Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Handsprengjum sífellt kastað inn í kjaraviðræður

Lengi hefur blasað við að mjög við­kvæm staða væri uppi á vinnu­mark­aði. Vegna þess voru stjórnir rík­is­fyr­ir­tækja beðnar um að sýna hóf­semi í launa­hækk­unum for­stjóra sinna þegar vald yfir þeim var fært aftur til þeirra. Þær huns­uðu þau til­mæli og laun flestra for­stjóra, sem voru þegar mjög há í öllum sam­an­burði, voru hækkuð um tugi pró­senta.

Handsprengjum sífellt kastað inn í kjaraviðræður

Mesta úlfúðin hefur verið vegna launa­kjara þeirra sem stýra rík­is­bönk­unum tveimur, Lands­bank­anum og Íslands­banka. Banka­sýsla rík­is­ins fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í þeim. Stjórn­ar­for­maður hennar er Lárus Blöndal, sem leiddi líka starfs­hóp­inn sem vann Hvít­bók­ina um fjár­mála­kerfið. Það var Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, sem skip­aði hann í bæði hlut­verkin.

Í árs­reikn­ingi Lands­bank­ans fyrir árið 2018, sem birtur var fyrir rúmri viku, kom fram að laun banka­stjór­ans, Lilju Bjarkar Ein­ars­dóttur, hefðu verið hækkuð í 3,8 millj­ónir króna á mán­uði, sem þýðir að laun hennar hafa hækkað um tæp­lega 82 pró­sent á um tveimur árum, en þau voru tæp­lega 2,1 milljón króna áður en að ákvörðun um laun hennar var færð undan kjara­ráði.

Íslands­banki færð­ist aftur í rík­i­s­eigu eftir að stöð­ug­leika­samn­ingar voru gerðir við kröfu­hafa föllnu bank­anna. Við það urðu starfs­menn bank­ans allir rík­is­starfs­menn og ákvörðun um laun banka­stjór­ans, Birnu Ein­ars­dóttur, færð­ist undir kjara­ráð. Birna var með alls um 4,8 millj­ónir króna í laun og árang­urstengdar greiðslur að með­al­tali á mán­uði á árinu 2016.

Í jan­úar 2017 úrskurð­aði kjara­ráð að lækka ætti laun hennar í rúm­lega tvær millj­ónir króna á mán­uði. Sú launa­lækkun kom þó aldrei til fram­kvæmda þar sem Birna var með tólf mán­aða upp­sagn­ar­frest. Ákvörðun um launa­kjör hennar færð­ist svo aftur til stjórnar Íslands­banka um mitt ár 2017.

Birna var einnig með 4,8 millj­ónir króna í laun á árinu 2017. Til við­bótar fékk hún eina milljón króna á mán­uði í mót­fram­lag atvinnu­rek­anda í líf­eyr­is­sjóð.

Í vik­unni sendi Íslands­­­banki frá sér til­­kynn­ingu þar sem fram kom að Birna hefði óskað eftir því í nóv­­em­ber síð­­ast­liðnum að laun hennar yrðu lækkuð og að þau séu nú 4,2 millj­­ónir króna á mán­uði. Sú tala er þó ekki tæm­andi fyrir heild­ar­kjör hennar heldur tekur ein­ungis mið af launum. Ef bif­reið­ar­hlunn­indi og áætl­aður kaup­auki á þessu ári eru reiknuð með verða með­al­tals­laun Birnu á mán­uði á árinu 2019 um 4,8 millj­ónir króna. Sú kjara­breyt­ing tók gildi 1. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Í fyrra, á árinu 2018, hækk­uðu heild­ar­laun hennar hins vegar umtals­vert. Þá námu laun, bif­reið­ar­hlunn­indi og kaup­auki að með­al­tali 5,3 millj­ónum króna á mán­uði.

Lestu frétta­skýr­ing­una í heild á vef Kjarnans og í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi