Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ofbeldisdómur hefur engin áhrif á stjórnarsetu

Dæmdur fyrir að ganga í skrokk á barns­móður sinni.

Ofbeldisdómur hefur engin áhrif á stjórnarsetu

Staða Ólafs William Hand í aðal­stjórn Golf­klúbbs Reykja­víkur (GR) er óbreytt þrátt fyrir að hann hafi verið dæmdur í tveggja ára skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að ganga í skrokk á barns­móður sinni. Vara­for­maður klúbbs­ins segir málið ekki hafa áhrif á stöðu hans.

Áralöng for­ræð­is­deila Ólafs Williams og barns­móður hans hefur verið mikið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum. Í lok síð­asta árs var hann dæmdur í tveggja ára skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að beita barns­móður sína ofbeldi eftir atvik á heim­ili hans og jafn­framt til að greiða henni 400 þús­und krónur í bætur. Dómnum hefur verið áfrýjað til Lands­réttar.

Samkvæmt dómnum tók Ólafur barns­móður sína háls­taki, þrengdi ítrekað að hálsi hennar og hrinti henni þannig að hún féll í gólfið. Gögn og myndir af bráða­mót­töku Land­spít­al­ans leiddu í ljós „marga yfir­borðsá­verka á hálsi, tognun og ofreynslu á háls­hrygg, yfir­borðsá­verka á bak­vegg og brjóst­kassa“. Ólafur var sýkn­aður af því að hafa rifið í hár barns­móður sinnar og hent henni utan í vegg. Sam­býl­is­kona Ólafs var jafn­framt sýknuð af því að hafa veist að barns­móður hans með ofbeldi. Dómurinn er ekki lengur aðgengi­legur á vef Hér­aðs­dóms Reykja­víkur.

Gögn og myndir af bráða­mót­töku Land­spít­al­ans leiddu í ljós „marga yfir­borðsá­verka á hálsi, tognun og ofreynslu á háls­hrygg, yfir­borðsá­verka á bak­vegg og brjóst­kassa“

Ólafur hefur haldið því fram að hann hafi verið að verja heim­ili sitt og koma í veg fyrir að barns­móðir hans og sam­býl­is­maður hennar hefðu barnið, er for­ræð­is­deilan snýst um, á brott með sér. Barnið var í umsjá Ólafs William þegar atburð­ur­inn átti sér stað. Í yfir­lýs­ingu sem Ólafur William sendi frá sér mót­mælir hann því að hafa tekið barns­móður sína háls­taki. „Rétt er að ég var dæmdur fyrir að reyna verja mitt heim­ili en ég tók hana aldrei háls­taki eins og ég var sak­felldur fyrir. Hef ég tekið ákvörðun um að áfrýja þessum dómi.“

Látinn fara frá Eimskip
Ólafi var sagt upp hjá Eimskip í síð­asta mán­uði en hann hafði gegnt stöðu upp­lýs­inga­full­trúa og for­stöðu­manns mark­aðs­mála á alþjóða­sviði und­an­farin 10 ár. Borið var við breyt­ingum á skipu­riti fyr­ir­tæk­is­ins og ráðn­ingu nýs for­stjóra en fram kom að Ólafur muni sinna verk­efnum fyrir fyr­ir­tækið fram á vor.

Ólafur hefur um ára­bil setið í stjórn Golf­klúbbs Reykja­víkur (GR) og er full­trúi í félags- og kapp­leikja­nefnd klúbbs­ins. GR er fjöl­menn­asti golf­klúbbur lands­ins, rekur til að mynda öfl­ugt kvenna-, barna- og ung­linga­starf og skil­aði um 78 millj­ónum í hagnað á síð­asta starfs­ári. Félags­menn eru um 3000 tals­ins. Eimskip hefur verið einn helsti styrkt­ar­að­ili klúbbs­ins und­an­farin ár en stjórn­ar­seta Ólafs er ekki á vegum fyr­ir­tæk­is­ins.

„Þetta er ekk­ert sem hefur áhrif á stöðu Ólafs í stjórn­inni“

Mannlíf kann­aði hvort staða Ólafs innan stjórnar GR væri breytt í ljósi und­an­geng­inna atburða. „Þetta er ekk­ert sem hefur áhrif á stöðu Ólafs í stjórn­inni,“ segir Elín Sveins­dóttir, vara­for­maður Golf­klúbbs Reykja­víkur í sam­tali við Mannlíf. Ekki hefur verið fundað í stjórn­inni frá því Ólafi var sagt upp hjá Eimskip. Næsti stjórn­ar­fundur verður hald­inn í lok mán­aðar en ekki hefur feng­ist upp­gefið hvort staða Ólafs verði rædd þar. Aðrir stjórn­ar­menn sem Mannlíf ræddi við segj­ast ekki hafa tekið afstöðu til máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi