Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Grundvöllur mennskunnar

SKOÐUN eftir Fríðu Björk Ingv­ars­dóttur.

Grundvöllur mennskunnar

Listir hafa borið hátt í sam­fé­lags­um­ræðu und­an­far­inna vikna. Skemmst er að minn­ast mál­verka Gunn­laugs Blöndal í Seðla­bank­anum og verð­launa­til­lögu Karin Sander í Voga­hverfi. Umræðan um þessi lista­verk hnitar hringi í kringum póli­tískar áherslur sam­tím­ans; femín­isma, metoo, skipu­lags­mál, félags­leg úrræði vs menn­ing­ar­upp­bygg­ingu, áherslur í fag­ur­fræði, vist­fræði, hlýnun jarðar, inn­flytj­enda­mál o.s.frv. Um leið sannar umræðan það sem hinir „inn­vígðu“ í listum vita; að list­unum er ekk­ert óvið­kom­andi, að þær eru gríð­ar­legt hreyfi­afl og – kannski síð­ast en ekki síst – að þegar þær ber á góma hafa allir skoðun.

Sem er stór­kost­legt. Því það skiptir engu máli hvort fólk hefur áhuga á listum eða ekki. List hefur áhrif á fólk, mótar líf þess, skynjun, afstöðu og umhverfi, burt­séð frá því hvort það vill taka þátt í listum eða ekki.

List­irnar hafa lifað með okkur frá örófi alda. Og það hafa þær gert vegna þess að þær eru órofa þáttur í mennsk­unni. List­irnar, hæfi­leik­inn til að skapa – söngur, sögur, dans, sjón­ræn tján­ing – er meðal þeirra þátta sem í gegnum árþús­undin hafa skapað mann­inum yfir­burða­stöðu í sköp­un­ar­verk­inu. Ástæðan er ein­föld; list­ræn tján­ing og sú rann­sókn sem í sköp­un­ar­ferl­inu býr skapar sam­stöðu og skiln­ing er nær langt út fyrir það sem hvers­dags­legt amstur og brýn­ustu nauð­synjar geta spannað og hefur orðið grund­völl­ur­inn að sam­fé­lags­þróun mann­skepn­unnar umfram aðrar skepnur.

Við gætum hætt að ríf­ast um lista­manna­laun, fjár­magn í Lista­há­skóla, kostnað við inn­kaup á mynd­list, rekstur leik­húsa, óperu og sin­fón­íu­hljóm­sveitar með því ein­fald­lega að leggja þetta allt niður og efla í stað­inn heil­brigð­is­kerfið, tvö­falda þjóð­vegi, bora fleiri göng … En um leið yrðum við að spyrja okkur hvað færi í súg­inn.

Við gætum hætt að ríf­ast um lista­manna­laun, fjár­magn í Lista­há­skóla, kostnað við inn­kaup á mynd­list, rekstur leik­húsa, óperu og sin­fón­íu­hljóm­sveitar með því ein­fald­lega að leggja þetta allt niður og efla í stað­inn heil­brigð­is­kerfið, tvö­falda þjóð­vegi, bora fleiri göng. Auðvitað getum við það og margt annað í leið­inni. En um leið yrðum við að spyrja okkur hvað færi í súg­inn. Hefði Auður Ava Ólafs­dóttir fengið bók­mennta­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs, Eggert Pét­urs­son unnið Carnegie-mynd­list­ar­verð­launin, Anna Þor­valds­dóttir tón­list­ar­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs? Hefðum við orðið í öðru sæti í Evr­ó­visjón, Börn nátt­úr­unnar verið til­nefnd til Ósk­arsverð­launa, Airwaves slegið í gegn og Hall­gríms­kirkja kom­ist á stall með þekkt­ustu kenni­leitum heims? Hugs­an­lega.

Tökum þá þráð­inn enn lengra; myndi gleði okkar minnka og skynj­unin grynnka? Gætum við haldið áfram að álíta okkur bók­mennta­þjóð? Dytti botn­inn úr ferða­manna­iðn­að­inum? Hvers konar orð­spor færi af okkur á heims­vísu og hvaða áhrif hefði það á efna­hags­líf okkar og stöðu á meðal ann­arra þjóða? Hvernig þjóð værum við án lista? Svarið er ein­falt. Við værum önnur þjóð; ættum enga sögu, sjálfsí­mynd eða sam­ein­ing­ar­tákn (þau eru t.d. flest­öll af meiði list­anna; fán­inn, skjald­ar­merkið, myntin).

Við skulum því halda áfram að stæla um listir, æsa okkur yfir pálmatrjám, upp­hengi í Seðla­bank­anum, atonal-tón­list, þátt­tök­unni í Fen­eyjat­ví­ær­ingnum, óþarfa kostn­aði við fag­ur­fræði­legar útfærslur á hverfum, bygg­ingum, bún­aði og tækjum. Því þannig færum við sönnur á mik­il­vægi list­anna sem gagn­rýn­andi, grein­andi, óbug­andi og upp­byggj­andi afls er bætir líf okkar allra og færir okkur sam­fellu í þjóð­líf og (al)þjóð­ar­vit­und.

Höfundur er rektor Lista­há­skóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi