Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hart barist um feitasta bitann í boltanum

Ársþing Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fer fram á morgun þar sem flestra augu verða á for­manns­kjör­inu. Þar takast á sitj­andi for­maður, Guðni Bergsson, og heið­urs­for­maður og fyrrum for­maður, Geir Þor­steins­son. Kosn­inga­bar­áttan hefur verið óvenju­lega hörð og fram­bjóð­end­urnir ekki hikað við að skjóta föstum skotum hvor að öðrum.

Hart barist um feitasta bitann í boltanum
||

Bak­grunnur fram­bjóð­end­anna er afar ólíkur. Guðni átti far­sælan feril sem knatt­spyrnu­maður hjá Val, Totten­ham og Bolton Wanderers þar sem hann var í miklum metum. Hann spil­aði 80 lands­leiki fyrir Íslands hönd. Samhliða knatt­spyrnu­ferl­inum mennt­aði Guðni sig í lög­fræði og starf­aði á lög­manns­stofu áður en hann bauð sig fram til for­manns KSÍ fyrir tveimur árum.

Knatt­spyrnu­fer­ill Geirs var hins vegar lítt eft­ir­minni­legur en ekki verður annað sagt en að hann þekki vel til innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar. Hann lagði dóms­gæslu fyrir sig og byrj­aði að starfa hjá KSÍ árið 1992. Hann var fram­kvæmda­stjóri sam­bands­ins í 10 ár undir Eggerti Magn­ús­syni og tók svo við for­manns­emb­ætt­inu af honum árið 2007 og gegndi því til árs­ins 2017. Hann var gerður að heið­urs­for­manni KSÍ eftir að hann lét af störfum en afar óvenju­legt er að heið­urs­for­menn snúi til baka og bjóði sig fram gegn sitj­andi for­manni.

Geir hefur keyrt mikið á þeirri fram­þróun sem varð á íslenskri knatt­spyrnu í hans for­mann­s­tíð, einkum og sér í lagi árangri lands­lið­anna. Hann hafi ráð­ist í bygg­ingu knatt­húsa og sparkvalla um allt land þrátt fyrir efa­semd­araddir þar um. Þá hafi margir hváð þegar mark­miðið var sett á EM og HM en það hafi tek­ist með til­komu Lars Lagerbäck í starf lands­liðs­þjálf­ara. En for­mann­s­tíð Geirs ein­kennd­ist ekki bara af árangri, heldur einnig reglu­legum hneyksl­is­málum sem mörg hver sneru að menn­ing­unni innan sam­bands­ins. Er skemmst að minn­ast þess þegar millj­ónir króna voru teknar úr af kredit­korti KSÍ í stripp­klúbbi í Zürich í Sviss. Hefur Geir ítrekað þurft að svara fyrir þessi mál á síð­ustu dögum.

Ljóst er á Guðna að honum hefur þótt óþægi­legt að keppa við for­vera sinn í starfi og heið­urs­for­mann sam­bands­ins. Guðni hefur bent á að rekstur sam­bands­ins hafi verið með ágætum í hans for­mann­s­tíð. Þannig hafi aldrei verið meira fé útdeilt til aðild­ar­fé­lag­anna og tekjur hafi verið auknar, bæði með nýjum samn­ingum og útleigu Laug­ar­dalsvallar til tón­leika­halds. Þá hafi nauð­syn­legar og viða­miklar breyt­ingar verið gerðar á skrif­stofu KSÍ og ásýnd sam­bands­ins sömu­leiðis breyst, enda Guðna tek­ist að sneiða fram hjá óheppi­legum upp­á­komum. Guðni ber hins vegar ábyrgð á ráðn­ingum lands­liðs­þjálf­ara sem hafa verið umdeildar. Karla­lands­liðið hefur verið langt frá sínu besta og ekki enn unnið leik undir stjórn Eriks Hamrén á meðan óreyndur þjálf­ari, Jón Þór Hauksson, tók við kvenna­lið­inu.

Risavaxið ár að baki

Samkvæmt árs­reikn­ingi KSÍ nam hagn­aður sam­bands­ins í fyrra 207 millj­ónum króna.

Sá sem fer með sigur af hólmi tekur við góðu búi, enda ber KSÍ höfuð og herðar yfir önnur sam­bönd þegar kemur að fjár­málum. Samkvæmt árs­reikn­ingi KSÍ sem birtur var í vik­unni nam hagn­aður sam­bands­ins í fyrra 207 millj­ónum króna. Eigið fé var 746 millj­ónir króna um ára­mót. Þar munar mestu fram­lög frá FIFA í tengslum við þátt­töku Íslands á HM í Rúss­landi. Alls fékk KSÍ 1,8 millj­arða króna í styrki og fram­lög í fyrra en sú fjár­hæð dregst saman um helm­ing sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun næsta árs, enda engin stór­mót í gangi. Gert er ráð fyrir 29 millj­óna króna hagn­aði í ár. Minni umsvif þýða sömu­leiðis minna fé til aðild­ar­fé­lag­anna því í fyrra fengu þau 331 milljón í styrki frá sam­band­inu en 120 millj­ónir verða til skipt­anna á næsta ári.

77 atkvæði tryggja sigurinn

Alls munu 152 full­trúar frá aðild­ar­fé­lögum KSÍ sitja þingið sem hefst klukkan 10 á morgun, laug­ar­dag. Að því gefnu að allir full­trú­arnir mæti til þings­ins mun sig­ur­veg­ar­inn þurfa 77 atkvæði til að tryggja sér útnefn­ing­una. Þau félög sem eiga full­trúa í efstu deild karla eða kvenna eiga fjóra full­trúa á þing­inu, félög í 1. deild mega senda þrjá full­trúa, félög í 2. deild tvo full­trúa og félög í neðri deildum, auk hér­aðs­sam­banda víðs­vegar um landið, einn full­trúa hvert. Ómögu­legt er að segja fyrir um nið­ur­stöð­una. Guðni var kjör­inn með 83 atkvæðum á árs­þing­inu 2017 en ólík­legt er að Geir, með þau tengsl sem hann hefur innan hreyf­ing­ar­innar, hefði riðið á vaðið ef hann teldi sig ekki eiga stuðn­ing meðal aðild­ar­fé­lag­anna.

Boðar algjöra uppstokkun á skipulagi KSÍ

Geir hefur gert mikið úr meintri óánægju aðild­ar­fé­laga sam­band­ins og hefur boðað mikla upp­stokkun á skipu­lagi KSÍ. Þar bendir hann á sam­tökin Íslenskur topp­fót­bolti (ÍTF), hags­muna­sam­tök félaga í efstu deildum, sem Geir segir að myndi í raun­inni annað knatt­spyrnu­sam­band í land­inu. Þessu vill Geir breyta með stofnun sér­stakra deild­ar­sam­taka, með stjórn og skrif­stofu, sem fengi aðild að KSÍ. Guðni segir það popúl­isma hjá Geir að stilla félög­unum upp gegn KSÍ með þessu móti. Bendir hann á að KSÍ hafi deilt hund­ruðum millj­óna króna af hagn­aði sínum með aðild­ar­fé­lög­unum og sam­skiptin við þau mun meiri en áður. Það eigi einnig við um ÍTF og fyrir þing­inu liggi til­laga um að for­maður þeirra taki sæti í stjórn KSÍ auk þess sem öll félög þar inn­an­borðs eigi full­trúa á þing­inu.

Forseti UEFA blandast í baráttuna

Aleksander Ceferin, for­seti UEFA.

Kosn­inga­bar­áttan hefur verið mun óvægn­ari og per­sónu­legri nú en oft­ast áður. Það sást glögg­lega þegar Aleksander Ceferin, for­seti UEFA, hrós­aði Guðna í hástert og sagði sam­band UEFA og KSÍ aldrei hafa verið betra. Geir sagði þessi ummæli Ceferins skandal. Þau væri „dæmi­gerð fyrir Austur-Evr­ópu­mann­inn“ og í takti við það sem ger­ist í Austur-Evrópu. Benti Guðni og fleiri á að ummælin væru ósmekk­leg og hlaðin for­dómum í garð Austur-Evr­ópu­manna. Hvort þessi ummæli Geirs hafi áhrif á loka­nið­ur­stöð­una kemur í ljós á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi