Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Flokkarnir njóta líka góðærisins

Rekstr­ar­um­hverfi stjórn­mála­flokka hefur gjör­breyst á und­an­förnum tveimur árum eftir að fram­lög til þeirra úr rík­is­sjóði hafa meira en tvö­fald­ast á tveimur árum. Á sama tíma hafa fram­lög einka­að­ila farið hækk­andi. Auk þess að fjölga í starfs­lið­inu þurfa flokk­arnir sömu­leiðis að grynnka á skuldum sem í ein­hverjum til­fellum eru langt umfram eignir þeirra.

Flokkarnir njóta líka góðærisins
||

Samtals fá stjórn­mála­flokk­arnir átta sem sitja á þingi 744 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði í ár og skipt­ist upp­hæðin eftir hlut­falli atkvæða í þing­kosn­ing­unum 2017. Í fyrra skiptu flokk­arnir á milli sín 648 millj­ónum en þrjú árin þar á undan námu upp­hæð­irnar 286 millj­ónum.

Þessa miklu hækkun má rekja til ákvörð­unar stjórn­mála­flokk­anna sjálfra enda greiðslur til þeirra sam­kvæmt ákvörðun fjár­laga hverju sinni. Tildrög hækk­un­ar­innar milli áranna 2016 og 2017 má rekja til sam­eig­in­legs erindis fram­kvæmda­stjóra sex stjórn­mála­flokka, þeirra flokka sem nú skipa Alþingi utan Pírata og Flokks fólks­ins, til fjár­laga­nefndar Alþingis þar sem óskað var eftir leið­rétt­ingu á fram­lag­inu.

Var vísað til þess að fram­lagið hafði lækkað um helm­ing á raun­virði frá árinu 2008 og þar sem flokkum á þingi hafði fjölgað var, eðli máls­ins sam­kvæmt, minna til skipt­anna fyrir hvern og einn flokk. Þá var vísað til þess að stjórn­mála­sam­tök starfi í þágu almanna­hags­muna en hafi þrátt fyrir það ekki bol­magn á við helstu hags­muna­sam­tök. Nið­ur­staðan var sú að fram­lögin voru hækkuð úr 286 millj­ónum í 648 millj­ónir, eða um 127 pró­sent.

Ári síðar voru fram­lögin fyrir árið 2019 hækkuð um 96 millj­ónir króna, eða um 20 pró­sent. Sú hækkun var skýrð ann­ars vegar með hækkun verð­lags og launa en auk þess bætt­ist við nýtt grunn­rekstr­ar­fram­lag upp á 12 millj­ónir á hvern þing­flokk í því skyni að styrkja stöðu smærri flokka.

Fleiri flokkar, minna fé

Það er rétt sem fram kom í bréfi fram­kvæmda­stjór­anna að fram­lög til stjórn­mála­flokka höfðu dreg­ist all­nokkuð saman fram til árs­ins 2016. Á með­fylgj­andi línu­riti má sjá fram­lögin á föstu verð­lagi og sést glögg­lega hvar fram­lögin lækka fram til árs­ins 2015 þegar lít­ils háttar hækkun varð á fram­lag­inu. Á þessum sama tíma breytt­ist lands­lagið í íslenskum stjórn­málum ört.

Þannig skipt­ist fram­lagið á milli sex flokka kjör­tíma­bilið 2009 til 2013. Sex flokkar komust inn á þing í kosn­ing­unum 2013 en Dögun, Flokkur heim­il­anna og Lýð­ræð­is­vaktin fengu einnig sneið af kök­unni þar sem þau fram­boð höfðu fengið meira en 2,5 pró­sent atkvæða. Átta fram­boð, þar af sjö sem komust inn á þing, skiptu með sér fram­lag­inu eftir kosn­ing­arnar 2016 . Með öðrum orðum, þá hafði tekju­grunnur hvers og eins flokks dreg­ist all­nokkuð saman á árunum frá hruni og fram til árs­ins 2016.

Eiga von á meira frá fyrirtækjum og einstaklingum

En það voru ekki bara rík­is­fram­lögin sem rýrn­uðu því fram­lög fyr­ir­tækja og ein­stak­linga til stjórn­mála­flokka dróg­ust einnig veru­lega saman frá hruni. Þau náðu hámarki árið 2007 þegar þau námu 358 millj­ónum króna, en þessar háu styrkupp­hæðir, auk styrkja til ein­stakra fram­bjóð­enda í próf­kjörs­bar­áttu, urðu til­efni mik­illa deilna við banka­hrunið og þóttu sýna tang­ar­hald auð­jöfra á stjórn­mála­stétt­inni.

Framlög þessi dróg­ust því hratt saman eftir hrun og náðu lág­marki árið 2012 þegar þau námu 115 millj­ónum króna. Árið 2013 hækk­uðu styrkir lög­að­ila og ein­stak­linga til flokk­anna umtals­vert en það var kosn­ingaár og kosn­inga­bar­áttan æði hörð. Styrkirnir fóru aftur lækk­andi fram til árs­ins 2015 en hækk­uðu á ný 2016 og 2017 sem skýrist lík­ast til af þing­kosn­ingum bæði þessi ár.

Þessi tekju­stofn gæti þó hækkað á næst­unni því sam­hliða hækkun fram­laga úr rík­is­sjóði hækk­uðu hámarks­fram­lög ein­stak­linga og fyr­ir­tækja. Nú eru hámarks­fram­lög ein­stak­linga og fyr­ir­tækja 550 þús­und í stað 400 þús­und áður og hámarks­upp­hæð sem ein­stak­lingur getur gefið nafn­laust hækk­aði úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und. Þessar hækk­anir voru skýrðar með verð­lags­breyt­ingum.

Sjálfstæðisflokkurinn í sérflokki

Samkvæmt nýbirtu yfir­liti fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins fær Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 178 millj­ónir króna á fjár­lögum árs­ins 2019.

Þegar horft er á sam­an­lagðar tekjur flokk­anna kemur í ljós að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í algjörum sér­flokki. Ekki bara fær flokk­ur­inn, í krafti fjölda atkvæða, hæstu fram­lögin frá rík­is­sjóði og sveit­ar­fé­lögum heldur fær hann lang­hæstu styrk­ina frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum til við­bótar. Samkvæmt nýbirtu yfir­liti fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins fær Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 178 millj­ónir króna á fjár­lögum árs­ins 2019.

Síðasti fyr­ir­liggj­andi árs­reikn­ingur er frá árinu 2017 og það ár fékk flokk­ur­inn tæp­lega 60 millj­ónir króna frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum. 15,2 millj­ónir komu frá fyr­ir­tækjum og 44 millj­ónir frá ein­stak­lingum. Reyndar þurfti flokk­ur­inn að end­ur­greiða hálfa milljón króna eftir að í ljós kom að hann hafði þegið 900 þús­und krónur frá félögum í eigu útgerð­ar­kon­unnar Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, en á þessum tíma var hámarks­fjár­hæð styrkja 400 þús­und krónur úr einum og sama vas­anum. Loks komu 17,8 millj­ónir króna í fram­lög frá sveit­ar­fé­lögum (sjá kafla um fram­lög frá sveit­ar­fé­lögum).

Sam­fylk­ingin fær rúma 91 milljón úr rík­is­sjóði í ár en fékk næst­mestu fram­lögin frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum árið 2017, 43,7 millj­ónir króna. Þar af komu 37 millj­ónir króna frá ein­stak­lingum. Þá fékk flokk­ur­inn 11,4 millj­ónir frá sveit­ar­fé­lögum. Tvö fram­boð skáru sig úr hvað varðar fram­lög frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum. Annars vegar Píratar sem fengu aðeins 560 þús­und krónur frá fyr­ir­tækjum en söfn­uðu 8,4 millj­ónum frá ein­stak­lingum.

Flokkur fólks­ins spil­aði í utandeild­inni ef svo má kom­ast að orði, fékk 100 þús­und krónur frá fyr­ir­tækjum og 1,1 milljón frá ein­stak­lingum. Þó ber að hafa í huga að flokk­ur­inn fékk ekki kjör­inn mann á þing fyrr en haustið 2017. Framlög til ann­arra flokka námu á bil­inu 8,8 til 21,4 millj­ónum. Fram­sókn­ar­flokkur, Mið­flokk­ur­inn og Viðreisn eiga það sam­eig­in­legt að sækja meiri­hluta styrkja til fyr­ir­tækja á meðan aðrir flokkar fá megnið af sínum fram­lögum frá ein­stak­lingum.

Flokkarnir skulda mikið

Þrátt fyrir aukin fram­lög á liðnum árum verða stjórn­mála­flokk­arnir seint taldir gróðama­sk­ínur. Þvert á móti er ekki óal­gengt að stjórn­mála­flokkar skili reglu­lega tapi og þess vegna safnað upp tals­verðum skuldum.

Ekki er óal­gengt að stjórn­mála­flokkar skili reglu­lega tapi og þess vegna safnað upp tals­verðum skuldum.

Rétt eins og á tekju­hlið­inni er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í sér­flokki þegar kemur að skuldum. Samkvæmt síð­asta fyr­ir­liggj­andi árs­reikn­ingi fyrir árið 2017 námu skuldir flokks­ins 421 milljón króna. Á móti koma umtals­verðar eignir en í árs­lok 2017 voru eignir Sjálf­stæð­is­flokks­ins metnar á 783 millj­ónir króna. Sam­fylk­ingin bók­færði einnig umtals­verðar eignir þetta árið, 190 millj­ónir króna, en skuldir flokks­ins stóðu þá í 114 millj­ónum króna. Píratar njóta sem fyrr nokk­urrar sér­stöðu að þessu leyti því flokk­ur­inn skuld­aði þá ekki nema eina milljón króna og var með jákvætt eigið fé upp á 46 millj­ónir.

Eigið fé ann­arra stjórn­mála­flokka var á þessum tíma nei­kvætt. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn skuld­aði 242 millj­ónir króna og var með nei­kvætt eigið fé upp á 58,5 millj­ónir króna. Eigið fé VG var nei­kvætt um 18 millj­ónir og stóðu skuldir í 37,5 millj­ónum. Hinir nýstofn­uðu flokkar, Viðreisn, Mið­flokkur og Flokkur fólks­ins, voru söm­leiðis allir í mínus á þessu tíma­bili.

Sveitarfélögin leggja einnig í púkkið

Sveit­ar­fé­lögum er skylt að veita stjórn­mála­sam­tökum, sem fengið hafa að minnsta kosti einn mann kjör­inn í sveit­ar­stjórn eða hlotið að minnsta kosti 5 pró­sent atkvæða í næst­liðnum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, fjár­fram­lög til starf­semi sinnar. Fjár­hæð­inni er úthlutað í hlut­falli við atkvæða­magn.

Reykjavík borgar mest

Reykja­vík­ur­borg greiddi stjórn­mála­sam­tökum að minnsta kosti 97,5 millj­ónir króna á síð­asta kjör­tíma­bili, eða rúmar 24 millj­ónir á ári. Kópa­vogur greiddi um 23 millj­ónir króna á síð­asta kjör­tíma­bili og í Hafn­ar­firði voru greiðsl­urnar rúmar 18 millj­ónir. Reykja­nes­bær og Garðabær styrktu stjórn­mála­sam­tök um rúmar 14 millj­ónir hvor og Akureyri um 8 millj­ónir.

Sjálfstæðisflokkur fær mest

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk hæstu upp­hæð­ina frá sveit­ar­fé­lögum árið 2017, eða um 17,8 millj­ónir króna, enda flokk­ur­inn með flesta bæj­ar­full­trúa á lands­vísu. Sam­fylk­ingin fékk næst­mest, 11,4 millj­ónir, og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 5,7 millj­ónir. VG fékk tæpar 3,6 millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi