Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Erfitt ár framundan hjá Icelandair

Icelandair birti í gær upp­gjör sitt fyrir fjórða árs­fjórð­ung 2018. Mikill við­snún­ingur hefur orðið á milli áranna 2017 og 2018. Hagn­að­ist félagið um 4,5 millj­arða króna árið 2017 en árið 2018 nam tapið 6,7 millj­örðum króna.

Erfitt ár framundan hjá Icelandair
|Bogi Nils Bogason

Er það við­snún­ingur upp á 11 millj­arða króna. Þá lækkar eigið fé þess um 11 millj­arða króna á milli ára. Fer eig­in­fjár­hlut­fallið úr 42% í 32%. Þá lækkar hand­bært fé frá rekstri um 70% á milli ára. Þá juk­ust tekjur hins vegar um 7% á milli ára.

Er upp­gjörið tölu­vert fyrir neðan spá grein­ing­ar­að­ila.

Bogi Nils Bogason.

„Rekst­ar­nið­ur­staðan var mun lak­ari en lagt var upp með í byrjun árs og end­ur­speglar harða sam­keppni í milli­landa­flugi, lág og oft ósjálf­bær far­gjöld og mikla hækkun elds­neyt­is­verðs. Jafn­framt höfðu breyt­ingar á sölu- og mark­aðs­starf­semi félags­ins, sem og ójafn­vægi í leið­ar­kerfi nei­kvæð áhrif á afkom­una, eins og áður hefur verið kynnt, “ var haft eftir Boga Nils Bogasyni, for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins sem tók við stjórn­ar­taumunum eftir að Björgólfur Jóhann­son sagði starfi sínu lausu í ágúst í fyrra. Í grein­ingu frá hag­deild Lands­bank­ans sem send var út í kvöld kemur einnig fram að elds­neytis­kostn­aður á fjórða árs­fjórð­ungi hafi verið tölu­vert umfram vænt­ingar.

Líkt og Mannlíf fjall­aði um í vik­unni ríkir erfitt árferði hjá flug­fé­lögum á alþjóða­vísu. Þá sagði Bogi í gær að ljóst sé að áfram ríki óvissa í rekstr­ar­um­hverfi félags­ins. Það sem kemur þó ekki fram í upp­gjör­inu sem kynnt var í gær er hvernig launa­hlut­fallið hefur breyst hjá Icelandair. Árið 2017 var félagið með hæsta launa­hlut­fallið sam­an­burði við önnur félög. Hækkaði það um meira en 25% á milli ára. Þannig nam launa­hlut­fallið þá 31,8% á meðan SAS var td. með 21,6% og Luft­hansa 17,4%. Þá var launa­hlut­fallið meira en helm­ingi lægra hjá Wow air eða 14,8%. Í grein­ingu frá hag­deild Land­bank­ans kemur fram að launa­hlut­fallið hafi farið í 34% á árinu 2018. Er þar tekið fram að launa­hlut­fallið hafi verið 25% á árunum 2013-2015. 

Er von á nýjum forstjóra?

Miklar vanga­veltur fóru á af stað um arf­taka Björg­ólfs Jóhanns­sonar eftir að hann hætti skyndi­lega í lok sum­ars 2018. Voru nokkur nöfn nefnd sem hugs­an­legir arf­takar. Má þar nefna Jón Karl Ólafson og Helga Má Björg­vins­son. Jón Karl var for­stjóri Icelandair 2005-2007 og Helgi hefur unnið hjá Icelandair í 20 ár víða um heim m.a. sem sölu- og mark­aðs­stjóri og svæð­is­stjóri. Þá var Jón Björns­son, for­stjóri Festar einnig nefndur til sög­unnar.

Það kom því nokkuð á óvart að Bogi yrði látin halda áfram sem for­stjóri sem stjórn Icelandair sam­þykkti. Bæði Björgólfur og Bogi eru að upp­lagi end­ur­skoð­endur. Því má spyrja sig hvort ekki væri heppi­legra að fá for­stjóra með annan bak­grunn. Hefur þar verið nefnt að fá erlendan aðila með mikla reynslu af alþjóð­legri starf­semi flug­fé­laga. Þá situr eng­inn erlendur aðili í stjórn Icelandair.

Lífeyrissjóðir þegar ávaxtað vel

Stærstu hlut­hafar í Icelandair eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna er stærsti hlut­haf­inn í Icelandair með 13,99% hlut, LSR (A og B deild) fer svo með 9,77% og Birta líf­eyr­is­sjóður með 7,29% hlut . Í árs­skýrslu Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna fyrir árið 2017 kemur fram að kostn­að­ar­verð sjóðs­ins við kaupin á þessum hlut hafi verið 2,7 millj­arðar króna. Miðað við núver­andi gengi er mark­aðsvirði þessa hlutar nú í kringum 8 millj­arða króna. Því er ljóst að líf­eyr­is­sjóð­irnir flestir hafa þegar fengið stóran hluta af fjár­fest­ingu sinni til baka með hækkun hluta­bréfa og í formi arðs. Þeir kom­ast þó ekki hæg­lega úr hlut­hafa­hópnum en fáir aðrir en þeir hafa fjár­fest í Icelandair und­an­farin ár.

Síðan má velta fyrir sér hvort líf­eyr­is­sjóð­irnir hafi ein­hverja fram­tíð­ar­sýn varð­andi rekstur Icelandair. Líkt og áður kom fram sitja bara Íslend­ingar í stjórn félags­ins og það flestir með tak­mark­aða reynslu af stjórnun stjórra alþjóð­lega flug­fé­laga. Icelandair er að reyna að selja Icelandair Hotels og í vik­unni var einnig sagt frá því að Icelandair Travel, ferða­skrif­stofu­hluti Icelandair yrði seldur. Stærsta áskorun fyr­ir­tæk­is­ins hlýtur þó að fel­ast í því að reyna að lækka launa­kostnað. Það getur tekið langan tíma og góðir kjara­samn­ingar hjá bæði flug­mönnum og flug­freyjum tak­marka getu þeirra til þess.

Icelandair birti ekk­ert varð­andi horfur á árinu 2019. Spáir hag­deild Lands­bank­ans því að árið 2019 verði jafn erfitt og árið 2018 fyrir Icelandair.

Ljóst er að árið 2019 verður krefj­andi ár hjá Icelandair. Verður áhuga­vert að sjá hvort núver­andi for­stjóri haldi starfi sínu til lok árs­ins. Hans hlut­verk er ekki öfunds­vert um þessar mundir.

Sjá einnig: Vonlaust að fjár­festa í flug­fé­lögum?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi