Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það eina sem hann langaði til að gera var að fróa sér og borða konfekt.“

Lista­mað­ur­inn Ragnar Kjart­ans­son segir að heim­ur­inn sé sitt stóra áhuga­mál en þaðan fær hann einmitt hug­myndir – úr heim­inum sjálfum. Sýning eftir Ragnar, Fígúrur í lands­lagi, var nýverið opnuð í i8 Galleríi og fram undan eru spenn­andi sýn­ingar víða um heim.

„Það eina sem hann langaði til að gera var að fróa sér og borða konfekt.“
||

„Sýningin sam­anstendur af sjö víd­eóskjáum og ein­kennir erkitýpískt lands­lag hvern og einn. Þetta eru hand­mál­aðar leik­myndir þar sem fólk í lækna­sloppum gengur fram og til baka,“ segir Ragnar.

„Hvert mynd­band er 24 klukku­tímar; hefst á mið­nætti og lýkur á mið­nætti næsta dag. Þannig að það má líka segja að verkin séu ein­hvers konar klukkur. Ég var að hugsa um 20. aldar vegg­myndir sem sýna fram­farir þar sem fólk í hvítum sloppum er í hetju­legum aðstæðum tengdum vís­indum og fram­förum. Þetta er meðal ann­ars undir áhrifum frá sov­éskri áróð­urs­list sem og banda­rískum áhrifum; það má sjá hetju­lega mynd­list sem sýnir fram­farir, vís­indi, menntun og vinnu í verkum út um allan heim frá mið­biki 20. aldar. Þetta fjar­aði svo út þegar fram­fara­trúin rann af fólki. Mér finnst þetta vera heill­andi og sorg­lega fyndið fyr­ir­bæri og mér fannst áhuga­vert að fara inn á þessar lendur með nútíma­legu, níhíl­ísku tvisti. Fólkið er bara að vafra þarna um fram og til baka. Það er eitt­hvað ljóð­rænt til­gangs­leysi yfir þessu öllu saman. Þetta eru fárán­lega löng mynd­bönd með fólki sem er eig­in­lega ekki að gera neitt,“ segir hann, en hug­myndin að verk­inu varð til þegar Ragnar tók þátt í sam­keppni fyrir lista­verk í Maersk-turn­inum sem er nýbygg­ing heil­brigð­is­vís­inda­sviðs Kaup­manna­hafnar-háskóla. Verkið var vígt þar 29. jan­úar og sýn­ingin var opnuð svo tveimur dögum síðar í i8.

Ragnar Kjart­ans­son hefur sýnt verk sín erlendis við góðan orðstír árum saman og orðið hvað þekkt­astur fyrir gjörn­inga og mynd­bandsinn­setn­ingar sínar. Mynd / Elísabet Dav­íðs­dóttir

Ragnar játar að verkið sé flókið tækni­lega og það hafi verið fjöl­margar áskor­anir sem þurfti að yfir­stíga til að þessi hreyf­an­legu mál­verk yrðu að veru­leika. „Þótt þetta sé mynd­bands­verk þá mætti líka líta á þetta sem mál­verka­sýn­ingu,“ segir hann. „Þetta eru mál­verk sem eru gerð með gömlum aðferðum í bland við splunku­nýja staf­ræna mögu­leika nútím­ans. Það er samt ekk­ert staf­rænt við þessi verk útlits­lega en formið er bara til vegna tækn­innar í dag. Einnig eru þessi verk undir áhrifum skjá­mynda og skjá­hvíla sem eru allt í kringum okkur í dag­legu lífi.“

Rekinn áfram af feg­urð­ar­þrá
Fram undan og yfir­stand­andi eru svo ýmsar aðrar sýn­ingar lista­manns­ins víða um lönd. Nú standa til dæmis yfir sýn­ingar á verkum hans í Phoenix og Los Angeles. Sýningu í Peking var að ljúka og í vor verður hann með yfir­lits­sýn­ingu í Stutt­gart en Ragnar hefur sýnt verk sín erlendis við góðan orðstír árum saman og orðið hvað þekkt­astur fyrir gjörn­inga og mynd­bandsinn­setn­ingar sínar. Á hvað leggur lista­mað­ur­inn áherslu í verkum sínum?
„Ég held ég leggi mesta áherslu á feg­urð­ina og ein­hverja heim­speki­lega afstöðu sem hefur líka með feg­urð­ina að gera. Ég held að ég sé alltaf að vinna með þrá. Ein­hverja feg­urð­ar­þrá. Það að vinna við mynd­list gefur mér mjög mikla ánægju. Því fylgir ljóð­ræna að vera að vinna í list sinni og vera alltaf að pæla í list ann­arra. Það gefur mér rosa­mikið að lifa í þessu ríki­dæmi ljóð­ræn­unnar sem listin er.“

Hann segir að í raun sé heim­ur­inn sitt stóra áhuga­mál. „Stóra áhuga­málið er að reyna að nýta hverja sek­úndu sem maður er á lífi til að upp­lifa heim­inn – að verja tíma með fólki, að lesa bækur, að fara á sýn­ingar og að skoða ein­hverja hluti og fá sér Camel og kaffi við sól­ar­upp­rás.“

Sýning Ragnars Kjart­ans­sonar, Fígúrur í lands­lagi, var opnuð í i8 Galleríi 31. jan­úar og stendur til 16. mars. Þar eru sjö mynd­bands­verk sem hvert og eitt er 24 klukku­stunda langt.

Hvítvín og Leonard Cohen
Talið bein­ist inn á aðrar brautir, þar á meðal draum­farir og Ragnar að það hafi gerst tvisvar að hann hafi dreymt lista­verk. „Mig dreymdi einu sinni að ég væri í kirkju­garð­inum við Suð­ur­götu og sá þar hvítan leg­stein sem á stóð: „Það eina sem hann lang­aði til að gera var að fróa sér og borða konfekt.“ Mér fannst þetta dálítið fal­legt og gerði síðar slíkt minn­is­merki, nema að text­inn er á þýsku.“
Ragnar segir frá öðrum draumi sem varð að einu af hans fyrstu lista­verkum. „Mig dreymdi einu sinni að það væri lítil aug­lýs­ing í Mogganum í stað teikni­mynd­ar­innar „Ást er“ og þar stóð þessi til­kynn­ing: Því miður mun Ragnar Kjart­ans­son ekki geta tekið þátt í þess­ari sýn­ingu. Í stað­inn mælum við með því að þið farið heim og drekkið hvítvín og hlustið á Leonard Cohen.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi