Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mikilvægt að dóttir mín fái þessa viðurkenningu“

Lög­reglan við­ur­kennir brotala­mir í rann­sókn á meintu kyn­ferð­is­broti lög­reglu­manns.

„Mikilvægt að dóttir mín fái þessa viðurkenningu“
||

Lög­reglan á Vest­ur­landi hefur við­ur­kennt að hafa ekki nýtt allar rann­sókn­ar­heim­ildir þegar Helga Elín Her­leifs­dóttir kærði lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­brot árið 2011. Málið, sem Mannlíf fjall­aði ítar­lega um í fyrra­vor, var látið niður falla.

Halldóra Magný Bald­urs­dóttir, móðir Helgu Elínar, sendi Nefnd um eft­ir­lit með starfi lög­reglu (NEL) erindi þann 14. febr­úar í fyrra þar sem hún gerir meðal ann­ars athuga­semdir við rann­sókn máls­ins hjá lög­reglu og með­ferð þess hjá rík­is­sak­sókn­ara.

„Bréf lög­reglu­stjór­ans á Vest­ur­landi er í raun við­ur­kenn­ing á því sem ég hef ítrekað haldið fram og það er að rann­sókn máls­ins var ábóta­vant,“ segir Halldóra sem hefur undir höndum svar­bréf frá lög­reglu­stjór­anum á Vest­ur­landi um hvort rann­sókn­inni hafi verið ábóta­vant. Bréfið er hluti af rann­sókn NEL á mál­inu.

„Bréf lög­reglu­stjór­ans á Vest­ur­landi er í raun við­ur­kenn­ing á því sem ég hef ítrekað haldið fram og það er að rann­sókn máls­ins var ábóta­vant,“ segir Halldóra sem barist hefur fyrir rétt­læti fyrir dóttur sína sem kærði lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­brot. Mynd / Hallur Karlsson

Forsaga máls­ins er sú að lög­reglan á Akranesi var á sínum tíma fengin til að rann­saka málið þar sem lög­reglu­mað­ur­inn sem stúlkan kærði starf­aði hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem stúlkan bjó einnig. Meint brot átti sér stað árið 2007 en það var kært til lög­reglu 13. októ­ber 2011 og þann 2. októ­ber 2012 felldi rík­is­sak­sókn­ari málið niður. Halldóra hefur síðan haldið því fram að mál dóttur hennar hafi ekki fengið rétt­láta máls­með­ferð og þann 14. febr­úar 2018 sendi hún NEL málið til athug­unnar.

„Lög­reglu­stjóri telur að við rann­sókn máls­ins hefði lög­regla átt að nýta rann­sóknar­úr­ræði IX. og X. kafla laga nr. 88/2008.“

Í svar­bréfi sem NEL sendi Halldóru þann 25. júní sama ár var ann­ars vegar hluta athuga­semda Halldóru vísað frá en henni hins vegar tjáð að nið­ur­staða nefnd­ar­innar lægi ekki fyrir fyrr en búið væri að afla frek­ari gagna og skýr­inga frá Lög­regl­unni á Vest­ur­landi, Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Rík­is­lög­reglu­stjóra og Rík­is­sak­sókn­ara. Emb­ætt­unum var gef­inn frestur til 31. ágúst til að svara.

Aðeins eitt svar­bréf barst fyrir til­tek­inn frest, frá Lög­regl­unni á Vest­ur­landi. Í bréf­inu segir meðal ann­ars: „Lög­reglu­stjóri telur að við rann­sókn máls­ins hefði lög­regla átt að nýta rann­sóknar­úr­ræði IX. og X. kafla laga nr. 88/2008,“ og er þar að vísa í þá athuga­semd Halldóru að tölva sak­born­ings hafi ekki verið skoðuð. Varðandi þá umkvörtun Halldóru að sak­born­ingur hafi farið með lög­reglu á vett­vang meints glæps telur lög­reglu­stjór­inn á Vest­ur­landi sak­born­ing hafa haft rétt á því að vera við­staddur vett­vangs­skoðun enda sjái lög­reglu­stjór­inn ekki að það hafi tor­veldað rann­sókn máls­ins.

Varðandi það að tíma­setja mein­tan glæp telur lög­reglu­stjóri hins vegar að nýta hefði átt fyrr­nefnd rann­sóknar­úr­ræði og nefnir að „við rann­sókn máls­ins hafi ekki verið kannað hvort umráða­menn húss­ins hafi haldið yfir­lit um hverjir dvöldu í bústaðnum á hverjum tíma,“ og að við rann­sókn máls­ins hafi verið stað­festar þrjár sím­hring­ingar úr síma Halldóru í síma sak­born­ings. „Rannsókn máls­ins að þessu leyti gat verið ítar­legri,“ segir í bréf­inu frá lög­reglu­stjór­anum á Vest­ur­landi.

„Ég tel alveg ljóst að ekki hafi verið gætt óhlut­lægni við rann­sókn máls­ins líkt og lög gera ráð fyrir enda hafi lög­regla ekki beitt þeim úrræðum sem þörf var á og heim­ildir voru til, til að varpa skýru ljósi á fram­vindu máls­ins. Það finnst mér lög­reglu­stjór­inn á Vest­ur­landi stað­festa með bréfi sínu.“

„Lög­reglu­stjór­inn tekur einnig undir athuga­semd mína varð­andi það að tvö vitni sem yfir­heyrð voru vegna máls­ins voru yfir­heyrð á vinnu­stað ann­ars þeirra, en sá gegnir ábyrgð­ar­stöðu innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins,“ bætir hún við og vísar þar áfram í bréfið frá Lög­reglu­stjór­anum á Vest­ur­landi. „Það er alveg skýrt í lögum um með­ferð saka­mála hver mark­mið rann­sóknar á að vera. Þar er sér­stak­lega tekið fram að afla skuli allra nauð­syn­legra gagna og það var ekki gert í þessu máli og tekur lög­reglu­stjór­inn á Vest­ur­landi undir það að rann­sókn­ar­heim­ildir hafi ekki verið nýttar. Ég tel alveg ljóst að ekki hafi verið gætt óhlut­lægni við rann­sókn máls­ins líkt og lög gera ráð fyrir enda hafi lög­regla ekki beitt þeim úrræðum sem þörf var á og heim­ildir voru til, til að varpa skýru ljósi á fram­vindu máls­ins. Það finnst mér lög­reglu­stjór­inn á Vest­ur­landi stað­festa með bréfi sínu.“

Halldóra og Helga voru í ítar­legu við­tali um málið í fyrra þar sem Halldóra gagn­rýndi meðal ann­ars rann­sókn máls­ins og með­ferð þess hjá rík­is­sak­sókn­ara. Mynd / Hallur Karlsson

Ekki fjallað um handfærðar vinnustundir

Halldóru finnst áhuga­vert að lög­reglu­stjór­inn sleppir því að minn­ast á excel-skjal sak­born­ings um vinnu­stundir sem nið­ur­fell­ing kyn­ferð­is­brota­máls­ins var meðal ann­ars byggð á, skjal sem kom frá sak­born­ingi sjálfum. „Ég tel að þetta skjal sanni að sum­ar­bú­staða­ferðin var farin helg­ina 16.-18. febr­úar 2007. Í umræddu excel-skjali kemur fram að lög­reglu­mað­ur­inn hafi verið við vinnu bæði laug­ar­dag og sunnu­dag helg­ina 17. og 18. febr­úar 2007 frá kl. 07:00-17:00 báða dag­ana og sést á þessum færslum að hér er ekki um tíma­stimplun að ræða heldur hand­færðir tímar eftir á. Ég tel að ekki sé hafið yfir allan vafa, að með þessum tíma­færslum hafi lög­reglu­mað­ur­inn í raun búið sér til fjar­vist­ar­sönnun, sem tekin var góð og gild af Rík­is­sak­sókn­ara. Þessar dag­setn­ingar passa við einu sím­tölin sem áttu sér stað á milli síma míns og sak­born­ings en sím­tölin voru þann 15. og 16. febr­úar 2007,“ segir Halldóra.

„Ég tel að ekki sé hafið yfir allan vafa, að með þessum tíma­færslum hafi lög­reglu­mað­ur­inn í raun búið sér til fjar­vist­ar­sönnun, sem tekin var góð og gild af Rík­is­sak­sókn­ara.“

Í sum­ar­bú­staða­ferð­inni þegar meint brot gegn dóttur Halldóru var framið var einnig grunur um að klám­efni hafi verið haft fyrir börn­unum. „Rík­is­sak­sókn­ari byggði ákvörðun sína um að rann­saka ekki blygð­un­ar­sem­is­brotið á því að á þeim brotum væri fimm ára fyrn­ing, en miðað við þessar dag­setn­ingar þá var það brot ekki fyrnt í októ­ber 2011. Blygð­un­ar­sem­is­brotið, sem sneri bæði að sak­born­ingi og vini hans sem rætt var um hér að ofan og gegnir ábyrgð­ar­stöðu innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins, hefði því átt að vera rann­sakað sér­stak­lega,“ segir Halldóra.

Fátt um svör hjá NEL

Við vinnslu frétt­ar­innar hafði Mannlíf sam­band við NEL til spyrja hvort Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Rík­is­sak­sókn­ari og Rík­is­lög­reglu­stjóri hafi látið í té umbeðin gögn og skýr­ingar sem NEL óskaði eftir að bær­ust nefnd­inni eigi síðar en 31. ágúst 2018. Ef gögnin væru komin, hvernig NEL gengi að vinna úr þeim og ef ekki, hvort þessum emb­ættum væri stætt á að bregð­ast ekki við kalli nefnd­ar­innar fyrir til­skip­aða dag­setn­ingu á síð­asta ári. Einnig hvernig NEL hyggð­ist bregð­ast við svar­leysi emb­ætt­anna? Eina svarið sem NEL gaf við fyr­ir­spurnum Mannlífs var: „Nefndin getur upp­lýst að hún hafi ekki lokið yfir­ferð yfir málið en reiknar með að það verði gert sem fyrst.“

„Ég hef alla tíð talið afar mik­il­vægt að dóttir mín fái þessa við­ur­kenn­ingu og tel það ekki síður mik­il­vægt að lög­reglan læri af þessum mis­tökum.“

Aðspurð um þessi vinnu­brögð segir Halldóra að þessi langi afgreiðslu­tími hafi valdið henni von­brigðum. „Afgreiðslu­tími nefnd­ar­innar hefur tekið um eitt ár sem er ekki í neinu sam­ræmi við reglur sem nefndin á að starfa eftir. Bréf lög­reglu­stjór­ans á Vest­ur­landi er hins vegar við­ur­kenn­ing á því að mis­tök voru gerð við rann­sókn þessa máls. Ég hef alla tíð talið afar mik­il­vægt að dóttir mín fái þessa við­ur­kenn­ingu og tel það ekki síður mik­il­vægt að lög­reglan læri af þessum mis­tökum. Bréf lög­reglu­stjór­ans á Vest­ur­landi stað­festir rétt­mæti athuga­semda minna.

Nú hefur dóms­mála­ráð­herra sagst ætla að bregð­ast við áskorun minni frá því í júní á síð­asta ári svo ég ætla að leyfa mér að vera bjart­sýn á að það komi eitt­hvað jákvætt út úr þess­ari bar­áttu okkar mæðgna,“ segir Halldóra.

Sjá einnig:

„Rík­is­lög­reglu­stjóri brást dóttur minni“

„Frávísun mikil von­brigði“

Tímalína

16.-17. febr­úar 2007 – Meint kyn­ferð­is­brot á sér stað.
5. októ­ber 2011 – Helga opnar sig fyrst um meint kyn­ferð­is­brot.
13. októ­ber 2011 – Meint kyn­ferð­is­brotið kært til lög­reglu.
2. októ­ber 2012 – Rík­is­sak­sókn­ari fellir málið niður.
14. febr­úar 2018 – Halldóra sendir NEL erindi með athuga­semdum um rann­sókn máls­ins og með­ferð þess hjá Rík­is­sak­són­ara.
25. maí 2018 – Halldóra og Helga stíga fram í við­tali við Mannlíf.
25. júní 2018 – Halldóra fær bréf frá NEL um að hluta athuga­semda hennar hafi verið vísað frá en nið­ur­staða nefnd­ar­innar liggi ekki fyrir fyrr en búið væri að afla frek­ari gagna og skýr­inga frá Lög­regl­unni á Vest­ur­landi, Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Rík­is­lög­reglu­stjóra og Rík­is­sak­sókn­ara. Emb­ætt­unum er gef­inn frestur til 31. ágúst til að svara.
28. ágúst 2018 – Lög­reglan á Vest­ur­landi svarar NEL.
31. ágúst 2018 – Frestur emb­ætt­anna til að svara NEL rennur út.
31. jan­úar 2018 – NEL hvorki játar því né neitar að borist hafi svör frá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Rík­is­lög­reglu­stjóra og Rík­is­sak­sókn­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi