Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Karlar eiga alltaf að vera til í kynlíf

Gunnari Karli Ólafs­syni var nauðgað ítrekað af fjórum karl­mönnum í des­em­ber 2017. Hann segir það hafa tekið langan tíma að játa það fyrir sjálfum sér að um nauðgun hafi verið að ræða, til að byrja með hafi hann kennt sjálfum sér um. Gunnar kærði ekki menn­ina, seg­ist ekki treysta sér til að þurfa að mæta þeim í rétt­ar­sal.

Karlar eiga alltaf að vera til í kynlíf
Gunnar Karl Ólafsson

„Ég bý í Berlín og nauðg­unin átti sér stað þar,“ segir Gunnar. „Það var jóla­partí í vinn­unni hjá mér og eftir að því lauk fórum við nokkur saman á klúbb. Það síð­asta sem ég man úr þeirri ferð er að ég pant­aði mér bjór um tvöleytið um nótt­ina og svo var allt svart þar til ég vakn­aði klukkan ell­efu morg­un­inn eftir við að maður sem ég hafði aldrei séð áður var að nauðga mér í ein­hverri íbúð sem ég hafði aldrei komið í. Ég er nokkuð viss um að ein­hverju lyfi hefur verið laumað í bjór­inn minn, því svona blakkát hefur aldrei komið fyrir mig áður og ég var alls ekki búinn að drekka í óhófi þetta kvöld.“

Gunnar seg­ist hafa lam­ast af skelf­ingu og ekki þorað að hreyfa sig. Hann hafi samt grát­beðið mann­inn að hætta og láta sig í friði en ekki fengið nein við­brögð. Gunnar sofn­aði aftur eftir fyrstu nauðg­un­ina en vakn­aði á ný við að tveir menn í við­bót voru komnir og farnir að mis­nota hann kyn­ferð­is­lega og þegar þeir hafi orðið varir við að hann var vakn­aður hafi þeir sett eitt­hvert lyf upp í munn­inn á honum.

Seinna bætt­ist fjórði mað­ur­inn við og þeir skipt­ust á um að nauðga mér í marga klukku­tíma.

„Ég varð ekki rænu­laus af þessu lyfi en ég varð hálf­lamaður og gat ekki hreyft mig. Seinna bætt­ist fjórði mað­ur­inn við og þeir skipt­ust á um að nauðga mér í marga klukku­tíma. Það var ekki fyrr en ég hafði loks­ins komið þeim í skiln­ing um að ég yrði að mæta í vinn­una klukkan fimm sem þeir leyfðu mér að fara.“

Ræður ekki við sjálfsásökunina

Gunnar mætti beint til vinnu eftir hryll­ing­inn og hann seg­ist í raun og veru ekki hafa gert sér grein fyrir því að honum hefði verið nauðgað heldur hafi það verið sjálfs­á­sök­unin sem hafði yfir­hönd­ina.

„Ég kenndi sjálfum mér um þetta allt saman til að byrja með. Skammaði sjálfan mig fyrir að hafa drukkið of mikið og ekki passað drykk­inn minn betur, þetta væri allt mér að kenna. Þótt ég viti betur núna þá stend ég mig samt stundum að því að vera enn að ásaka sjálfan mig fyrir að hafa lent í þessu.“

Þessi við­brögð kann­ast eflaust mörg fórn­ar­lömb nauð­gana við og Gunnar seg­ist vita það núorðið að þau séu alröng, hann ráði bara ekki við sjálfs­á­sök­un­ina. En datt honum aldrei í hug að kæra þessa menn?

„Ég hugsa enn þá um það á hverjum degi hvort ég ætti að kæra eða ekki. Ég er búinn að kom­ast að því hvaða menn þetta eru, eða þrír af þeim reyndar, ég veit ekki enn hver sá fjórði er. En fyrir mér lítur dæmið þannig út að þeir eru fjórir á móti einum og þegar maður horfir á töl­fræð­ina yfir það hversu oft svona kærur enda með sak­fell­ingu þá get ég ekki haft mig í það. Ég sé mig ekki fyrir mér í dóm­sal ef þeir yrðu sýkn­aðir og mér og öllum öðrum myndi finn­ast að ég væri að ljúga, þannig að ég á mjög erfitt með það að treysta mér í það ferli, enn þá að minnsta kosti.“

Þegar maður horfir á töl­fræð­ina yfir það hversu oft svona kærur enda með sak­fell­ingu þá get ég ekki haft mig í það.

Spurður hvort hann hafi á til­finn­ing­unni að sé tekið öðru­vísi á nauðg­unum á karl­mönnum heldur en konum seg­ist Gunnar alveg viss um það.

„Ég held það sé aðal­lega vegna þess að það er miklu minna talað um nauðg­anir á karl­mönnum. Sú umræða er nokkrum árum á eftir, kannski skilj­an­lega af því þetta hefur verið svo mikið tabú í umræð­unni. Það er senni­lega aðeins minna tabú fyrir mig sem sam­kyn­hneigðan mann að tala um það en ég held að gagn­kyn­hneigðir karl­menn sem hafa lent í því sama eða svip­uðu eigi mun erf­ið­ara með að segja frá. Það þykir mér mjög leitt og vona að það breyt­ist sem fyrst. Það þarf að opna umræð­una um þetta og það er ein af ástæðum þess að ég sam­þykkti að koma í þetta við­tal.“

Nauðgunin ýfði upp gömul sár

Gunnar burð­að­ist með skömm­ina og sjálfs­á­sök­un­ina í heilt ár án þess að leita sér hjálpar eða ræða málið við nokkra fag­mann­eskju. Í des­em­ber síð­ast­liðnum var hann um það bil að brotna algjör­lega saman undan álag­inu sem því fylgdi og brá á það ráð að taka upp tæp­lega tutt­ugu mín­útna mynd­band þar sem hann sagði sögu sína. Mynd­bandið birti hann síðan á Facebook-síðu sinni og eftir það fóru hjólin að snú­ast.

„Ég er enn að mörgu leyti í rúst eftir þetta atvik,“ við­ur­kennir Gunnar.

„En ég hef fengið mikla hjálp eftir að ég birti mynd­bandið og er farið að líða mun betur. Ég þekki fram­kvæmda­stjóra Sam­tak­anna ’78 og þegar hann sá mynd­bandið sendi hann mér línu og benti mér á að Samtökin væru með fría ráð­gjöf og sál­fræði­þjón­ustu í svona málum og hvatti mig til að nýta mér hana, sem ég gerði. Síðan fór ég líka til sál­fræð­ings nokkrum sinnum í Berlín, og hef haldið áfram að vera í fjar­tímum hjá honum í gegnum Facetime því ég er svo mikið á flakki út af vinn­unni minni. Það hefur hjálpað mikið, en ég hef ekki getað nýtt mér það eins mikið og ég hefði viljað.“

Ég fékk sem betur fer engan skít yfir mig vegna mynd­bands­ins, bara stuðn­ing frá ætt­ingjum og vinum.

Í mynd­band­inu rifj­aði Gunnar einnig upp mis­notkun sem hann varð fyrir af hendi eldri drengs þegar hann var fimm ára og ein­elti sem hann varð fyrir eftir að hann kom út sem sam­kyn­hneigður tólf ára gam­all. Hann seg­ist aldrei hafa talað um það fyrr, en nauðg­unin hafi ýft þau sár upp þannig að hann hafi setið eftir með óyf­ir­stíg­an­legan pakka af óupp­gerðum til­finn­ingum. Hann seg­ist ein­göngu hafa fengið jákvæð við­brögð við mynd­band­inu og það hafi hjálpað honum mikið að koma þessu frá sér en hann hafi engu að síður ákveðið að taka mynd­bandið af síð­unni eftir dálít­inn tíma, honum hafi ekki hugn­ast sú til­hugsun að það yrði aðgengi­legt á Netinu um ókomna tíð.

„Ég fékk sem betur fer engan skít yfir mig vegna mynd­bands­ins, bara stuðn­ing frá ætt­ingjum og vinum, en ég veit alveg að mörgum finnst svona vera athygl­is­sýki. Ég verð nú samt að segja að ég vil frekar vera athygl­is­sjúkur en að byrgja allt inni og þróa kannski með mér alkó­hól­isma eða ein­hverja aðra sjúk­dóma vegna óupp­gerðra mála.“

Þótt honum líði mun betur eftir að hafa leitað sér hjálpar segir Gunnar dag­ana þó enn vera sveiflu­kennda og honum hafi margoft dottið í hug að binda enda á eigið líf.

„Stundum er maður alveg á núll­inu og fer inn í sjálfs­vígs­hugs­anir,“ við­ur­kennir hann. „Þetta er ansi stór pakki sem ég þarf að vinna úr. Mér finnst ég vera kom­inn á rétta braut en út af þessum áföllum öllum líður mér líka oft eins og ég viti ekki almenni­lega hver ég er og allt sem ég geri sé bara til að þókn­ast öðrum og passa mig að æsa engan. Alltaf á varð­bergi, alltaf að reyna að reikna út við­brögð ann­arra áður en ég þori að segja eitt­hvað.“

Spurður hvort hann hafi ein­hver ráð fyrir karl­menn sem er nauðgað til að vinna úr áfall­inu er Gunnar snöggur til svars.

„Það er að leita sér hjálpar, alveg taf­ar­laust,“ segir hann. „Ég beið sjálfur allt of lengi með að fara til sál­fræð­ings og það gerði mér enn meiri skaða að burð­ast með þetta einn. Og svo er mik­il­vægt að muna að það varst ekki þú sem gerðir eitt­hvað til að kalla þetta yfir þig. Það skiptir engu hvort þú ert að drekka, hvernig þú ert klæddur eða hvar þú ert, það er aldrei þér að kenna þegar ein­hver ræðst á þig. Aldrei. Það er mik­il­væg­ast af öllu að muna það.“

Sjá einnig: Lifði í stöð­ugum ótta

Og Glímir enn við reið­ina.

Mynd / Aðsend

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi