vegi að spyrja hvað sé fram undan? „Sko, við stefnum að mán­að­ar­legum ritum um Leð­ur­blöku­mann­inn og svo kemur saga, stór doðrantur um Rétt­læt­is­banda­lag Ameríku, Justice League of America, út ein­hvern tíma með vor­mán­uðum,“ segir hann leynd­ar­dóms­fullur. „Vinnan við það er að klár­ast, þannig að unn­endur góðra mynda­sagna eiga gott í vændum. Það er það eina sem ég get sagt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi